Fréttablaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 25
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
Vín—Kínverjar hafa aukið umsvif sín í Afríku undan-gengin ár. Þá vanhagar um
ýmsar auðlindir sem Afríkulönd
hafa upp á að bjóða og þeir reiða
fram fjárhagsaðstoð, byggja vegi,
hús og brýr o.fl. og veita lán, svo
stór lán stundum að áhöld eru um
hvort lántakendum auðnist nokk-
urn tímann að standa í skilum.
„Sjáið okkur,“ segja Kínverjar. „Við
horfum langt fram í tímann. Við
höfum lyft hundruðum milljóna
okkar fólks upp úr sárri fátækt á
fáeinum áratugum. Við þurftum
ekki á vestrænu lýðræði að halda –
og þið ekki heldur.“
Það freistar margra Afríku-
manna af fjárhagsástæðum að
taka þennan boðskap trúan-
legan. „Kannski lýðræðið sem við
lærðum af Bretum og Frökkum
skipti minna máli en við héldum,“
hugsa þeir. Aðrir tortryggja Kín-
verja, sérstaklega þann boðskap
þeirra að lýðræði sé óþarft og
flækist bara fyrir hagvexti.
Tvö sjónarmið
Uppi eru tvö sjónarmið um sam-
hengið milli lýðræðis og vaxtar og
viðgangs efnahagslífsins.
Sumir segja, þ. á m. kínverskir
kommúnistar: „Lýðræði býr til
slagsíðu í þágu aðgangsharðra
hagsmunahópa sem misnota frelsi
sitt til að skara eld að eigin köku
á kostnað almennings. Lýðræði
dregur með því móti úr hag-
kvæmni í atvinnulífinu og hægir
á hagvexti. Hömlur gegn lýðræði
halda hagsmunahópum í skefjum
og efla þannig vöxt og viðgang
efnahagslífsins til hagsbóta fyrir
venjulegt fólk.“
Ég segi, og það gera miklu fleiri:
Lýðræði er eina stjórnskipulagið
sem samrýmist óskoruðum mann-
réttindum og stuðlar að friðsam-
legum stjórnarskiptum í röð og
reglu. Lýðræði leyfir öllum röddum
að hljóma og þaggar því ekki þá
sem gagnrýna stjórnvöld og reyna
að vísa þeim veginn að æskilegum
umbótum. Höfuðkostur lýðræðis
er að lýðræðislegar ákvarðanir í
kosningum og þjóðaratkvæða-
greiðslum verða ekki vefengdar.
Þeim ber að hlíta hvort sem
einhverjum okkar finnst að hægt
hefði verið að komast að réttlátari
og skynsamlegri niðurstöðu eða
ekki.
Hvort er rétt?
Hvort þessara tveggja sjónarmiða
á við sterkari rök að styðjast?
Flækist lýðræði fyrir viðgangi og
vaxtargetu efnahagslífsins eins og
Kínverjar halda fram eða hefur lýð-
Lýðræði í Afríku
ræði reynzt vera lyftistöng undir
lífskjör almennings?
Svo virðist þegar horft er á
heiminn í heild, næstum 200 lönd,
að lýðræði haldist jafnan í hendur
við velsæld í efnahagslífinu. Kína
er einmitt helzta undantekningin
sem sannar regluna. Munstrið er
býsna skýrt. Annaðhvort virðist
lýðræði því stuðla að efnahagslegri
velsæld eins og ég lýsti að framan
eða velsældin kallar á lýðræði
nema hvort tveggja sé sem mér
finnst líklegast.
Sama munstur er sýnilegt einnig
í löndum Afríku sunnan Sahara-
eyðimerkurinnar séu þau skoðuð
út af fyrir sig. Þá kemur aftur í ljós
skýrt samband milli kaupmáttar
þjóðartekna á mann og lýðræðis
eins og stjórnmálafræðingar meta
það eftir kúnstarinnar reglum.
Tvö lönd skera sig úr hópnum.
Olíuútflutningslöndin Miðbaugs-
Gínea og Gabon eru fráhverf
lýðræði en skarta þó bæði löndin
miklum tekjum á mann, tekjum
sem er gróflega misskipt. Nú eru
eftir aðeins þrjú lönd sem flokk-
ast undir einræðislönd í Afríku:
Erítrea, Miðbaugs-Gínea og Svasí-
land. Gabon, Kamerún og Márit-
anía eru að vísu ekki langt undan
en þau teljast nú til fáræðislanda
þar eð slaknað hefur á einræðis-
klónni. Þessari hliðstæðu Afríku
og heimsins alls er vert að halda til
haga m.a. til að minna okkur á að
Afríka er eins og aðrar heimsálfur.
Þar gilda í flestum greinum sömu
lögmál og annars staðar. Ár renna
til sjávar.
Framsókn lýðræðis
Þegar Berlínarmúrinn var brotinn
niður 1989 voru 37 einræðisríki í
Afríku, þrjú lýðræðisríki og fjögur
fáræðisríki sem svo eru nefnd þar
eð þau fylla hvorugan flokkinn.
Fáræðisríki flokkast hvorki til lýð-
ræðisríkja né einræðisríkja heldur
liggja einhvers staðar þar á milli.
Um aldamótin 2000, ellefu árum
eftir fall múrsins, var landslagið
gerbreytt. Þá hafði afrískum lýð-
ræðisríkjum fjölgað úr þrem í 10,
einræðisríkjunum hafði fækkað
úr 37 í sex, og fáræðisríkjum hafði
fjölgað úr fjórum í 30. Eftir það
hélt framsókn lýðræðisins í Afríku
áfram ólíkt því sem gerzt hefur um
heiminn í heild. Lýðræðisríkjum
í Afríku hefur frá aldamótunum
2000 fjölgað úr 10 í 20 og einræðis-
ríkjum hefur fækkað úr sex í þrjú.
Fáræðisríkjum hefur fækkað úr
30 í 24. Boðskapur Kínverja um
lítilvægi lýðræðis virðist ekki hafa
hrifið.
Framsókn lýðræðisins í Afríku
leiðir hugann hingað heim þar sem
lýðræði stendur nú höllum fæti
í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins.
Eigum við að fagna 100 ára afmæli
fullveldis sem Alþingi hefur reitt
fjaðrirnar af með því að ræna
okkur nýju stjórnarskránni sem
yfirgnæfandi hluti kjósenda lýsti
stuðningi við í þjóðaratkvæða-
greiðslunni 2012?
Framsókn lýðræðisins
í Afríku leiðir hugann
hingað heim þar sem lýð
ræði stendur nú höllum fæti
í fyrsta sinn í sögu lýðveldis
ins. Eigum við að fagna 100
ára afmæli fullveldis sem
Alþingi hefur reitt fjaðrirnar
af með því að ræna okkur
nýju stjórnarskránni sem
yfirgnæfandi hluti kjósenda
lýsti stuðningi við í þjóðar
atkvæðagreiðslunni 2012?
GÓÐA VEISLU
GJÖRA SKAL
kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol
la
k
aff
itá
R
f
rá
bý
li
í b
ol
la
ka
ff
itá
r
f
rá
býli
í boll
a
hátíðí bæ
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 23F i M M T u d a g u R 6 . d e S e M B e R 2 0 1 8
0
6
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
A
6
-F
5
6
C
2
1
A
6
-F
4
3
0
2
1
A
6
-F
2
F
4
2
1
A
6
-F
1
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
5
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K