Ný Dögun - 01.11.1993, Page 12

Ný Dögun - 01.11.1993, Page 12
Dögun hægt er að kaupa góðar fræðandi og upp- byggjandi bækur, heilsuvörur, vítamín og slökunarspólur. Þarna gæti einnig verið boðið upp á fræðsludagskrá, sem yrði stöð- ugt í gangi allan ársins hring. Ég er sannfærð um að ef hægt yrði að setja á stofn þjónustu sem þessa við krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra, þá myndi það verða til að létta mörgum manninum hin þungu spor sjúkdómsgöngunnar og einnig koma að notum við að milda missinn og auka þroskann á þessari erfiðu leið. Lífsgæði viðkomandi sjúklings og aðstandenda myndu án efa aukast til muna og það myndi síðan skila sér aftur út í þjóðfélagið í formi betri heilsu og meiri afkasta. ÓW\y\v\ við dauðarm Við breytum ekki þeirri staðreynd að við erum dauðlegar verur. Óttinn við dauðann virðist þó vera okkur í blóð borinn og við gerum bókstaflega allt til að forðast hann. Það er okkur einfaldlega eðlislægt að vilja lifa að eilífu og því afneitum við dauðanum stöðugt. Þó er missir lífsins hlutur sem við verðum öll að kljást við á einhvern hátt. Ef við skoðum þetta aðeins betur þá myndum við kannski helst vilja læra að elska lífið og óttast ekki dauðann og það myndum við ef til vill geta gert með því að læra að þekkja dauðann og halda þannig áfram með lífið. Dr. Bernie Siegel segir að þetta getum við gert með óendan- legum kærleika. Ef við auðsýnum kærleika í verki til alls og allra þá verðum við eilíf í anda - því áhrif kærleikans lifa áfram í af- komendum okkar og öðru samferðafólki. Auðveldast væri auðvitað að fá að prófa aðeins að deyja, en fá örugglega að koma aftur! Viðurkenningin á dauðleika okkar getur aukið ást okkar á lífinu án þess að gera okkar persónulega dauða endilega ásættan- legan. Þegar við horfumst beint í augu við dauðann, getur verið að við hötum hann óstjómlega. Hartn gerir lítið úr tilfinning- 12 unni um persónulegt mikilvægi okkar. Hann gerir öll okkar stórvirki þýðingarlaus og hann sýnir okkur skýrt hversu van- máttug við erum. Hann vekur upp spurn- ingarnar, hvers vegna fæðumst við og hvers vegna deyjum við? í raun er það erfitt fyrir flest okkar að horfast í augu við eigin dauða án þess að verða hrædd við hann. Við erum hrædd við tilhugsunina um að vera ekki til, hrædd við hið óþekkta, hrædd við líf eftir dauðann þar sem okkur verður e.t.v.refsað fyrir syndir okkar og hrædd við einmana- leikann. Margir óttast það að vera deyjandi en ekki dauðann í sjálfu sér. Sumir segja að allt lífið berum við með okkur hræðsluna við að verða yfirgefin og að okkar fyrsti missir í hvaða formi sem hann er, gefi okkur öllum fyrsta bragðið af dauðanum. Öll síðari mót við dauðann hvort sem hann er fyrir- sjáanlegur eða bankar skyndilega á dyrnar vekja upp erfiðar minningar frá fyrri missi. •Hospice í nóvember 1989 hófust mín fyrstu kynni af sjúklingum með sjúkdóminn krabbamein, aðstandendum þeirra og því starfi sem ákveðinn hópur hugsjónafólks var að stíga fyrstu skrefin í að þróa hér á landi. Þá var að baki tveggja ára vinna. Núna, sex árum síðar vita nokkuð margir hvað Hospice hug- myndafræðin er og e.t.v. enn fleiri um starfsemi Heimahlynningar Krabbameins- félagsins. Hospice hugmyndafræðin er perla. I henni er meðal annars gengið út frá því að öll sorg sé kærleikur. Þeir sem syrgja eru þeir sem virkilega hafa elskað. Við söknum ekki þess sem við höfum ekki metið. Sorgin er verðið sem greitt er fyrir að hafa elskað. í Hospice hugmyndafræð- inni er lögð áhersla á andlega þáttinn fremur en þann trúarlega. Það hafa ekki allir trúarlegar þarfir því það hafa ekki allir trú. Sorglegasta tilfinningin sem maður finnur oft hjá fólki er eftirsjáin og samviskubitið. Fólk segir:"Af hverju gerði ég ekki þetta eða hitt fyrir hann, sagði þetta eða hitt,við hann?" „Af hverju tók ég mér ekki meira

x

Ný Dögun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.