Ægir - 01.09.2018, Síða 9
9
Samstæða Samherja hf. skilaði
14,4 milljarða króna hagnaði á
síðasta ári en niðurstaðan var
kynnt að loknum aðalfundi á
dögunum. Þorsteinn Már Bald-
vinsson, forstjóri, segir svo
góða niðurstöðu ekki sjálf-
gefna við núverandi aðstæður
heldur sé hún afrakstur mikillar
samvinnu starfsmanna Sam-
herja og samstarfaðila víða um
heim. Söluhagnaður vóg þungt
í þessari afkomu ársins og nam
um fimm milljörðum króna.
Rúmur helmingur starfsemi
samstæðunnar er erlendis en
samanlagðar tekjur dóttur og
samstarfsfélaga í fimmtán lönd
um nam um 77 milljörðum
króna. Samherja hf. var á liðnu
ári skipt upp í tvö félög, Sam
herja hf. og Samherja Holding
ehf. sem tók við erlendum eign
um. Þannig var innlend og er
lend starfsemi aðgreind.
Þorsteinn Már segir af þessu
tilefni í frétt frá fyrirtækinu að
bæði hafi verið unnið að endur
nýjun og uppbyggingu í land
vinnslu og skipastól fyrirtækis
ins. Áfram verði haldið á sömu
braut.
„Við héldum áfram upp
byggingu á innviðum Samherja
á síðasta ári með mikilli endur
nýjun á skipaflota. Við höldum
áfram á þessu ári, m.a. með
nýrri landvinnslu á Dalvík. Tekið
var á móti þremur nýjum skip
um hér í Eyjafirði þegar Kald
bakur EA, Björgúlfur EA og
Björg EA komu til landsins. Í
Þýskalandi tók DFFU á móti
tveimur skipum, Cuxhaven NC
100 og Berlin NC 105. Það er
hægara sagt en gert að koma
nýjum tæknivæddum skipum
með miklum og flóknum bún
aði af stað jafn hnökralaust og
raun ber vitni. Skipin hafa
reynst vel og má segja að
áhafnirnar og stjórnendur hafi
unnið ákveðið þrekvirki og vil
ég þakka þeim sérstaklega fyr
ir.“
Frekari breytingar áttu sér
stað á skipastól Samherja á Ís
landi í fyrra. Oddeyrin var seld
til Noregs og Kristina til Rúss
lands. Þegar Snæfellinu var lagt
í byrjun þessa árs var í fyrsta
skipti í sögu Samherja ekki
frystitogari í rekstri.
Þá hefur fjölveiðiskipið Vil
helm Þorsteinsson verið selt og
er fyrirhugað að afhenda það
nýjum eigendum í byrjun
næsta árs. „Vilhelm Þorsteins
son hefur reynst afar færsælt
skip allt frá því það kom til
landsins 3. september árið 2000
og vitaskuld er eftirsjá af skip
inu. Við teljum hins vegar brýnt
að halda endurnýjun flotans
áfram,“ segir Þorsteinn Már og
heldur áfram: „Við höfum einn
ig treyst frekar sölu og mark
aðsstarfsemi okkar, m.a. með
kaupum á Collins Seafood á
Englandi. Í síharðnandi sam
keppni skiptir máli að hafa öfl
uga sölu og markaðsstarfsemi,
bæði hér heima og erlendis.“
Samherji hf. tók á móti þremur nýjum ferskfisktogurum á síðasta ári. Endurnýjun skipastóls fyrirtækisins mun halda áfram en uppsjávarskipið Vil-
helm Þorsteinsson hefur verið selt og kemur nýtt skip í þess stað árið 2020.
S
já
v
a
rú
tv
eg
u
r
Samherji með
14,4 milljarða hagnað