Fréttablaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 43
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
NÝR 8BLS
BÆKLINGUR
STÚTFULLUR AF NÝJUM JÓLALEGUM VÖRUM;)
Virka daga
10:00 - 18:00
Laugardaga
11:00 - 16:00
OPNUNARTÍMAR
MEÐ PÓSTINUM Á ÖLL HEIMILI Í VIKUNNI
JÓLABÆKLINGUR
FRÍTT
SENDUM
ALLAR VÖ
RUR
ALLT AÐ
10kg
Fótbolti Dýrlingarnir staðfestu í
gær að Ralph Hasenhüttl tæki við
liðinu af Mark Hughes sem var rek-
inn frá félaginu á dögunum. Skrifaði
Hasenhüttl undir samning til ársins
2021 og verður um leið fyrsti austur-
ríski þjálfarinn í sögu ensku úrvals-
deildarinnar.
Hasenhüttl þjálfaði síðast RB
Leipzig í Þýskalandi í tvö ár en
hefur ekki þjálfað undanfarna
mánuði. Honum er ætlað að bjarga
Southampton fyrir horn enda tekur
hann við liðinu í fallsæti með níu
stig eftir fjórtán umferðir.
Dýrlingarnir hafa aðeins fengið
sautján stig í síðustu 22 leikjum í
ensku úrvalsdeildinni og rétt björg-
uðu sér frá falli í fyrra. Undir stjórn
Hasenhüttl lentu nýliðar Leipzig
í 2. sæti á fyrsta ári sínu í Bundes-
liga-deildinni og í sjötta sæti í fyrra
ásamt því að fara í átta liða úrslit
Evrópudeildarinnar. Hann hefur
einnig þjálfað lið Ingolstadt, Unter-
haching og Aalen í Þýskalandi.
Kelvin Davis stýrði liði South-
ampton gegn Tottenham í gær en
fyrsti leikur Dýrlinganna undir
stjórn Hasenhüttl ætti að verða um
helgina þegar Southampton mætir
Cardiff á útivelli. – kpt
Hasenhüttl
tekur við
Southampton
Fótbolti Danski framherjinn Tob-
ias Thomsen skrifaði í dag undir
samning hjá KR á ný eftir eins árs
stopp hjá Val.
Tobias kom til Íslands fyrir tveim-
ur árum þegar hann samdi við KR
eftir að hafa áður leikið með AB í
heimalandinu.
Hann skoraði níu mörk í tutt-
ugu leikjum fyrir KR áður en hann
samdi við Val síðasta haust. Komst
hann ekki að samkomulagi við KR
um nýjan samning.
Með Valsliðinu varð hann
Íslandsmeistari en var í hlutverki
varaskeifu fyrir Patrick Pedersen.
Kom hann við sögu í fjórtán leikjum
en skoraði aðeins eitt mark í deild-
inni fyrir Val. Það kom einmitt gegn
gömlu liðsfélögunum í KR í fyrstu
umferðinni þegar hann skoraði
sigurmarkið í uppbótartíma. – kpt
Tobias snýr
aftur í KR
Tobias skoraði níu mörk í KR-treyj-
unni árið 2017. FRéTTablaðið/anTon
Ralph er fyrsti austurríski þjálfarinn í
úrvalsdeildinni. noRdicPhoTos/GeTTy
Undir stjórn Hasenhüttl
komst RB Leipzig í Meistara-
deild Evrópu í fyrstu tilraun.
Alls vann liðið 35 leiki af 78 í
þýsku deildinni undir hans
stjórn.
Handbolti Riðlakeppni á Evrópu-
mótinu í handbolta kvenna sem
fram fer í Frakklandi þessa dagana
lauk með keppni í C- og D-riðlum
keppninnar í gærkvöldi. Þar með
er ljóst hvaða 12 lið komust í tvo
milliriðla mótsins og hversu mörg
stig liðin taka með sér þangað. Áður
var ljóst að Rússlandi færi með
fjögur stig í milliriðil 1 og Serbía,
Frakkland, Svíþjóð og Danmörk
myndu fylgja Rússum þangað með
tvö stig hvert lið. Makedónía hefur
svo leik þar án stiga.
Holland fór taplaust í gegnum C-
riðilinn, en liðið tryggði sér topp-
sætið í riðlum og fjögur stig í milli-
riðil 2 með sannfærandi 34-23 sigri
gegn Króatíu í lokaumferð C-riðils-
ins í gærkvöldi. Ungverjaland vann
öruggan 32-24 sigur þegar liðið
mætti Spáni og hefur þess vegna
leik með tvö stig í milliriðli 2, en
Spánverjar fylgja þeim þangað án
stiga. Holland heldur hins vegar í
milliriðil 2 með fjögur stig.
Þýskaland tryggði sér svo sæti í
milliriðli 2 með 30-28 sigri á Tékk-
landi sem sat eftir með sárt ennið
úr D-riðlinum. Rúmenía vann sann-
færandi sigur 31-23 gegn lærimeyj-
um Þóris Hergeirssonar hjá Noregi
sem eru ríkjandi Evrópumeistarar.
Yuliya Dumanska reyndist norska
liðinu óþægur ljár í þúfu í rúmenska
markinu í þeim leik. Þrátt fyrir tapið
kemst Noregur í milliriðil en fer
þangað án stiga á meðan Rúmenía
fer þangað með fjögur stig og Þýska-
land tekur með sér tvö stig.
Keppni í milliriðlum hefst í dag
með leikjum Danmerkur og Frakk-
lands og Svíþjóðar og Svartfjalla-
lands í milliriðli 1. Byrjað verður að
spila í milliriðli 2 á morgun. – hó
Þórir haltraði inn í milliriðil
noregur sem leikur undir stjórn
Þóris hergeirssonar er í vandræðum
í titilvörn sinni. FRéTTablaðið/anTon
S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð 29F i M M t U d a G U r 6 . d e S e M b e r 2 0 1 8
0
6
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
7
-0
9
2
C
2
1
A
7
-0
7
F
0
2
1
A
7
-0
6
B
4
2
1
A
7
-0
5
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
5
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K