Ægir - 01.09.2018, Page 13
13
Rúmt ár er nú liðið frá því að
fyrsti ferskfisktogari af þremur
nýjum hjá HB Granda hf. hóf
veiðar en það var Engey RE 1.
Með þessum skipum urðu
merk tímamót í útgerð fersk
fisktogara, ekki aðeins í íslenskri
togaraútgerð heldur á heims
vísu því þetta eru fyrstu fersk
fisktogararnir sem búnir eru al
sjálfvirku lestarkerfi. Aldrei þarf
því að fara í lestina til að raða
fiski í kerin heldur er gengið frá
aflanum við enda kælilínunnar
á milliþilfari skipanna og þar
tekur sjálfvirkur búnaður við
sem færir kerin í lest, raðar í
stæður og færir þær síðan með
sjálfvirkum hætti að löndunar
búnaði þegar til hafnar er kom
ið. Og síðast en ekki síst heyrir
kæling með ís líka sögunni til í
þessum þremur skipum, líkt og
í fleirum af nýjum íslenskum
ferskfisktogurum. Áður fyrr var
gjarnan talað um ísfisktogara
en þessi útfærsla skipanna gerir
að verkum að réttara er að tala
um ferskfiskskip.
Átta þúsund tonn á fyrsta
fiskveiðiárinu
Engey RE fór í fyrstu reynslu
veiðiferðir um mitt sumar 2017
en skipið kom til landsins í árs
byrjun það ár. Lestar og kæli
kerfi voru sett í skipið á Akra
nesi en sá búnaður er frá Skag
anum 3X. Skipið fiskaði tæplega
380 tonn í lok fiskveiðiársins
2016/2017 og hefur síðan verið
í fullum rekstri. Aflinn á nýliðnu
fiskveiðiári var á rösklega átta
þúsund þúsund tonn og að
meðaltali um 165 tonn í túr.
Stærsti túrinn á fiskveiðiárinu
var í júní síðastliðnum þegar
Engey landaði rúmlega 222
tonnum.
Friðleifur Einarsson, skip
stjóri á Engey RE, segist afar
Eins og fara úr torfkofa
í nútíma einbýlishús
- Friðleifur Einarsson, skipstjóri á Engey RE 1 sem fiskaði yfir 8000
tonn á fyrsta árinu í útgerð
Friðleifur Einarsson, skipstjóri á Engey RE 1.
T
og
a
ra
ú
tg
erð
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100 Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði