Fréttablaðið - 19.12.2018, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 19.12.2018, Blaðsíða 28
Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is Kjörið er að fara út á leikvöll með heitt kakó og nesti og halda jólaboð. Og ef það vantar gesti má alltaf búa þá til. Komdu þér á fætur Jújú, það verður alls konar skemmti legt í sjónvarpinu og þessar jólabækur lesa sig ekki sjálfar en þú þarft nauðsynlega að koma þér og þínum út undir bert loft að minnsta kosti einu sinni á dag yfir hátíðarnar. Engin ástæða til að fara í margra tíma fjallgöngu nema það sé það sem þig langar, það er til dæmis hægt að fara út á tún eða á leikvöllinn í nágrenninu Hress um jólin með útileikfang eins og frisbídisk eða fötu og skóflu ef það er góður snjór og leika sér aðeins. Jólaandinn er nefnilega líka súrefni. Farðu varlega í veisluna. Rannsóknir sýna að meðalmaður í Bretlandi borðar um 3.000 hitaein- ingar í einni máltíð á jóladag sem er rúmlega ráðlagður dagskammtur af hitaeiningum! Svo mikil neysla á stuttum tíma veldur miklu álagi á líkamann og getur leitt af sér bæði meltingartruflanir og brjóstsviða og einnig mun alvarlegri kvilla eins og blóðþrýstings- og hjartavanda- mál, einkum ef maturinn er mjög feitur og saltur. Eins og alltaf er hófið best í hófinu, alveg ástæðu- laust að vera í einhverri megrun en jafnástæðulaust að troða sig út svo verkjar undan. Gott ráð er að fá sér einu sinni á diskinn, borða rólega og njóta og taka þér svo tuttugu mínútur til að athuga hvort þig langar raunverulega í meira en það er tíminn sem það tekur skilaboð að berast frá maga og upp í heila. Ef þig langar í meira er engin ástæða til að örvænta: á jólunum er alltaf nóg til frammi. Varastu veirurnar Það er fátt fúlla en að vera með pest á jólunum. Gerðu varúðarráð- stafanir með því að borða hollan mat fyrir jól, setja höfuðið til hliðar þegar þú faðmar fólk svo þú fáir ekki bakteríurnar þess beint í önd- unarfærin og ástunda handþvott. Svo er líka ráð að styrkja ónæmis- kerfið með því að borða hollan mat, taka vítamínin þín og ástunda heilbrigt líferni eftir föngum á jóla- föstunni. Melónur og vínber fín Eitt það besta sem hægt er að gera á jólunum er að muna eftir ávöxt- unum. Með því að grípa einu sinni epli eða mandarínu í staðinn fyrir smáköku númer 140 -142 kemurðu meltingunni í betra lag og færð trefjar, vítamín og steinefni. (Og, nei, súkkulaði er hvorki ávöxtur né grænmeti.) Beittu huganum Í staðinn fyrir að slökkva á þér fyrir framan sjónvarpið, notaðu hugann með því að fara í leiki eða spila spil eins og Trivial Pursuit eða Kröflu. Það er alltaf einhver sem vill spila í fjölskyldujólaboðinu og þú getur líka boðið einhverjum skemmtileg- um í spil milli jóla og nýárs. Ef þér finnst leiðinlegt að spila er ágætt að nýta hugarorkuna í að setja saman leikföng eða tæki sem komu upp úr jólapökkunum eða kryfja lífið og tilveruna með góðum vini eða vinkonu. Og umfram allt, njóttu hátíðanna með hjartanu! Á jólunum eigum við það til að stinga okur á bólakaf í lífsins lysti- semdir en best er að ganga hægt um gleðinnar dyr. Það er vel hægt að njóta jólanna án þess að gjalda fyrir það í heilsufari og mittismáli. Ávextir og ber eru nauðsynlegur hluti af jólamataræðinu og hér má til dæmis sjá góða aðferð til að jóla það upp og gleðja yngstu kynslóðina. Reynið eftir megni að forðast þessar aðstæður dagana fyrir jól svo flensan verði ekki jólagesturinn ykkar. Jólaspil eru góður og gegn siður á mörgum heimilum enda bæði góð fyrir andlega og félagslega vellíðan sem er mikilvægt að huga að á jólunum. 20% AFSLÁTTUR AF YFIRHÖFNUM Í JÓLAPAKKANN HENNAR IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk. opið til 22 alla daga. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . d e s e M B e R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R 1 9 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 D 9 -7 6 4 4 2 1 D 9 -7 5 0 8 2 1 D 9 -7 3 C C 2 1 D 9 -7 2 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.