Fréttablaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 20
B irta Ísólfsdóttir fatahönnuður stofnaði nýverið fyrirtækið S. Stefánsson & Co. með kærasta sínum Kristjáni Pétri Sæmunds
syni. Verkefnið hefur verið í
stöðugri þróun undanfarið en S.
Stefáns son & Co. framleiðir einstaka
hönnunarvöru sem hefur þá sér
stöðu að vera einangruð með 100%
sjálfbærum íslenskum æðardún.
„Merkið byggir á 60 ára fjöl
skyldusögu æðarræktar í Hrísey,“
segir Birta. „Á hverju ári tínum við
fjölskyldan æðardún og okkur
Kristján langaði að þróa aðrar
vörur úr dúninum en sængur,
líkt og hefur tíðkast hingað til.
Nafnið á fyrirtækinu kemur frá
afa hans Kristjáns sem hóf æðar
rækt í Hrísey í kringum 1960 og
við teljum okkur vera að halda
lífi í hugmyndafræði hans um
æðarrækt og fuglafriðun.“
Dúnninn kemur af villt
um fuglum en honum
er ýmist safnað þegar
fuglinn hefur lokið
útungun eða á síð
ustu dögum varps
ins, án neiðkvæðra
afleiðinga fyrir
fuglinn sjálfan.
„Varan er því eins
umhverfisvæn og
sjálfbær og hugs
ast getur. Auk þess
hefur æðarfuglinn
tilhneigingu til
þess að sækja í
landsvæði þar
sem bændur gæta
vistarvera hans og
er æðarrækt því
ótrúlegt samspil
manna og villtra
fugla,“ segir Birta.
Fyrstu vörur
S. Stefánsson &
Co. fara í sölu nú
um helgina og
eru það æðardúns
Halda hugmyndafræði afa á lofti
Fyrstu
vörur S.
Stefánsson
& Co. fara
í sölu nú
um helgina
og er það
þessi fallegi
æðardún-
strefill.
Birta Ísólfsdóttir stofnaði nýverið fyrirtækið S. Stefánsson & Co. með kærasta sínum. Þau hanna
fallega æðardúnstrefla fyrir jólin og stefna á að auka vöruúrvalið í kjölfarið. Fréttablaðið/Ernir
Fasteign vikunnar úr Fasteignablaði Fréttablaðsins
Um helgina fara í sölu
íslenskir æðardúnstreflar
sem fatahönnuðurinn
Birta Ísólfsdóttir hannar
undir nafninu S. Stefáns-
son & Co. Dúnninn er
eins umhverfisvænn
og sjálfbær og hugsast
getur og hentar vel fyrir
íslenskt veðurfar.
treflar sem koma í nokkrum litum.
Þeir eru hlýir og léttir og henta vel
fyrir íslenskt veðurfar.
„Við notum hágæða tæknileg
efni í ytra byrði til að tryggja að
einangrunin frá dúninum skili
sér,“ segir Birta. „Ég hef verið að
þróa vörulínuna í nokkurn tíma og
ýmsar hindranir hafa verið á leið
inni. Framleiðslan okkar fer fram
á Íslandi svo mér fannst tilvalið að
byrja á einhverju einfaldara en jakka
og datt þá í hug að gera trefla. Trefill
er líka eitthvað sem er alltaf gott að
eiga og þá sérstaklega hlýjan með
margvísleg notagildi.“
Næstu vörur sem er að vænta frá
Birtu og Kristjáni eru dúnvesti og
jakkar en svo munu þau hægt og
rólega stækka vöruframboðið þegar
á líður. Hægt er að nálgast vörurnar
á heimasíðu þeirra, sstefansson.co,
og í gegnum Facebooksíðu þeirra
og Instagram. „Takmarkað framboð
verður á öllum vörum okkar svo ég
mæli með að fólk tryggi sér eintak.
Síðan er þetta líka fullkomið í jóla
pakkann,“ segir Birta að lokum.
gunnthorunn@frettabladid.is
Á hverju ári tínum
við fjölskyldan
æðardún og okkur Kristján
langaði að þróa aðrar vörur
úr dúninum en sængur, líkt
og hefur tíðkast hingað til.
Birta Ísólfsdóttir
fatahönnuður
Falleg og stílhrein 3ja-4ra herbergja íbúð er til sölu við Rauðavað 23 í Reykjavík. Íbúðin er 104,9 fermetrar og á 2. hæð með sér bílastæði í upphitaðri og lokaðri bílageymslu með þvottaað-
stöðu. Góðar svalir eru til suðvesturs með fallegu og breiðu útsýni. Björt og vel skipulögð íbúð á góðum stað í Norðlingaholtinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og náttúru.
Tilveran
6 . d e s e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U d A G U r18 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
0
6
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
6
-B
F
1
C
2
1
A
6
-B
D
E
0
2
1
A
6
-B
C
A
4
2
1
A
6
-B
B
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
7
2
s
_
5
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K