Ægir - 01.09.2018, Page 22
K
v
ótin
n
2
0
1
8
/2
0
1
9
Kvótinn 2018/2019
Aflaheimildir á nýju fiskveiðiári
Fyrir nýtt fiskveiðiár sem hófst þann 1. september síðastliðinn hef-
ur Fiskistofa úthlutað veiðiheimildum til íslenskra fiskiskipa sem
nemur í heild 390 þúsund tonnum í þorskígildum talið. Þetta er
aukning úr tæplega 365 þúsund þorskígildistonnum á liðnu fisk-
veiðiári og nemur aukningin því 25 þúsund þorskígildistonnum.
Kvóti í þorski nemur rúmum 248 þúsund tonnum og eykst um 7
þúsund tonn frá fyrra ári. Ýsukvótinn verður rúmlega 53 þúsund
tonn og eykst umtalsvert, eða um 15 þúsund tonn. Þá er aukning
aflaheimilda í ufsa um 18 þúsund tonn. Kvóti á gullkarfa minnkar
en heimildir í djúpkarfa aukast um 1.200 tonn. Svipuð úthlutun er í
íslensku sumargotssíldinni og í fyrra. Nýbreytnin í ár er sú að í
fyrsta sinn er gefinn út kvóti á hlýra sem nemur 1.001 tonni upp úr
sjó. Í heild er úthlutað aflamark 515 þúsund tonn upp úr sjó og er
það 27 þúsund tonna aukning frá fyrra fiskveiðiári.
Fiskistofa mun síðar á árinu úthluta aflamarki í deilistofnum og
bendir á að ekki sé óalgengt að aukið sé við aflamark í uppsjávar
fiski. Vakin er athygli á að engri loðnu var úthlutað nú í upphafi fisk
veiðiársins en nýhafin er viðamikil loðnuleit við landið og verður
hún m.a. grunnur ráðgjafar fiskifræðinga um veiðar á komandi ver
tíð. Loks bendir Fiskistofa á í samantekt um úthlutanir heimilda að
heildaraflamark einstakra skipa og hafna og innbyrðishlutfall þeirra
muni breytast í þegar þessar úthlutanir líta dagsins ljós.
Talsverð fjölgun skipa
Það vekur athygli að nú fengu 540 skip úthlutað aflamarki saman
borið við 489 á fyrra fiskveiðiári. Skýringin á þessari miklu fjölgun
liggur í því að fjöldi skipa hefur veiðireynslu í hlýra því hann veiðist
víða í litlu magni sem meðafli. Fyrir vikið eru fjölmörg skip sem ekki
hafa búið yfir neinum hlutdeildum nú komin með hlutdeild í hlýra
og fá því úthlutað aflamarki í honum.
Togurum fjölgar á ný
Athygli vekur að togurum fjölgar um þrjá eftir árvissa fækkun und
anfarið en þeir eru engu að síður 14 færri en við upphaf fiskveiðiárs
ins 2013/2014. Togararnir eru nú 42 í íslenska flotanum. Það skip
sem fær úthlutað mestu aflamarki er frystiskipið Sólberg ÓF 1 en
það fær 10.760 þorskígildistonn eða 2,7% af úthlutuðum þorskígild
um. Nánar er fjallað um kvótahæstu skipin hér síðar í samantekt
inni. Samkvæmt útgerðarflokkun Fiskistofu fá skuttogarar úthlutað
tæpum 225 þúsund tonnum af því heildaraflamarki sem úthlutað
var að þessu sinni og skip með aflamark fá tæp 171 þúsund tonn.
Bátar með krókaaflamark eru nú 315 og fjölgar um 38, einkum
vegna úthlutunar á hlýra. Skipum í aflamarkskerfinu fjölgar um 13 á
milli ára og eru nú 225. Smábátar með aflamark og krókaaflamarks
bátar fá rúm 55.200 tonn. Vakin er athygli á því að til krókaafla
marks telst eingöngu úthlutun á þorski, ýsu, ufsa, gullkarfa, löngu,
keilu og steinbít og hlýra.
88% hjá fimmtíu stærstu
Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá úthlutað sem nemur um 88,5% af því
aflamarki sem úthlutað er. Þetta hlutfall hefur lítið breyst á milli ára.
Alls fá 416 fyrirtæki eða lögaðilar úthlutað nú eða 44 fleiri aðilar en í
fyrra. Sé litið til þeirra sem eru með mesta úthlutun fær HB Grandi,
líkt og í fyrra, mestu úthlutað til sinna skipa eða 9,4% af heildinni.
Samherji hf. kemur þar næstur með 6,5% og þá FISK Seafood og
Þorbjörn hf. með 5,5%.
Eftirfarandi er listi þeirra 10 fyrirtækja sem mestar heimildir fá og
voru sömu fyrirtæki á honum á síðasta fiskveiðiári. Nokkur fyrirtæki
hafa þó haft sætaskipti. HB Grandi hf., Samherji hf., Vinnslustöðin
hf., Vísir og Síldarvinnslan hf. eru í sömu sætum. FISKSeafood hf.
og Þorbjörn hf. hafa haft sætaskipti frá fyrri lista og SkinneyÞinga
nes hf. færst upp. Brim hf. og Rammi hf. hafa færst neðar. Hlutdeild
þessara 10 fyrirtækja er í heild 50,84% en var 49,74%. Tíu kvóta
hæstu fyrirtækin hafa því aukið hlutdeild sína af heildinni miðað við
síðustu fiskveiðiár. Listinn er þannig:
Samtals Hlutfall
ÞÍG kg % af heild
HB Grandi hf. 36.777.002 9,43%
Samherji Ísland ehf. 25.273.172 6,48%
FISKSeafood ehf. 21.666.170 5,56%
Þorbjörn hf. 21.445.947 5,50%
Vísir hf. 17.310.962 4,44%
SkinneyÞinganes hf. 15.992.718 4,10%
Rammi hf. 15.748.613 4,04%
Brim hf. 15.579.693 3,99%
Vinnslustöðin hf. 15.228.538 3,90%
Síldarvinnslan hf. 13.266.920 3,40%
Útgerðarborgin Reykjavík
Þrjár heimahafnir skera sig úr eins og undanfarin ár með að skip
sem þeim tilheyra fá talsvert meiru úthlutað í þorskígildum talið en
þær hafnir sem á eftir koma. Mest fer til skipa með heimahöfn í
Reykjavík eða 11,6% af heildinni, samanborið við 12,3% í fyrra.
Næstmest fer nú til Grindavíkur, eða 11,0% af heildinni samanborið
við 10,8% á fyrra ári. Skip með heimahöfn í Vestmannaeyjum ráða
fyrir 10,6% úthlutunarinnar samanborið við 9,9% í fyrra.
Fiskistofa bendir á að hlutfall sem fer til skipa hjá hverri höfn fyrir
sig breytist í flestum tilvikum eitthvað vegna breytinga á þorskígild
isstuðlum sem og tilfærslu aflahlutdeilda á milli skipa með ólíka
heimahöfn.
22