Fréttablaðið - 19.12.2018, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 19.12.2018, Blaðsíða 26
Mozart við kertaljós Styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins, Reykjvíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ og Garðabæ Miðasala við innganginn og á tix.is - Miðaverð kr. 3.000 / 2.000 Hafnarfjarðarkirkju miðvikudag 19. des. kl 21.00 Kópavogskirkju fimmtudag 20. des. kl 21.00 Garðakirkju föstudag 21. des. kl 21.00 Dómkirkjunni í Reykjavík laugardag 22. des. kl 21.00 Camerarctica Mozart by candlelight Kammertónlist á aðventu 2018 Þessar kökur heita Norskar piparkökur á mínu heimili en þær hef ég bakað allan minn búskap,“ segir Elín sem starfar sem skrifstofustjóri svæfinga- og gjörgæsludeildar Landspítalans í Fossvogi. Alla aðventuna býður hún upp á heimabakaðar pipar- kökur á skrifstofunni sinni og fær óvenju margar heimsóknir enda renna smákökurnar út. „Ég er búin að baka tvær porsjónir fyrir þessi jól en yfirleitt baka ég kökurnar tvisvar til þrisvar á aðventunni.“ Piparkökurnar hefur Elín bakað allan sinn búskap en þær eiga sér heillanga sögu. „Mamma bakaði þessar kökur allan sinn búskap og hún fékk þessa uppskrift frá Sigríði vinkonu sinni sem var mun eldri en hún, fædd 1916. Sigríður aftur á móti fékk uppskriftina frá norskri tengdamóður sinni sem var fædd á nítjándu öld og því má segja að þetta séu nítjándu aldar pipar- kökur,“ lýsir Elín glaðlega. En er einhver munur á þessum pipar- kökum og öðrum? „Þessar eru bakaðar eins og spesíur. Þær eru ekki flattar út og málaðar heldur hnoðaðar, rúllaðar upp í pylsur, kældar og sneiddar niður.“ Norskar piparkökur 500 g hveiti 250 g sykur 250 g smjör 1 egg 1 msk. síróp 3 tsk. natron 2 tsk. kanill ½ tsk. pipar Allt hnoðað vel saman og svo rúllað upp og kælt í a.m.k. klukku- tíma. Skorið í þunnar sneiðar og bakað við 200°C í u.þ.b. 15 mín. Nítjándu aldar piparkökur Elín Helga Jóhannesdóttir Sanko er einstaklega vinsæl meðal samstarfsfólks síns á Borgarspítalanum á aðventunni enda býður hún upp á sögulegar smákökur. „Sem nautna- seggur er ég voðalega duglegur að leyfa mér ýmis- legt í tengslum við mat og drykk, hvort sem er á að- ventunni eða þar fyrir utan,“ segir Ragnar Freyr Ing- varsson, læknirinn í eldhúsinu. Ragnar Freyr Ingvarsson læknir hefur haldið úti matarblogg-inu Læknirinn í eldhúsinu (laeknirinnieldhusinu.com) í rúm tólf ár auk þess sem hann hefur gefið út matreiðslubækur og stýrt eigin matreiðsluþáttum. Hvenær sóttir þú fyrsta jólahlað- borðið? Ætli það hafi ekki verið fyrir um 20 árum þegar ég var enn lækna- nemi. Ég fór með eiginkonu minni og kollega mínum og eiginkonu hans. Þetta var eftirminnileg kvöldstund bæði fyrir þær sakir að maturinn var algerlega ljúffengur og líka vegna þess að ég borðaði mig næstum til ólífis. Næsta ár fór ég svo á jólahlaðborð með sama félagsskap en þá á Hótel Óðinsvé þar sem Siggi Hall réð ríkjum. Mig minnir að þar hafi verið danskt þema sem var einkar vel heppnað. Ég man eftir því að hafa lært af reynslu fyrra árs og fór aðeins rólegar í sakirnar. Það var glæsi- legt borð sem hann bauð upp á, allt frá purusteik til andarsteikur, mjög ljúffengt. Heita lifrarkæfan með sveppum og beikoni kom mér einna helst á óvart. Sækir þú jólahlaðborð árlega? Ekki árlega en kannski annað hvert ár. Ég bjó lengi erlendis og hef prófað þó nokkra staði og tegundir hlaðborða þar. Í ár prófaði ég jóla- borðið hjá Úlfari Finnbjörnssyni á Grand Hóteli. Hann er magnaður kokkur og ég á vel flestar bækurnar hans. Hvaða jólamatur er bestur? Jólin eru tími hefða og nostalgíu. Ég hef aldrei náð neinu sambandi við að prófa eitthvað nýtt á til dæmis aðfangadag eða jóladag. Þar er haldið í hefðirnar. Ég vil graflax og hamborgarhrygg á aðfangadag og kalkún með öllu tilheyrandi á jóladag. Á gamlársdag má vera með eitthvað flipperí! Leyfir þú þér eitthvað sérstakt um jólin? Sem nautnaseggur er ég voðalega duglegur að leyfa mér ýmislegt í tengslum við mat og drykk, hvort sem er á aðventunni eða þar fyrir utan. En það verður að viður- kennast að það er aðeins gefið í um hátíðirnar. Hvernig hefur aðventan verið hingað til? Ég hef reynt að slaka á og passa upp á að vera ekki með neitt jóla- stress. Ég hef því reynt að einbeita mér að því að vera heima um aðventuna í faðmi fjölskyldunnar. Tími hefða og nostalgíu Elín Helga Jó- hannesdóttir Sanko býður vinnufélögum sem líta við á skrifstofunni hennar upp á ljómandi góðar pipar- kökur. MyNd/ SIgtRygguR ARI Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Piparkökurnar góðu hvíla í jóla- sveinakörfu sem margir samstarfs- félagar Elínar eru farnir að þekkja vel. 4 KyNNINgARBLAÐ FÓLK 1 9 . d E S E M B E R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R 1 9 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 D 9 -8 A 0 4 2 1 D 9 -8 8 C 8 2 1 D 9 -8 7 8 C 2 1 D 9 -8 6 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.