Ægir - 01.09.2018, Page 8
8
Sandfell SU náði þeim áfanga á
nýloknu fiskveiðiári að vera
aflahæsti krókabáturinn frá
upphafi með 2.400 tonna afla á
fiskveiðiárinu. Hefur útgerðin á
Sandfelli gengið langt umfram
væntingar enda var litið á línu-
bátaútgerð sem svolítið til-
raunaverkefni þegar hún hófst
en annað komið á daginn eins
og áhöfnin á Sandfelli hefur
sýnt og sannað. Útgerð Sand-
fellsins er Loðnuvinnslan á Fá-
skrúðsfirði en áhöfnin fékk á
dögunum afhenta tertu frá út-
gerðinni í tilefni af þessum
góða árangri í veiðum. Í viðtali
á vef Loðnuvinnslunnar sagði
Örn Rafnsson skipstjóri að
þakka megi árangurinn á fisk-
veiðiárinu því að hægt sé að
róa takmarkalaust.
„Við erum í frjálsum veiðum,
sem þýðir að það er ekkert sem
að stoppar okkur nema veðrið.
Við erum með tvær frábærar
áhafnir, góðan bát og útgerð
sem sér um að koma aflanum til
vinnslu. Við þurfum sem sé
aldrei að stoppa vegna þess að
vinnslan hafi ekki undan eða
þess háttar,“ sagði Örn.
Langstærstur hluti þess afla
sem Sandfell kemur með að
landi er unninn í frystihúsi
Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðs
firði. Örn sagði líka að það fyrir
komulag að vera tvær vikur á
sjó og tvær vikur í fríi vera gott
og samstarf áhafna væri mjög
gott.
Í svo stífri sókn segir Örn það
vera matartímana sem brjóti
upp erilsama vinnudaga. „Við
erum alltaf spenntir að komast í
mat, kokkarnir eru mjög góðir
og elda góðan mat og svo er
það auðvitað sá tími dagsins
sem við höfum tækifæri til að
spjalla svolítið saman“.
Um kvótamánaðamótin ný
liðnu fór Sandfell í slipp hjá
Slippstöðinni á Akureyri og þar
var hlúð að vél og skrokki áður
en haldið verður á veiðar á ný.
Örn skipstjóri segir ekki ákveðin
aflamarkmið fyrir fiskveiðiárið.
„Markmiðið er það eitt að gera
sitt allra besta“
Sandfellið SU slær aflamet
Örn Rafnsson, skipstjóri á Sandfelli tekur fyrir hönd áhfarnarinnar við tertu frá útgerðinni í tilefni af því að báturinn fiskaði 2400 tonn á nýliðnu
fiskveiðári.
Sandfell SU er tæplega 30 tonna bátur, smíðaður árið 2014 hjá Seiglu. Báturinn hét áður Óli á Stað og var gerð-
ur út frá Grindavík en Loðnuvinnslan keypti hann árið 2016.
F
isk
v
eiða
r