Fréttablaðið - 19.12.2018, Blaðsíða 18
Dómkvaddir matsmenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að hátt í 1.500 lán í lánasafni Byrs, sem Íslandsbanki tók
yfir haustið 2011 og matsmönn
unum var falið að verðmeta, hafi
verið ofmetin um ríflega 2,2 millj
arða króna í bókum Byrs um mitt ár
2011. Til samanburðar hefur Íslands
banki gert kröfu á hendur Gamla Byr
sem hljóðar upp á rúma 7 milljarða
króna.
Í bréfi sem stjórn Gamla Byrs sendi
kröfuhöfum í síðasta mánuði og
Markaðurinn hefur undir höndum
segir hún að niðurstaða matsmann
anna, sem lá fyrir 9. nóvember, sé
skýrt merki um að krafa Íslands
banka sé „verulega uppsprengd“.
Er það auk þess mat Gamla Byrs
að umrætt tveggja milljarða króna
ofmat á verðmæti lánasafnsins hafi
verið innan viðunandi skekkju
marka, ekki síst þegar haft sé í huga
hvenær og við hvaða kringumstæður
lánin hafi verið keypt. Í ljósi þess að
Íslandsbanki hafi keypt eignir af
slita búi Gamla Byrs og ríkissjóði sem
hafi verið metnar á 140 milljarða
króna sé krafa upp á tvo milljarða
króna „óveruleg“.
Engu að síður segist Gamli Byr
telja að skýrsla matsmannanna sé
háð ýmsum annmörkum. Lýsir félag
ið sig ósammála þeirri meginniður
stöðu matsgerðarinnar að lán Byrs
hafi verið ofmetin um meira en tvo
milljarða króna.
Íslandsbanki segir í svari við fyrir
spurn Markaðarins að matsgerðin
staðfesti í megindráttum að ársreikn
ingar og uppgjör Byrs hafi ekki verið
í samræmi við alþjóðlega reiknings
skilastaðla og afskriftarreglur Byrs.
Umræddir matsmenn, endurskoð
endurnir Lúðvík Karl Tómasson og
María Sólbergsdóttir, skiluðu mats
gerð sinni í síðasta mánuði eftir fjög
urra og hálfs árs vinnu. Þeim var falið
að meta virði 1.474 lána í lánasafni
Byrs sem fylgdu með í kaupunum
þegar Íslandsbanki keypti Byr á 6,6
milljarða króna haustið 2011 en
bankinn telur að ofmat á verðmæti
lánasafnsins hafi valdið sér fjártjóni.
Samhliða matsbeiðninni lagði bank
inn fram kröfu á hendur Gamla Byr
upp á 6,7 milljarða króna auk vaxta
og 1 milljarð gegn ríkinu auk vaxta.
Niðurstaða matsmannanna er sú
að umrædd lán hafi verið ofmetin
um ríflega 2 milljarða króna í bókum
Byrs í lok árs 2010 og 2,2 milljarða
króna í bókum félagsins um mitt ár
2011. Þá töldu matsmennirnir að
ársreikningar Byrs hefðu ekki verið
í samræmi við alþjóðlega reiknings
skilastaðla IFRS og átti það sama við
um útreikninga Íslandsbanka og
KPMG að baki kröfu bankans.
Segir matið háð annmörkum
Í áðurnefndu bréfi Gamla Byrs, sem
lauk nauðasamningum í janúar árið
2016, segist félagið búast við því að
Íslandsbanki lækki kröfu sína í sam
ræmi við niðurstöðu matsmann
anna. Það geti ekki verið neinn
grundvöllur fyrir hærri kröfu. Samt
sem áður geri félagið margs konar
fyrirvara við efnislegar niðurstöður
matsmannanna.
Gamli Byr bendir til að mynda á
að stór hluti þeirra upplýsinga og
skjala sem vísað er til í matsgerðinni
til stuðnings þeirri niðurstöðu að
lán Byrs hafi verið ofmetin hafi verið
kynntur öllum hugsanlegum kaup
endum, þar á meðal Íslandsbanka, í
söluferli Byrs á sínum tíma. Íslands
banka hafi því átt að vera kunnugt
um upplýsingarnar enda hafi bank
inn gert ítarlega áreiðanleikakönnun
á eignum Byrs.
Til viðbótar telur Gamli Byr að
forsendurnar að baki niðurstöðu
matsgerðarinnar hafi byggst á afar
ströngum túlkunum á reiknings
skilastöðlum og gangvirðismötum.
Aðferðafræði matsmannanna hafi
jafnframt verið óljós og útreikn
ingar þeirra háðir nokkurri óvissu.
Enn fremur hafi ekki verið lagt mat
á þær tryggingar sem lágu að baki
lánunum.
Er tekið fram í bréfinu að skortur á
nákvæmni í matsgerðinni, svo sem í
tengslum við niðurstöðu hennar,
aðferðafræði og forsendur, hafi vakið
undrun á meðal lögfræðinga og ráð
gjafa Gamla Byrs, enda hafi mats
mennirnir unnið að matinu í meira
en fjögur og hálft ár. Segir í bréfinu
að svo virðist sem matsmennirnir
hafi átt erfitt með að svara mats
spurningunum eins og þær hafi verið
settar fram af hálfu Íslandsbanka.
Gamli Byr segir að matsgerðin
leiðrétti ekki þá bresti sem séu á
kröfu Íslandsbanka og undirstriki
hve mikil óvissa ríki um kröfuna.
Matsgerðin sé því til þess fallin að
skjóta styrkari stoðum undir kröfu
Gamla Byrs um að málinu verði
vísað frá dómi.
Verði málinu hins vegar ekki vísað
frá er það mat lögfræðinga Gamla
Byrs að matsgerðin ætti að styðja við
málsvarnir félagsins.
Íhuga að selja kröfur sínar
Eins og fjallað hefur verið um í Mark
aðinum hafa tilraunir Gamla Byrs til
þess að ná sáttum við Íslandsbanka
ekki borið árangur. Bankinn hafnaði
til að mynda sáttatillögu Gamla Byrs
síðasta haust en félagið taldi gagn
tilboð bankans, sem var það sama
og hann lagði fram í byrjun ársins,
óviðunandi.
Samkvæmt heimildum Markað
arins var tilboð Gamla Byrs lítillega
hærra en gert var ráð fyrir í óform
legum viðræðum deilenda fyrir um
ári. Var þá áætlað að ríkið myndi
fá um þrjá milljarða króna í sinn
hlut. Slík greiðsla hefði þá verið þrí
þætt, í formi tveggja milljarða króna
stöðugleikaframlags, um 750 millj
óna króna lausnargjalds til Íslands
banka og útgreiðslu til bankans sem
kröfuhafa í slitabúinu, en bankinn á
um átta prósent krafna í Gamla Byr.
Kröfuhafar Byrs, að stærstum
hluta þýskir bankar og sparisjóðir
sem eru upprunalegir lánveitendur
sparisjóðsins, eru orðnir langþreyttir
á deilunni og vinnubrögðum Íslands
banka, að sögn þeirra sem þekkja vel
til mála, og eru sumir þeirra sagðir
íhuga að selja kröfur sínar.
Útlán Byrs ofmetin um tvo milljarða
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Bankinn hefur lagt fram kröfu á hendur Gamla Byr upp á 6,7 milljarða króna auk vaxta og 1 milljarð gegn ríkinu
auk vaxta. Eins og greint hefur verið frá í Markaðinum hafa tilraunir Gamla Byrs til þess að ná sáttum við bankann ekki borið árangur. FréttaBlaðið/Ernir
Útlán í lánasafni Byrs,
sem Íslandsbanki tók
yfir haustið 2011, voru
ofmetin um ríflega tvo
milljarða króna að mati
dómkvaddra mats-
manna. Gamli Byr segir
matsgerðina sýna að
krafa Íslandsbanka upp
á sjö milljarða króna sé
verulega uppsprengd.
Bankinn hefur óskað
eftir frekari rökstuðningi
frá matsmönnunum.
Krefjast frekari svara frá matsmönnum
Íslandsbanki segir í svari við
fyrirspurn Markaðarins að í mats-
gerðinni hafi afskriftarþörfin við
kaupin á Byr verið metin lægri en
útreikningar bankans og KPMG
hafi leitt í ljós. Af þeim sökum hafi
bankinn óskað eftir frekari rök-
stuðningi frá matsmönnunum.
„Ákvörðun um hvort óskað
verður eftir yfirmati ræðst að
nokkru af rökstuðningi frá undir-
matsmönnum, þegar hann berst,“
segir í svarinu.
Gestur Jónsson, lögmaður
Gamla Byrs, segist í samtali við
Markaðinn hafa mótmælt um-
ræddri kröfu bankans. „Þetta eru
fjölmargar nýjar spurningar sem
ekki er hægt að krefjast skriflegra
svara um þegar matsmenn eru
búnir að skila skriflegri matsgerð,“
segir hann.
7,7
milljarðar króna er krafa
Íslandsbanka á hendur
Gamla Byr og ríkissjóði.
Færsluhirðir WOW air heldur nú
eftir umtalsvert stærri hluta en
áður af fargjöldum sem farþegar
flugfélagsins greiða þangað til flug
ferð hefur verið farin. Þetta kemur
fram í bréfi sem félagið skrifaði
skuldabréfaeigendum sínum síð
asta föstudag.
Aukin varfærni færsluhirðisins
er í bréfinu nefnd sem dæmi um
þá vaxandi íhaldssemi sem hefur
gætt á meðal kröfuhafa WOW air
undanfarna mánuði. Afleiðingin
sé sú að þau kjör sem flugfélaginu
bjóðist hafi farið versnandi.
Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í
sumar að færsluhirðar skilgreindu
áhættu gagnvart íslensku flug
félögunum með afar mismunandi
hætti. Í tilfelli Icelandair skilaði
fjárhæð fargjalda sér yfirleitt strax
inn á reikninga félagsins en í til
felli WOW air héldu færsluhirð
arnir eftir 80 til 90 prósentum af
fjárhæðinni þar til flugferð hefði
verið farin.
Í bréfi WOW air til skuldabréfa
eigendanna, þar sem greint er frá
fyrirhugaðri fjárfestingu Indigo
Partners í félaginu fyrir allt að 75
milljónir dala, um 9,2 milljarða
króna, er tekið fram að fjárfestingin
sé háð því að eigendur skuldabréf
anna samþykki ákveðnar breyt
ingar á skilmálum bréfanna.
Ein breytingin felst í því að
heimila flugfélaginu að
greiða hluthöfum sínum
– sem verða þeir Skúli
Mogensen, forstjóri og
núverandi eigandi, og
Indigo ef kaup síðar
nefnda félagsins ganga
eftir – sérstaka þóknun (e. manage
ment fee) upp á allt að 1,5 milljónir
dala, jafnvirði um 184 milljóna
króna, á ári.
Til viðbótar munu skuldabréfa
eigendurnir kjósa um lengingu
á lánstímanum úr þremur árum
í fimm ár og niðurfellingu kaup
réttar þeirra að hlutafé í flugfélag
inu, svo dæmi séu nefnd. Atkvæða
greiðslunni lýkur 17. janúar.
Eins og fram kemur í bréfi WOW
air áformar Indigo Partners að
kaupa „einhver“ hlutabréf í flug
félaginu sem og gefa út breytanleg
skuldabréf til þess að styðja við
uppbyggingu félagsins til fram
tíðar. – kij
Færsluhirðir WOW air heldur meiru eftir af fjárhæð fargjalda
9,2
milljarðar króna er fyrir-
huguð fjárfesting Indigo
Partners, að hámarki, í
WOW air.
Skúli Mogen-
sen, forstjóri
og eigandi
WOW air.
1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U d A G U r4 markaðurInn
Hörður Ægisson
hordur@frettabladid.is
Kristinn Ingi Jónsson
kristinningi@frettabladid.is
1
9
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
D
9
-7
B
3
4
2
1
D
9
-7
9
F
8
2
1
D
9
-7
8
B
C
2
1
D
9
-7
7
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K