Ægir - 01.09.2018, Page 21
21
„Aflinn á Stapanum er alltaf
mjög góður í maí og fram í júní
en síðan þurfa menn að sækja
mun lengra þegar kemur fram á
sumarið. Fiskiríið í byrjun tíma
bilsins var meira en í fyrra og
þegar upp er staðið er talsverð
aukning hjá okkur í lönduðum
afla í sumar á Arnarstapa miðað
við sumarið 2017. Samt sem áð
ur er bátafjöldinn ekki meiri
heldur fleiri róðrardagar á
hvern bát,“ segir Guðmundur
EM Ívarsson, hafnarvörður á
Arnarstapa aðspurður um
strandveiðina í sumar. Hann
segir ólíku saman að jafna þar
sem nú hafi verið róið í breyttu
strandveiðikerfi.
„Ég tók eftir því að bátunum
var farið að fækka talsvert þeg
ar leið á strandveiðitímann og
mér finnst líklegt að þessar
breytingar skili því til lengri
tíma að samsetning þeirra sem
strandveiðarnar stunda verði
öðruvísi en var áður. Það var
mikið um að menn færu í
strandveiðina í stuttan tíma
þegar þeir voru í fríi frá annarri
vinnu en ég gæti trúað því að
þeir sem verði eftir í þessu séu
menn sem helga sig þessari at
vinnu þessa fjóra mánuði með
an leyfi er til,“ segir Guðmund
ur. Hann segir að talsvert bjart
ara hafi verið yfir smábátasjó
mönnum vegna hærra fiskverðs
og afkoman hafi greinilega ver
ið talsvert betri en í fyrra.
„Menn voru farnir að tala um
í vor að landa í gáma en af því
varð ekki þar sem fiskverðið var
strax í byrjun talsvert betra en í
fyrra,“ segir Guðmundur. Tíðar
farið var strandveiðimönnum
sannarlega ekki hagstætt í sum
ar á vestanverðu landinu og
þrátt fyrir breytingar á daga
kerfinu segir Guðmundur að
margir keppist við og rói þó sjó
lagið sé erfitt. „Kappið og veiði
eðlið er í mönnum og það
verður seint hægt að koma í
veg fyrir að menn fari á sjó þó
veðrið sé kannski ekki upp á
það allra besta. En heilt yfir
gengu strandveiðarnar vel hjá
okkur í sumar og aflaaukning
milli ára.“
„Tíðarfarið
strandveiðimönn-
um erfitt í sumar“
segir Guðmundur EM Ívarsson,
hafnarvörður á Arnarstapa
Höfnin á Arnarstapa. Þar hafa margir strandveiðibátar lagt upp afla í
sumar. Mynd: Guðmundur Ívarsson