Ægir - 01.09.2018, Síða 10
10
„Það er alltaf erfitt að koma sér upp brekkuna, rækjuiðnaður hefur
verið í nokkrum öldudal um skeið en mér finnst aðeins vera að rofa
til, það eru jákvæð teikn á lofti um betri tíma,“ segir Sigurbjörn
Rafn Úlfarsson framkvæmdastjóri rækjuvinnslunnar Hólmadrangs
á Hólmavík í Strandabyggð. Hólmadrangur er ein af stærstu og full-
komnustu rækjuvinnslum landsins. Rík hefð ef fyrir slíkri á staðn-
um en á Hólmavík hefur verið samfelld rækjuvinnsla í yfir hálfa öld,
frá árinu 1965. Hún byggðist í fyrstu upp á veiðum og vinnslu á inn-
fjarðarrækju úr Húnaflóa en hin síðari ár hefur innflutt frosið hrá-
efni verið uppistaða í vinnslunni.
Sigurbjörn segir liðin ár hafi
verið á brattann að sækja og
umhverfi rækjuvinnslu ekki
hagstætt. Veiðar á rækju við Ís
landsstrendur séu ekki svipur
hjá sjón þegar miðað sé við fyrri
ár og fyrirtækið hafi um árabil
reitt sig á innflutta frosna rækju.
Um 90% af því hráefni sem
unnið er hjá fyrirtækinu komi
m.a. frá Kanada eða Noregi.
Undanfarið hefur veiðst vel í
Barentshafi og stór hluti hráefn
is um þessar mundir komi það
an en Sigurbjörn segir að þar
séu fínar afurðir á ferð.
100 dagar frá pöntun til greiðslu
„Verð á hráefni hefur verið
mjög hátt og gerir vinnslunum
vitanlega erfitt fyrir, en það sem
setur strik í reikninginn er að
seljendur krefjast staðgreiðslu á
farmi áður en hann fer í skip er
lendis. Þá á eftir að flytja rækj
una heim, ef til vill að geyma
hana örlítið og svo fer hún í
vinnslu. Þá á eftir að selja og
mjög algengt hefur verið að
kaupendur biðja um greiðslu
frest í ákveðinn tíma. Þannig
hafa oft liðið allt að 100 dagar
frá því við pöntum og þar til við
fáum greitt. Þetta ástand hefur
verið okkur afar þungt,“ segir
Sigurbjörn.
Ofan á kaupið hefur staðan
verið sú að lítill munur er á hrá
efnisverði og því verði sem
fengist hefur fyrir fullunna vöru.
Hagnaður af vinnslunni hefur
því verið sáralítlill og arðsemi í
lágmarki.
„Afraksturinn hefur verið
harla lítill, kaupendur hafa ekki
verið tilbúnir að greiða það
verð fyrir vöruna sem sann
gjarnt getur talist,“ segir Sigur
björn.
Meira jafnvægi að nást
Hráefnisverð hefur á liðnum
vikum aðeins verið að lækka,
meira jafnvægi að nást milli
þess og afurðaverðs. Helstu
markaðir fyrir rækju eru í Bret
landi auk þess sem eitthvað er
selt til annarra Evrópulanda.
Hitabylgja á nýliðnu sumri
gerði að verkum að eftirspurn
eftir rækju jókst verulega.
„Fólk sækir minna í þungan
mat en meira í léttar máltíðir og
kaldar þegar veðurfar er með
þessum hætti. Þar kemur rækj
an sterk inn, hún er vinsæl í
salöt og samlokur. Með aukinni
eftirpurn hefur verðið hækkað
og það gerir umhverfið aðeins
skaplegra,“ segir Sigurbjörn.
„Við fáum fjöldan allan af fyrir
spurnum og það stoppar varla
síminn.“
Það mun þó taka einhvern
tíma að koma sér upp úr öldu
dalnum, en Sigurbjörn segir
fjármálastofnanir varkárar. Fjár
magnið hafi ekki næga þolin
mæði. „Við getum unnið og selt
allt það hráefni sem okkur
býðst, en það er ákveðinn
flöskuháls í þessu þegar kemur
að því að fjármagna innkaupin.“
Burðarás í atvinnulífi
Um 20 manns starfa hjá Hólma
drangi, stærsta fyrirtæki
Stranda byggðar, en íbúar í
Strandabyggð er um 500 tals
ins, þar af um 400 á Hólmavík.
„Hólmadrangur er burðarás at
vinnulífs hér um slóðir. Hér er
ekki rekin hefðbundin fisk
vinnsla, ekkert frystihús en það
er nokkur útgerð og töluvert
um strandveiðibáta auk þess
sem á Hólmavík er fiskmarkað
ur. Rækjuiðnaður er afar mikil
vægur fyrir þetta svæði því við
höfum ekkert annað á sjávarút
vegssviðinu að hverfa að. Það
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson framkvæmdastjóri Hólmadrangs á Hólmavík
Rækjuiðnaður
vonandi á leið
upp úr öldudal en
brekkan er brött
Hefð fyrir rækjuvinnslu er rík í
Hólmavík, en þar hefur slík
vinnsla verið rekin í yfir hálfa öld,
frá árinu 1965.
Æ
g
isv
iðta
lið