Fréttablaðið - 17.11.2018, Qupperneq 36
Fyrirtæki í ferðaþjónustu hér á landi standa frammi fyrir ýmsum áskorunum í rekstri
sínum um þessar mundir. Ferða
þjónustan hefur vaxið mjög hratt
hér á landi undanfarin ár sem
þýðir m.a. að fjárfestingar hafa
verið miklar á stuttum tíma og
vaxtakostnaður af húsnæði, bíla
flota og öðrum fjárfestingum er
hærri en hjá helstu samkeppnis
aðilum segir Ásta Kristín Sigur
jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Íslenska ferðaklasans. „Launa
kostnaður er nú þegar með hæsta
móti á Íslandi sem þýðir aftur verri
samkeppnisstöðu við þau lönd
sem við miðum okkur við. Það er
því lítið svigrúm til launahækkana
miðað við þær rekstrarforsendur
sem nú eru uppi.“
Þá hafa ýmsar aðrar ytri
áskoranir eins og gengi íslensku
krónunnar og stöðug umræða um
auknar opinberar álögur veruleg
áhrif á rekstur ferðaþjónustu
fyrirtækja. „Það er oft lítið sem
fyrirtækin sjálf geta gert til að
verjast ytri áskorunum og þess
vegna mikilvægara en áður að
horfa í tækifærin sem felast í að
leysa innri áskoranir, bæði hjá
stórum og litlum fyrirtækjum í
ferðaþjónustu. Tækifærin felast í
að horfa inn í kjarnaþjónustuna
sína og að huga betur að sérstöðu
síns fyrirtækis. Fjárfesta í tækni,
forgangsraða verkefnum, stunda
markvissa vöruþróun og síðast
en ekki síst vinna á gæðum og af
ábyrgð. Helsta áskorunin er og
verður að auka verðmætasköpun
þess rekstrar sem er til staðar í dag
til þess að standa undir skuldbind
ingum morgundagsins.“
Auknar kröfur
Heimurinn er sífellt að minnka
þegar kemur að því að koma
upplýsingum á framfæri, bæði
jákvæðum og neikvæðum. Það
sem áður tók vikur eða mánuði í
undirbúningi er núna framkvæmt
á nokkrum mínútum með tækni
sem við þekktum varla fyrir nokkr
um mánuðum segir Ásta. „Kröfur
viðskiptavina um hraða þjónustu,
í rauntíma eða helst í gær, eykst
og upplifun og væntingar að sama
Búin að stimpla sig rækilega inn
Ferðaþjónustan hefur vaxið hratt hér á landi síðustu ár og fyrirtæki í greininni standa frammi fyrir
ýmsum áskorunum. Nýsköpun er mjög mikilvæg í greininni og kröfur viðskiptavina aukast sífellt.
„Nýsköpun er
jafn mikilvæg
og súrefni.
Þó Ísland sé
lítill markaður
er alþjóðleg
samkeppni
hörð og hafa
íslensk fyrirtæki
einstakt lag á
að sýna fram
á sköpunar-
gleði og kraft,“
segir Ásta Kristín
Sigurjónsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Íslenska
ferðaklasans.
MYND/SIGTRYGGUR
ARI
skapi haldast í hendur við nýja
tækni. Við þekkjum dæmi úr deili
hagkerfaheiminum einsog Uber
og Airbnb sem nýta sér kröfur um
hraða nútímaþjónustu þar sem
fólk reiðir sig á traust og ummæli
annarra gesta.“
Hún segir að fyrirtæki í ferða
þjónustu þurfi að leggja áherslu
á stafræna tækni sem fyrst og
fremst snúi að hagræðingu í
rekstri fyrirtækja. „Þá á ég t.d. við
hvernig þau geti nýtt hugbúnað
til að leysa mannaflafrek verkefni
og þannig nýtt mannauðinn í að
leysa verðmætari verkefni, hvernig
auka megi arðsemi með að lesa og
þekkja gögn til að byggja kynn
ingarefnið sitt á, hvernig minnka
megi hlut milliliða í þóknunar
kostnaði og hvernig þróa megi
langtímasamband beint við við
skipavininn.“
Nýsköpun er mikilvæg
Nýsköpun í ferðaþjónustunni
er mjög mikilvæg á svo litlum
markaði sem Ísland er segir Ásta.
„Nýsköpun er jafn mikilvæg og
súrefni. Þó Ísland sé lítill markaður
er alþjóðleg samkeppni hörð og
hafa íslensk fyrirtæki einstakt lag
á að sýna fram á sköpunargleði og
kraft. Nýlegasta dæmið eru Bjór
böðin á Árskógsströnd sem fyrir
skömmu fengu nýsköpunarverð
laun SAF, annað dæmi á Norður
landi eru möguleg mjólkurböð sem
var hugmynd í Startup Tourism
á árinu, Travelade er dæmi um
tæknifyrirtæki í ferðaþjónustu
sem tengir saman ferðalanginn og
ævintýri með nýstárlegum hætti,
Óbyggðasetur Íslands í Fljótsdal
er dæmi um nýsköpun þar sem
gamli tíminn lifnar við og Frið
heimar í uppsveitum Árnessýslu
hafa blandað saman hefðbundinni
grænmetisrækt, hestasýningum og
heimsfrægri tómatsúpugerð, svo
fáein dæmi séu tekin. Eins eigum
við frábær dæmi frá fyrirtækjum
sem hafa verið starfrækt til fjölda
ára eins og Ferðaþjónusta bænda
og Bláa lónið sem hafa farið óhefð
bundnar leiðir í að endurbæta
vörumerkin sín.“
Burðaratvinnugrein
Ferðaþjónusta er sannarlega ein
af burðaratvinnugreinum Íslands
og er komin til að vera. Til þess að
geta verið samkeppnishæf til lengri
tíma þarf þó að vanda sig sem aldr
ei fyrr segir Ásta. „Ferðamenn gera
sífellt meiri kröfur til upplifunar
og þjónustu og þar þurfa að fara
saman verð og gæði. Til viðbótar
við aukna tækni og meiri kröfur þá
hafa ferðavenjur breyst til muna og
fleiri ferðamenn en áður sem kjósa
að skipuleggja ferðir sínar sjálfir.“
Á næstu 35 árum verður að ein
hverju leyti samþjöppun í greininni
og þau fyrirtæki sem munu ná
árangri eru þau sem hafa sín mál á
hreinu, þau hæfustu lifa. „Þetta eru
fyrirtæki sem stunda ábyrgan rekst
ur, vita hvert þau eru að stefna og
hafa nýtt þann tíma sem er núna til
þess að forgangsraða í rekstrinum.
Ég sé fyrir mér að fjöldi ferðamanna
verði um og yfir þrjár milljónir
á ári og að stjórnvöld muni stýra
fjármunum betur í uppbyggingu
innviða. Ferðamenn gera auknar
kröfur til þess að fyrirtæki stundi
sjálfbæran rekstur og séu ábyrg
gagnvart umhverfi, starfsmönnum
og nærsamfélaginu. Hótelbyggingar
og aðrar fjárfestingar hafa náð jafn
vægi og með aukinni fjárfestingu í
tækni, beinu millilandaflugi á fleiri
flugvelli og fjárfestingum í aukinni
afþreyingu og vöruframboði á
landsbyggðinni fara ferðamenn
víðar og dvelja lengur.“
Tækifærin felast í
að horfa inn í
kjarnaþjónustuna sína
og að huga betur að
sérstöðu síns fyrirtækis.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . N ÓV E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
A
-C
1
0
4
2
1
6
A
-B
F
C
8
2
1
6
A
-B
E
8
C
2
1
6
A
-B
D
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K