Ný Dögun - 01.11.1993, Page 27

Ný Dögun - 01.11.1993, Page 27
/Vjý Dögu^ Maðurinn minn dó skyndilega. Ég varð að sækja öll úrræði sjálf með hjálp ættingja og ég lít á það sem lán mitp að hafa átt góða að í þessum aðstæðum. Ég kunni ekkert á "kerfið". Svo fannst mér ég vera öðru vísi en annað fólk. Ég sá fólk hvíslast á og það tiplaði á tánum í kringum mig. Mér fannst ég ekki fá tækifæri til að tala og vera eins og ég vildi innan um fólk. Svo kom þörfin fyrir að hitta einhvern sem hafði upplifað það sama og ég, eða a.m.k. eitthvað líkt. Ég leitaði að einhverjum, sem vildi vita hvernig þetta væri. Þetta rak mig áfram. Fljótlega fann ég slíkan aðila í samverkakonu minni, sem líka hafði misst maka nokkrum árum áður. Hún bauð mér greiðan aðgang að sér og var mér ómetan- leg. Ég tók eftir því, að hún gat brosað og hlegið þrátt fyrir missinn. Það gaf mér von, eitthvað til að horfa fram til. Sp.-Svo fór hópur syrgjenda að hittast... Olga-Um hálfu ári eftir missinn hitti ég Jónu Dóru. Við komumst að þvý að okkur fannst báðum, að það þyrftu að vera til samtök fyrir syrgjendur. Við áttum svo margt sameiginlegt þrátt fyrir ólíkan missý Jóna Dóra missti börn, og okkur fannst við skilja hvor aðra mjög vel. Samtökin urðu svo til upp úr hópi, sem hittist frá því í nóvember 1986 og þar til samtökin voru stofnuð í desember 1987. Okkur fannst vanta fræðslu og stað- festingu á því, að sorg væri hreinlega til. Okkur fannst sorgin svo lítið viðurkennd. Alltaf fékk maður klapp á bakið og svo var manni sagt að harka af sér. Það vantaði leyfi til að ganga ferlið eins og manni er nauðsynlegt. Þátttakan á fyrstu fræðslufundunum var mjög mikil og sýndi þörfina. Ein kona sagði við mig:"Mikið er gott að þið eruð til, ef eitthvað skyldi koma fyrir hjá mér". Sp.-Þegar þú lítur til baka á sorgarferli þitt, hvað ber þá hæst? Olga-Ég hegðaði mér fyrst eins og hetja í fornsögunum. Ég var "dugleg", bar harrn- inn í hljóði, vann eins og forkur. En þetta hefur bara ekkert með "dugnað" að gera. Öll vinnan sem ég vann, brauðstritið, að hugsa um börnin, maður mátti ekki vera að því að hugsa um sig. Ég hef trúlega flestað töluvert mörgu í mínu sorgarferli. Tíminn í hópnum og í sorgarsamtökunum var sjálf- sagt sá tími, sem ég skammtaði mér í minni sorg. Ég hvíldi mína nánustu og vinnu- félagana með því að sinna mínu í samtök- unum. Mér fannst gott að vinna mikið og þurfa ekki að hugsa á meðan, en það var líka mjög erfitt. Ég upplifði mig í vissri vernd á vinnustað. Samstarfsfólkið vissi hvað gerst hafði og trúlega hlífði mér. En hálfu ári eftir missinn spurði nýr samstarfs- maður mig hvað hefði komið fyrir. Og við það að þurfa að segja það upphátt, þá horfð- ist ég í augu við missinn á nýjan hátt. Á svipuðum tíma fór ég í fyrsta skipti í leikhús eftir missinn og fann mig ákaflega einmana í fjölmenni. Sp.-Hvað með tilfinningar sorgarinnar? Olga-Fyrst fann ég uppgjöf. Svo liðu 2-3 vikur og þá kom doðinn, Svo komu líkamleg einkenni, sem ég var mjög hrædd við. Ég var viss um að ég myndi einhvern tíma "springa" og reyndi að finna mér einhvern, sem ég treysti til að taka við viðbrögðum mínum þegar það gerðist. En ég gekk á marga veggi og "sprakk" á endanum ein heima hjá mér. Þarna hefði ég þurft, ég sé það núna, að fá undirbúning frá einhverjum, sem þekkti þetta. Svo kom reiðin. Hún beindist að aðstæð- um mínum, að manninum mínum fyrir að hafa yfirgefið mig, að "kerfinu". Stundum fannst mér þetta vera eins og leið mín lægi um haugasjó. Lengst niðri í öldudal var deyfð og depurð og svo reis ég upp í vellíðan á öldutoppi. Þetta voru krappar öldur. En svo jafnaðist þetta út. Þó var einmanaleikinn ævinlega til staðar, auk öfundar út í hjón, sem ég sá og sérstaklega út í þau hjón, sem voru að skilja, af engu tilefni að mér fannst. Sp.-En hvernig líður þér núna? Olga-Mér líður vel. Þó geri ég mér grein fyrir því, að þessi reynsla verður alltaf til staðar. Það koma alltaf tímamót, sjálfsagt svo lengi sem ég lifi, sem fela í sér sterk tilfinningaviðbrögð. Það verður maður að skoða sem sjálfsagðan hlut. 27

x

Ný Dögun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.