Ný Dögun - 01.11.1993, Page 7

Ný Dögun - 01.11.1993, Page 7
/*0ý DöguKv i—í-pið b»*ey+is+ En það er ekki bara við fæðingu og dauða sem þessi umskipti eiga sér stað. Við komum líka inn í fjölskyldur með öðrum hætti eins og þegar við giftum okkur. Þá gerist það í senn að við yfirgefum fjöl- skylduna sem ól okkur upp til að stofna okkar eigin. Og margur fer úr fjölskyldu í dag við skilnað, fer frá ástvinum og heimili og í sumum tilvikum kemur sem nýr inn í aðra fjölskyldu. Það reynir á tengsl og samskipti allra í fjölskyldunni þegar einn kemur og annar fer. Unga parið sem var eitt um tíma er það ekki lengur og barnið þarf sitt pláss, athygli, tíma, krafta og samskiptin verða æ fleiri eftir því sem börnum fjölgar og þegar höggvið er skarð í það margháttaða sam- skiptamynstur þá þarf líka að stokka upp fjölskyldulífið á ný. Við þurfum að tala um hvernig líf okkar breytist, hvort heldur það er við skilnað eða dauðsfall, eða við giftingu eða við að eignast barn. Það er margt líkt með sorginni við skilnaðinn og dauðann og atvikið, aðstæðurnar, árin að baki og allar minn- ingarnar eru hlutir sem við þurfum að tala um. Þannig mun okkur betur farnast að takast á við lífið framundan ef við getum kvatt það liðna á viðeigandi hátt með nokkurri sátt. Og framtíðin verður umræðu- efnið af því það blasir við okkur að hún verður öðruvísi en dagurinn í gær og í dag. Hver tekur nú við því sem pabbi gerði alltaf með okkur krökkunum, hver verður nú besti vinurinn hennar mömmu? Otal umskipti bíða okkar og þau koma smátt og smátt í ljós og geta ekki gerst með öðrum hætti. Sumir ætla að reyna að hraða þessum óhjákvæmilegu breytingum, en þær gerast kannski á jafnlöngum tíma eins og þær voru að mótast í upphafi og þurfa sinn tíma. Og þótt við getum breytt ýmsu í umhverfi okkar á hinu veraldlega sviði, og svo ótal margt slíkt fylgir ástvinamissi, þá getum við ekki afgreitt djúpar tilfinningar á auga- bragði og skipað þeim nýjan sess. Það er gott að geta fundið tilfinningum nýjan farveg og við sveigjum þær ekki inn á nýjar brautir á einni nóttu. Plýjum ekki sorgma Þetta segir okkur m.a. að það reynist okkur farsælla að eiga sinn tíma til að átta sig og vita hvað maður vill sjálfur áður en teknar eru stórar ákvarðanir um breytta lífsstefnu. Það er vænlegra þegar til lengri tíma er litið að hafa verið eirm með sjálfum sér áður en maður gengur í hjónaband og það á líka við um þá sem skilja. Sumir fara frá foreldrum sínum til að losna undan valdi þeirra og áhrifum, en sá sem fer í þeim tilgangi í hjónaband eða sambúð, myndar samstundis ný tengsl og er þar með væntan- lega að binda sig um leið. Við flýjum heldur ekki sorgina með því að hlaupa inn í nýtt samband oft til þess að leita huggunar. Sorgin mun fylgja okkur eftir ef hún hefur ekki fengið sinn tíma þar sem við horfumst í augu við hana eins og hún blasir við okkur með þeim sárindum sem eru fylgifiskar hennar, og kveðjum hana eins vel og okkur er unnt til að geta hafið nýtt líf. Sorgin snertir ekki bara einhvern einn í fjölskyldunni heldur alla. Það sleppur enginn. Þegar einn kemur eða fer skapast ný samskipti og tengsl milli allra sem tilheyra þessari mikilvægu, sterku og líka viðkvæmu einingu sem fjölskyldan er. Það ætti því jafnan að hafa alla fjölskyldu- meðlimi í huga þegar rætt er um sorgina við fráfall ástvinar og eins þegar um skilnað er að ræða. Sá sem virðist vera sterkur í dag kann að vera aumur á morgun. Barnið sem sýnir lítil viðbrögð nú finnur seinna til sársauka. Skilnaður er ákvörðun hinna fullorðnu en hann hefur óhjákvæmilega mikil áhrif á alla í fjölskyldunni, áhrif á þann sem fer og 7

x

Ný Dögun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.