Ný Dögun - 01.11.1993, Síða 16

Ný Dögun - 01.11.1993, Síða 16
/vjý Dögim minningum og ýmsu af því fallegasta sem maður sér í mannlegum samskiptum. Það hefur einnig færst mjög í vöxt með tilkomu þess að fólk deyr oftar heima í dag en það gerði fyrir nokkrum árum, að haldin er sérstök húskveðja áður en sá látni er fluttur burt. Það er prestur sem sér um húskveðj- una( þarf ekki að vera algilt, getur verið hver sem er vel til þess fallinn að veita stuðning með hlýjum orðum). Nánustu ætt- ingjar hins látna eru viðstaddir og stundum við hjúkrunarfólkið og læknarnir þá sérstaklega ef við höfum kynnst fjölskyld- unni vel. Pagfólk Við, sem höfum lagt fyrir okkur þetta starf og viljum hvergi annars staðar vera, erum oft spurð að því hvernig við getum þetta og hvort þetta sé ekki erfitt. Sumum finnst við meira að segja vera smáskrítin. Okkur finnst við auðvitað vera í góðu lagi í aðalatriðum en hvernig höldum við okkur þannig og hvernig líður okkur með þetta? Nú verður hver að svara fyrir sig. Ég svara fyrir mig. Það eru ákveðin viðhorf, sem ég hef núna að leiðarljósi í sambandi við starf mitt. Það tekst ekki alltaf að framfylgja þeim, en þetta eru viðmið. Ég reyni að vera fagleg í alla staði. Fagaðili er sá, sem verður það góður í sínu fagi og starfsamur að hann hefur öryggi til að slappa af og vera mann- legur. Eingöngu með því að vera faglegur getur sá, sem vinnur við Hospice haft samband við fólk á árángursríkan hátt. Ég býð upp á minn mannlega þátt til notkunar hverjum sem vill - eins og ég get sjálf. Það er það sem mér finnst ég geta gert best. Það að vera mannleg er að deila hlýju, heiðar- leika, ljúfmennsku, kærleika, umhyggju, ábyrgð og jafnvel þögn inn í líf fólks sem er að mörgu leiti einangrað. Til þess að geta gert þetta verð ég að ná tökum á og vinna úr mínum eigin missi og sorg. Ég þarf stuðning við þetta. Stuðning sem ég fæ ekki alltaf heima því fólkið mitt segir stundum og ég skil það vel: „Ef þetta er svona erfitt gerðu þá bara eitthvað annað!" En ég vil ekki gera eitthvað annað eins og er. Ég styðst við mína vinnufélaga - allir þurfa einhvern. Ég þarf að vera í jafnvægi í þessari vinnu. Ef það raskast mikið eða lengi þá brenn ég út og get ekki meira. Ég reyni að hafa vinnu- daginn ekki of langan. Ég tek mér góð frí eins oft og ég get og skil vinnuna eftir í vinnunni þegar ég fer heim. Innra jafnvægi og vellíðan á vinnustað og í einkalífi fleytir manni alla leið. Mér hefur lærst smám saman að raða lífi mínu þannig saman að ég er nokkuð ánægð með það í heild sinni. Einungis með því móti get ég gefið í þetta starf það sem til þarf. Sorg og missir eru þættir sem við öll stöndum frammi fyrir fyrr eða síðar á einn eða annan hátt. Mikilvægt er að læra smám saman að þekkja þau erfiðu tilfinningaátök sem fylgja, lesa sér til og leita hjálpar hjá þeim, sem eru reiðubúnir að aðstoða og þekkja þetta ferli vel af eigin reynslu, eða hafa kosið sér að starfa við aðstoð af þessu tagi. Ákveðnir aðilar í hjúkrunarstétt, lækna- stétt, prestastétt, auk sálfræðinga og félags- ráðgjafa hafa þekkingargrunn, reynslu og menntun til að leiðbeina fólki inn á réttar leiðir í þessum efnum öllum í kring til þroska og nýrrar dögunar. Og að lokum eftirfarandi: En handan við fjöllin og handan við áttirnar og nóttina rís turn ljóssins þar sem tíminn sefur. Inn í frið hans og draum er förinni heitið. Snorri Hjartarson. 16

x

Ný Dögun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.