Ný Dögun - 01.11.1993, Page 35
/Oý Döguw
Hvað á ekki að segja/gera andspænis syrgjanda?
Ekki segja: Hringdu til mín þegar þér líður illa! Syrgj-
andinn er í sárum og hefur misst frumkvæði. Að lyfta
upp símtólinu og hringja getur verið syrgjandanum um
megn.
Ekki segja syrgjandanum hvernig honum/henni
á að líða.
Syrgjandinn fer nokkuð nærri um það ánþinnar hjálpar.
Ekki segja: Þetta gæti verið verra! Þú ert einn um
það álit.
/ s
Ekki segja: Eg votta þér samúð, eða: Eg samhryggist
þér, ef þú meinar það ekki. Syrgjandinn finnur muninn.
Ekki segj a: Allt verður betra á morgun! Það er ekki víst.
Ekki forðast syrgjandann vegna þinna óþæginda, því
það eykur á sársaukann, sem er nógur fyrir.
/
Ekki segja: Eg veit hvernig þér líður! Þú veist það ekki.
Vertu ekki að reyna að finna eitthvað jákvætt við dauð-
ann, eða að hella þér út í heimspekilegar vangaveltur
andspænis sársauka sorgarinnar. Það hjálpar ekki.
Ekki breyta um umræðuefni. Með því lokar þú á marga
möguleika til að veita stuðning.
B.S.
35