Fréttablaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 44
Bankastræti 4, Reykjavík • nlsn.is
VERIÐ HJARTARLEGA VELKOMIN
Í OPNUNARTEITI NIELSEN
Laugardaginn 8. desember milli kl. 11 og 19.
Vanti yður afmælisg jafir og yfirleitt aðrar tækifærisg jafir, þá munið
að við höfum ávallt slíkar g jafir fyrirligg jandi með mjög sanng jörnu verði.
Vorum að taka upp nýjar vörur.
- 20% afsláttur af öllum hönnunarvörum.
- Allir sem verzla fara í lukkupott og eiga möguleika á að vinna g jafabréf að verðmæti 20.000 kr.
Körfubolti Þegar stigahæsti leik-
maður körfuboltaliðs Davidson-
háskólans á síðustu leiktíð yfir-
gaf liðið í sumar áttaði Jón Axel
Guðmundsson sig á því að hann
gæti hrifsað til sín stærra hlutverk
í liðinu hvað stigaskor varðar. Jón
Axel varð fyrsti íslenski karlmaður-
inn til þess að komast í úrslitakeppni
háskólakörfuboltans og taka þátt í
marsfárinu svokallaða fyrr á þessu
ári. Davidson féll úr leik í 64 liða
úrslitum keppninnar. Hann fékk svo
viðurkenningu hjá skólanum sínum
fyrir að vera sá leikmaður sem sýndi
mestar framfarir með liðinu síðasta
vor. Jón Axel er núna á sínu þriðja
ári hjá Davidson, en á síðustu leiktíð
lék hann að meðaltali 35,8 mínútur
í leik og skilaði 13,2 stigum, sex frá-
köstum og 5,1 stoðsendingu ásamt
því að stela 1,3 boltum að meðal-
tali í leik en hann bætti sig á öllum
sviðum frá fyrsta tímabilinu.
Tröppugangurinn hefur haldið
áfram hjá honum og eins og staðan
er núna er hann efstur í öllum töl-
fræðiþáttum hjá liðinu. Hann hefur
skorað 19,4 stig að meðaltali í leik,
tekið 6,3 fráköst og gefið 4,8 stoð-
sendingar. Þá hefur hann þar að auki
stolið boltanum næstoftast af leik-
mönnum liðsins á leiktíðinni. Jón
Axel segir að þessar tölur og bæting
hans séu afrakstur þrotlausrar vinnu
í sumar.
„Þegar ég vissi að við værum
að missa okkar stigahæsta leik-
mann frá síðasta vetri þá var ég
staðráðinn í að stækka hlutverk
mitt í liðinu þegar kemur að því að
setja stig á töfluna. Ég vissi að það
yrði meðal annars leitað til mín
til þess að fylla skarðið sem hann
myndi skilja eftir sig í stigaskorun-
inni. Þjálfarinn ræddi svo sem ekk-
ert beint við mig um það hvernig
það ætti að vera, en ég fékk skilaboð
um að hlutverk mitt gæti stækkað
umtalsvert ef ég myndi vinna vel
í mínum málum,“ segir Jón Axel í
samtali við Fréttablaðið.
„Ég komst í samband við þjálfara
sem sá um Stephen Curry á sínum
tíma og ég komst í einkaþjálfun hjá
honum. Hann sér um einkaþjálfun í
körfuboltatengdum æfingum og er
afar fær á því sviði. Hann spurði mig
hvaða þætti ég vildi bæta í mínum
leik og ég nefndi boltatækni, milli-
löng skot og að klára færin upp við
hringinn. Það er meira en að segja
það að klára færin í kringum þá
hávöxnu leikmenn sem spila í þess-
ari deild og ég vildi bæta mig í því,“
sagði hann um æfingarnar í sumar.
„Þessi þjálfari opnaði nýjar
víddir fyrir mér og ég var að fram-
kvæma æfingar sem ég hafði aldrei
gert áður. Það var bæði ofboðslega
gaman að æfa undir hans hand-
leiðslu og ekki síður góð tilfinning
að finna fyrir því að æfingarnar séu
að skila sér í betri frammistöðu inni
á vellinum í leikjum. Mér finnst ég
vera öruggari með boltann, öflugri
upp við hringinn og skotnýtingin er
betri en í fyrra,“ segir þessi frábæri
leikstjórnandi enn fremur um kynni
sín af þjálfaranum.
Davidson-liðið hefur farið vel
af stað í Atlantic 10-deildinni í
háskólakörfuboltanum vestanhafs,
en liðið hefur haft betur í síðustu
fimm leikjum sínum í deildinni og
alls átta af fyrstu níu leikjunum.
„Við erum með nokkuð breytt lið
frá því í fyrra og nokkuð marga unga
leikmenn sem eru að leika stórt hlut-
verk í fyrsta skipti. Mér finnst liðið
betra en í fyrra og ég tel okkur hafa
alla burði til þess að vinna okkar
deild og fara svo lengra en við gerð-
um í mars á síðasta ári. Það er alla-
vega mín tilfinning. Við erum hins
vegar meðvitaðir um að það er margt
sem við getum bætt í okkar leik þrátt
fyrir að úrslitin hafi verið hagstæð,“
segir Grindvíkingurinn um fram-
haldið. hjorvaro@frettabladid.is
Einkaþjálfari Currys opnaði nýja vídd
Körfuboltamaðurinn Jón Axel Guðmundsson er í töluvert stærra hlutverki hjá liði Davidson-háskólans á þessari leiktíð en hingað til.
Peyton Aldridge, stigahæsti leikmaður liðsins í fyrra, yfirgaf liðið í sumar og Jón Axel hefur verið einn af þeim sem fyllt hafa skarð hans.
Jón Axel Guðmundsson er hér lengst til vinstri til varnar í leik með liði Davidson-háskólans. NorDicphotos/Getty
Mér finnst ég vera
öruggari með
boltann, öflugri upp við
hringinn og skotnýtingin er
betri en í fyrra.
Jón Axel Guðmundsson
6 . d e s e m b e r 2 0 1 8 f i m m t u d A G u r30 s p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
0
6
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
A
7
-0
E
1
C
2
1
A
7
-0
C
E
0
2
1
A
7
-0
B
A
4
2
1
A
7
-0
A
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
5
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K