Ægir - 01.09.2018, Page 20
20
maí og lauk þann 30. ágúst en
heimilt var að róa fjóra virka
daga í viku, þ.e. mánudag til
fimmtudags. Að hámarki var
heimilt að koma með 650
þorskígildiskíló í hverri veiðiferð
en ufsi taldist ekki með til há
marksafla, samkvæmt reglu
gerð.
Versta sumarið veðurfarslega
„Lengst þurfti ég að sækja um
20 mílur, sérstaklega núna á
síðasta hluta tímabilsins, en oft
ast fór ég 410 mílur út. Þetta
var því mjög þægilegt hvað
það varðar en hins vegar var
veðrið í sumar hreint ekkert sér
stakt. Ég hef ekki fengið jafn
slæmt sumar veðurfarslega síð
an ég byrjaði í strandveiðunum
og maður finnur alveg fyrir
þessu í skrokknum. Báturinn er
rúm 8 tonn eftir að ég lengdi
hann á sínum tíma og ég hefði
ekki viljað róa í sumar á minni
bát en þetta. Það var ekki nóg
með að það væri vindasamt
heldur bætti ekki úr skák að
það var líka kalt,“ segir Stefán
og segir að tíðarfarið hafi
stundum komið í veg fyrir að
hægt væri að fara á sjó. Hann
telur að sú breyting sem gerð
var á strandveiðikerfinu fyrir
þetta tímabil hafi náð því mark
miði að halda aftur af mönnum
að fara á sjó í vondum veðrum.
Breytingar á strandveiðikerfinu
síðasta vor sættu gagnrýni
sumra smábátasjómanna og
sýndist sitt hverjum.
„Þetta nýja fyrirkomulag er
að mínu mati miklu manneskju
legra og afslappaðra þegar ekki
er keppst við ákveðinn daga
fjölda. Það komu dagar í sumar
sem ég sleppti að róa vegna
veðurs sem ég hefði ekki gert í
kerfinu eins og það var. Breyt
ingarnar á kerfinu voru að mínu
mati mjög til góðs og ég hefði
kosið að smábátasjómenn
stæðu þétt saman að baki
Landssambandi smábátaeig
enda í þessum breytingum. Það
skiptir okkur miklu máli að allir
standi saman í félaginu,“ segir
Stefán.
Hærra fiskverð og betri afkoma
Fiskverð á mörkuðum sumarið
2017 var mjög lágt og afkoma
strandveiðimanna eftir því með
því allra slakasta. Margir í þeirra
röðum voru því tvístígandi fyrir
sumarið í ár en Stefán segir að
sem betur fer hafi orðið tals
verð breyting til batnaðar í
sumar. „Aflaverðmæti hjá mér í
fyrra var um 5,6 milljónir en um
9,6 milljónir núna þannig að af
koman var mun betri en reynd
ar aflinn líka talsvert meiri.
Þorskur var í fyrra um 26 tonn
en 35 tonn núna þannig að
þróun fiskverðsins skiptir höf
uðmáli,“ segir Stefán. Hann bjó
um borð í bátnum á Arnarstapa
og segir að vinnudagurinn hafi
orðið mjög langur þegar lengst
þurfti að sækja. „En svo kom
líka fyrir að ég var stutt úti og
náði skammtinum á 23 tímum.
Þetta var mjög breytilegt.“
Beðið næsta strandveiðitímatils
Stefán stundar aðra atvinnu yfir
vetrarmánuðina og tekur Grím
AK á land á meðan. Veturinn er
fljótur að líða og alltaf tilhlökk
un að hefja róðra á ný þegar
kemur fram á vorið.
„Jú, vissulega fer að taka á í
skrokknum þegar komið er
fram undir lokin á þessari fjög
urra mánaða törn sem strand
veiðin er. En það víkur fyrir
skemmtuninni sem þessu fylgir
og ekki skemmdi fyrir að vita af
því í restina að ég ætti mögu
leika á að verða aflahæstur í
sumar. Það hleypti vitanlega
svolitlu kappi í mann.“
Marás ehf.
Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ
Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230
www.maras.is - postur@maras.is
Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta
Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað
SANDFELL SU 75BJÖRG EA 7 HAFBORG EA 152
YANMAR aðalvél
MEKANORD niðurfærslugír
VULKAN ástengi
KORSØR skiptiskrúfa
SLEIPNER bógskrúfa
SEAMECH vélstýring
YANMAR aðalvél
YANMAR hjálparvél
REINTJES niðurfærslugír
BERG skiptiskrúfa
STAMFORD ásrafali
SCANTROL autotroll
NORSAP skipstjórastólar
KORSØR
PROPELLER A/S
Allt fyrir nýsmíðina
YANMAR aðalvél
ZF niðurfærslugír
ZF stjórntæki
SIMRAD sjálfstýring
CENTA ástengi
SIDE-POWER hliðarskrúfur
8" hljóðkútur
EUROPAFILTER smursía
SEPAR forsíur
PRESTOLITE alternator
TEIGNBRIDGE skrúfa
LASDROP öxulþétti
POLY FLEX vélapúðar
FLOSCAN eyðslumælir
Mótorpúðar fyrir flestar vélar Alternatorar og DC rafalar
TOIMIL
Löndunarkranar
Sjókopar - sjóinntök - sjósíur - lokar -zink 12V og 24V lensidælur
R
R
Stjórntæki og gírar Rafstöðvar og ljósavélarHliðarskrúfurAðalvélar í skip og báta
Allar gerðir af legum Skrúfur