Fréttablaðið - 17.11.2018, Page 34
Upplýsingamiðstöð Suðurlands er ein af upplýsingamiðstöðvum landshlutanna.
Hún hefur verið starfrækt síðan
1999 og er opin allt árið um kring.
Hún sinnir fyrst og fremst upplýs
ingagjöf til ferðamanna og gegnir
gríðarlega mikilvægu hlutverki
þegar kemur að öryggi ferðamanna
og ábyrgri ferðaþjónustu.
„Við þjónustum fyrst og fremst
ferðamenn, en einnig ferða
þjónustuaðila sem leita til okkar.
Við svörum mörgum fyrirspurnum
í gegnum síma og tölvupóst, en
aðallega á gólfinu,“ segir Sigurdís
Lilja Guðjónsdóttir, forstöðumað
ur upplýsingamiðstöðvarinnar.
„Við stuðlum að öryggi ferða
manna, sem er mjög mikilvægt
af því að heimsóknirnar eru svo
margar. Fólk trúir því oft ekki hvað
margir koma til okkar á hverjum
degi, en yfir sumartímann heim
sækja okkur að meðaltali yfir þrjú
þúsund manns á dag.
Það er mjög mikilvægt að koma
beinum upplýsingum til ferða
manna eins og við gerum. Ferða
menn eru oft ekki með réttar
upplýsingar og jafnvel þó svo sé,
er öryggi í því að leita til heima
manna og fá staðfestingu á að
maður hafi allt á hreinu,“ segir
Sigurdís. „Svo eru líka einstaka
ferðamenn inn á milli sem eru
algjörlega óundirbúnir en hafa þó
vit á að leita til okkar og þá getum
við hjálpað.
Upplýsingamiðstöðvarnar hér á
landi eru greinilega þekktar meðal
ferðamanna og þeir leita okkur oft
uppi,“ segir Sigurdís. „Okkar mið
stöð hefur líka haft gæðavottun
frá Vakanum, gæðakerfi ferða
þjónustunnar, síðan árið 2016 og
við vorum fyrsta upplýsingamið
stöðin á landsbyggðinni til að fá þá
vottun.“
Það er því mikilvægt starf unnið
hjá Upplýsingamiðstöð Suður
lands og upplýsingamiðstöðvar
landshlutanna eru veigamikill
þáttur í ábyrgri ferðaþjónustu.
„Þess vegna erum við líka til dæmis
í samstarfi við SafeTravel til að
auka meðvitund um öryggisatriði,“
segir Sigurdís. „En meðvitund um
þessi mál hefur almennt aukist
eftir slysin sem hafa því miður
orðið.“
Ýmis rekstur styður starfið
„Stærsti hlutinn af fjármagninu
okkar kemur frá Hveragerðisbæ og
ég vinn mikið í ferðamálum fyrir
bæinn vegna þess, en við fáum
líka fjármagn frá SASS, samtökum
sunnlenskra sveitarfélaga og Ferða
málastofu,“ segir Sigurdís. „Þetta
er ekki há upphæð, svo við höfum
tekið upp á ýmsu til að drýgja
tekjurnar, því það hefur verið farið
fram á lengra og betra aðgengi að
okkur.
Við höfum til dæmis fengið leyfi
til að bóka í ferðir og annað slíkt,
við seljum minjagripi, starfsemin
er rekin í samvinnu við Pósthúsið
og við erum einnig með sýninguna
„Skjálftinn 2008“, þar sem við
bjóðum fólki að borga sig inn í
jarðskjálftahermi,“ segir Sigurdís.
„Til að halda upplýsingamiðstöðv
unum opnum er sniðugt að hafa
annan rekstur með á þennan hátt,
en það þarf að vera rekstur sem
hentar starfseminni og það þarf
að vera þekkingargrundvöllur til
staðar til að sinna því öllu. Þessi
rekstur hefur skilað því að nú erum
við þrjú í heils árs starfi, en yfir
háannatímann á sumrin starfa hér
sex manns. Í upphafi var hér bara
eitt stöðugildi, svo þjónustan hefur
aukist mikið.“
Fyrir nokkrum árum hittum við þrjá döff (táknmáls talandi) ferðamenn sem höfðu
klárað hringveginn. Þau höfðu á
orði að Ísland væri voða fallegt
en að þau hefðu ekki séð neitt
táknmál í allri ferðinni. Þau voru
nánast útbrunnin eftir þessa ferð,
sáu margt en misstu líka af mörgu.
Þessi saga varð til þessað við fórum
alvarlega að spá í ferðaþjónustu
fyrir döff ferðamenn,“ segir Sigur
lín sem stofnaði ferðaþjónustuna
Deaf Iceland Tours árið 2017 ásamt
Trausta Jóhannessyni, Steinunni
Lovísu Þorvaldsdóttur, Branic
Keltz og Magnúsi Sverrissyni.
„Trausti er með meirapróf og
keyrir oftast rútuna okkar, Stein
unn er menntaður þjóðfræðingur
og hefur séð um leiðsögn, Branic
er frá Boston, hann er menntaður
kvikmyndatökumaður og lærður
í frumkvöðlafræðum og Magnús
hefur reynslu af að vinna með
ferðamönnum.“ Sjálf er Sigurlín
menntuð í frumkvöðlafræðum og
sinnir öllu því sem þarf að sinna
hverju sinni. „Ég svara fyrirspurn
um, bý til ferðaplön og sé um sam
skipti sem oft fara fram í gegnum
Facetime eða Whatsapp og þá á
alþjóðlegu táknmáli.“ Fyrirtækið er
rekið heiman að. „Það væri æðislegt
ef hægt væri að vera inni á gafli hjá
ferðaþjónustufyrirtæki.“
Gaman að hitta nýtt döff fólk
Eitt af verkefnum Sigurlínar er
að vera leiðsögumaður í ferðum
með döff ferðamenn. „Það er
margt skemmtilegt við þetta starf.
Maður hittir nýtt fólk og það er
einstaklega gaman að hitta döff
fólk hvaðanæva úr heiminum og
fræðast um hvað það er að gera í
sínu heimalandi. Eftir því sem ég
hitti fleira döff fólk og menntað, sé
ég hve fátæklegur vinnumarkaður
inn fyrir döff er hér á Íslandi. Ég
hef hitt döff frá Skotlandi sem er
læknaritari á háskólasjúkrahúsi
og ítalska döff konu sem vinnur
hjá sýslumannsembættinu í sinni
heimaborg á Ítalíu. Ég hef skipu
lagt brúðkaupsferð fyrir frægan
döff leikara frá Bandaríkjunum.
Það er mjög gaman að hitta þau og
fá annars konar sjónarmið á döff
Eftir því sem ég
hitti fleira döff fólk
og menntað, sé ég hve
fátæklegur vinnumark-
aðurinn fyrir döff er hér á
Íslandi.
Það er mjög mikil-
vægt að koma
beinum upplýsingum til
ferðamanna eins og við
gerum. Ferðamenn eru
oft ekki með réttar upp-
lýsingar og jafnvel þó svo
sé, er öryggi í því að leita
til heimamanna.
Sigurlín Margrét
Sigurðardóttir
er einn af stofn-
endum Deaf
Iceland Tours og
starfar meðal
annars sem
leiðsögumaður.
MYND/ERNIR
Táknmál og ferðalög okkar ástríða
Deaf Iceland Tours skipuleggur ferðir á táknmáli um Ísland. Sigurlín Margrét Sigurðardóttir segir
mikla þörf á slíkri þjónustu en döff ferðamenn koma hingað helst frá Bandaríkjunum og Evrópu.
heiminn,“ segir Sigurlín sem er
núna ásamt Steinunni í námi hjá
Endurmenntun – Leiðsögumanna
nám á háskólastigi. „Það er alveg
meiriháttar fróðlegt.“
Flestir frá USA og Evrópu
„Táknmál og ferðalög eru okkar
ástríða. Viðskiptavinir okkar koma
helst frá Bandaríkjunum, Norður
löndunum og Evrópu. Við höfum
þó fengið fyrirspurnir frá öðrum
löndum, til dæmis Srí Lanka, Kína
og Japan.“ Farið er með ferðamenn
ina á alla vinsælustu ferðamanna
staðina. Stundum koma þó séróskir
sem ávallt er reynt að verða við.
„Við bjóðum upp á dagsferðir.
Svo bjóðum við upp á gönguferð
um Reykjavík og þá kem ég inn á
döffsögu enda fólk áhugasamt um
döffsamfélagið á Íslandi.“
Sigurlín segir hiklaust mikla þörf
á ferðaþjónustu á borð við Deaf
Iceland. „Margir ferðamenn kaupa
ferðir með leiðsögn á móðurmáli
sínu. Af hverju ættu döff ekki að
eiga sama möguleika á að fá leið
sögn á sínu móðurmáli sem er
táknmál?“
Komin til að vera
Sigurlín segist ekki finna fyrir
miklum vexti í þeirra starfsemi.
„Við bjóðum upp á sérhæfða
þjónustu sem þarf sinn tíma til
að vaxa. „Á þessu ári fengum
við reynslu með ferðirnar. Árið
2019 verðum við með bókanir
á heimasíðu okkar enda orðin
hálfgert „must“ í táknmálsferða
þjónustunni á Íslandi. Við erum
komin til að vera og viljum endi
lega að aðrar ferðaþjónustur viti
af okkur.“
Samkvæmt tölum frá Alheims
sambandi heyrnarlausra er áætlað
að um 70 milljónir döff séu í heim
inum. „Við teljum okkur vel getað
þjónustað allt að 10 til 15 þúsund
döff á næstu 10 til 20 árum.“
Sigurdís segir að Upplýsingamiðstöð Suðurlands sinni mikilvægu hlutverki við að auka öryggi ferðamanna.
Auka öryggi ferðamanna
Upplýsingamiðstöð Suðurlands er mjög mikilvægur hluti af ábyrgri ferðaþjónustu. Hún tekur á
móti gríðarlegum fjölda gesta á hverjum degi og hjálpar ferðamönnum að ferðast örugglega.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . N ÓV E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
A
-A
D
4
4
2
1
6
A
-A
C
0
8
2
1
6
A
-A
A
C
C
2
1
6
A
-A
9
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K