Fréttablaðið - 06.12.2018, Side 20

Fréttablaðið - 06.12.2018, Side 20
B irta Ísólfsdóttir fata­hönnuður stofnaði nýverið fyrirtækið S. Stefánsson & Co. með kærasta sínum Krist­jáni Pétri Sæmunds­ syni. Verkefnið hefur verið í stöðugri þróun undanfarið en S. Stefáns son & Co. framleiðir einstaka hönnunarvöru sem hefur þá sér­ stöðu að vera einangruð með 100% sjálfbærum íslenskum æðardún. „Merkið byggir á 60 ára fjöl­ skyldusögu æðarræktar í Hrísey,“ segir Birta. „Á hverju ári tínum við fjölskyldan æðardún og okkur Kristján langaði að þróa aðrar vörur úr dúninum en sængur, líkt og hefur tíðkast hingað til. Nafnið á fyrirtækinu kemur frá afa hans Kristjáns sem hóf æðar­ rækt í Hrísey í kringum 1960 og við teljum okkur vera að halda lífi í hugmyndafræði hans um æðarrækt og fuglafriðun.“ Dúnninn kemur af villt­ um fuglum en honum er ýmist safnað þegar fuglinn hefur lokið útungun eða á síð­ ustu dögum varps­ ins, án neiðkvæðra afleiðinga fyrir fuglinn sjálfan. „Varan er því eins umhverfisvæn og sjálfbær og hugs­ ast getur. Auk þess hefur æðarfuglinn tilhneigingu til þess að sækja í landsvæði þar sem bændur gæta vistarvera hans og er æðarrækt því ótrúlegt samspil manna og villtra fugla,“ segir Birta. Fyrstu vörur S. Stefánsson & Co. fara í sölu nú um helgina og eru það æðardúns­ Halda hugmyndafræði afa á lofti Fyrstu vörur S. Stefánsson & Co. fara í sölu nú um helgina og er það þessi fallegi æðardún- strefill. Birta Ísólfsdóttir stofnaði nýverið fyrirtækið S. Stefánsson & Co. með kærasta sínum. Þau hanna fallega æðardúnstrefla fyrir jólin og stefna á að auka vöruúrvalið í kjölfarið. Fréttablaðið/Ernir Fasteign vikunnar úr Fasteignablaði Fréttablaðsins Um helgina fara í sölu íslenskir æðardúnstreflar sem fatahönnuðurinn Birta Ísólfsdóttir hannar undir nafninu S. Stefáns- son & Co. Dúnninn er eins umhverfisvænn og sjálfbær og hugsast getur og hentar vel fyrir íslenskt veðurfar. treflar sem koma í nokkrum litum. Þeir eru hlýir og léttir og henta vel fyrir íslenskt veðurfar. „Við notum hágæða tæknileg efni í ytra byrði til að tryggja að einangrunin frá dúninum skili sér,“ segir Birta. „Ég hef verið að þróa vörulínuna í nokkurn tíma og ýmsar hindranir hafa verið á leið­ inni. Framleiðslan okkar fer fram á Íslandi svo mér fannst tilvalið að byrja á einhverju einfaldara en jakka og datt þá í hug að gera trefla. Trefill er líka eitthvað sem er alltaf gott að eiga og þá sérstaklega hlýjan með margvísleg notagildi.“ Næstu vörur sem er að vænta frá Birtu og Kristjáni eru dúnvesti og ­jakkar en svo munu þau hægt og rólega stækka vöruframboðið þegar á líður. Hægt er að nálgast vörurnar á heimasíðu þeirra, sstefansson.co, og í gegnum Facebook­síðu þeirra og Instagram. „Takmarkað framboð verður á öllum vörum okkar svo ég mæli með að fólk tryggi sér eintak. Síðan er þetta líka fullkomið í jóla­ pakkann,“ segir Birta að lokum. gunnthorunn@frettabladid.is Á hverju ári tínum við fjölskyldan æðardún og okkur Kristján langaði að þróa aðrar vörur úr dúninum en sængur, líkt og hefur tíðkast hingað til. Birta Ísólfsdóttir fatahönnuður Falleg og stílhrein 3ja-4ra herbergja íbúð er til sölu við Rauðavað 23 í Reykjavík. Íbúðin er 104,9 fermetrar og á 2. hæð með sér bílastæði í upphitaðri og lokaðri bílageymslu með þvottaað- stöðu. Góðar svalir eru til suðvesturs með fallegu og breiðu útsýni. Björt og vel skipulögð íbúð á góðum stað í Norðlingaholtinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og náttúru. Tilveran 6 . d e s e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U d A G U r18 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð 0 6 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 A 6 -B F 1 C 2 1 A 6 -B D E 0 2 1 A 6 -B C A 4 2 1 A 6 -B B 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 7 2 s _ 5 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.