Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.12.2018, Qupperneq 37

Fréttablaðið - 19.12.2018, Qupperneq 37
Suðurhrauni 1 | 210 Garðabæ | Sími: 59 50 300 | www.isafold.is Kæru landsmenn Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Það gekk ýmislegt á hjá Alþjóðaknattspyrnu-sambandinu FIFA á árinu. Heimsmeistara-mótið var hin besta skemmtun en ein áhugaverðasta viðureign ársins var þó þegar kosið var um hvort mótið yrði haldið í Marokkó eða Norður- Ameríku árið 2026. Ljóst var að forsvarsmenn FIFA höfðu mikinn áhuga á peningunum sem í boði voru vestanhafs en pólitík leikur sem fyrr lykilhlutverk hjá sambandinu og skiptust aðildarþjóðir í gamalkunn- ar fylkingar í aðdraganda kjörsins. Donald Trump Bandaríkjaforseti lét ekki sitt eftir liggja og hótaði að þau lönd sem styddu Marokkó gætu ekki treyst á pólitískan stuðning Banda- ríkjanna. Hann braut þar með reglur FIFA sem banna afskipti stjórnmála- manna af slíkum ákvörðunum. Upp- hlaup hans hafði þó ekki verri afleið- ingar en svo að Ameríkuþjóðirnar hlutu 2/3 atkvæða. Knattspyrnu- áhugafólk í Tjad og Síerra Leóne var hins vegar ekki jafn heppið þar sem landsliðum þjóðanna var bönnuð þátttaka í alþjóðlegri knattspyrnu á árinu vegna beinna afskipta íþrótta- málaráðherra landanna af yfirstjórn knattspyrnumála. En aftur að HM 2026. Áfram hélt farsinn þegar Fatma Diouf Samo- ura, aðalritari FIFA, var rannsökuð vegna ásakana um alvarlegan hags- munaárekstur þar sem hún tengd- ist gömlu Liverpool-kempunni El Hadji Diouf fjölskylduböndum, en hann var erindreki umsóknar Mar- okkó. Því var haldið fram af blaða- mönnum breska ríkisútvarpsins að samsæriskenningin væri runnin undan rifjum forseta FIFA, Gianni Infantino, sem talið var að styddi umsókn Ameríkuríkjanna. Ekkert varð þó úr málinu þar sem í ljós kom að Samoura og Diouf eru ekki skyld. Hvað sem allri pólitík líður er þó ljóst hvað vó þyngst varðandi valið á milli þessara tveggja umsækjenda. Formaður knattspyrnusambands Bandaríkjanna lofaði FIFA um 1.400 milljarða króna hagnaði vegna mótsins, sem er sambærilegt hagn- aði síðustu fjögurra móta til samans. Fyrir þessa upphæð mætti staðgreiða Manchester United, Real Madrid og Barcelona. Tvö ný mót á 3.000 milljarða Fjármunina má nýta í ýmislegt og íburðinn vantar ekki hjá samband- inu. Höfuðstöðvar þess voru dýrari en Harpa, ársþingið kostaði meira en Eurovision og rekstrarkostnaður FIFA-safnsins, sem enginn heim- sækir, er meiri en Þjóðminjasafns Íslands. Fjármálaóreiðan hefur verið með hreinum ólíkindum en vegna hagnaðar af heimsmeistaramótum hefur sambandinu þó tekist að safna um 200 milljarða króna varasjóði á undanförnum 16 árum. Það virðist samt vera langt í frá nóg fyrir suma. Infantino forseti þurfti þó að játa sig sigraðan í haust þegar hann var gerður afturreka með hugmyndir að tveimur nýjum mótum á þingi sambandsins. Um var að ræða nýja deildarkeppni landsliða og alþjóð- lega útgáfu Meistaradeildarinnar. Ótilgreindur aðili átti að eiga rétt innan við helming mótanna og greiða 3.000 milljarða króna fyrir, andvirði landsframleiðslu Íslands á yfirstandandi ári. Eins ótrúlegt og það hljómar neitaði Infantino að gefa upp hver þessi fjárfestir var en síðar tókst fjölmiðlum að rekja fjár- magnið til ríkissjóðs Sádi-Arabíu. Raunar hitti Infantino Mohammed bin Salman, hinn umdeilda krón- prins Sáda, þrisvar sinnum á árinu, meðal annars á opnunarleik HM þar sem þeir skemmtu sér konunglega með Vladimír Pútín, forseta Rúss- lands. Eðlilega voru forsvarsmenn UEFA, evrópska aðildarsambands FIFA, ekki hrifnir af þessari beinu sam- keppni við arðbærustu mót Evrópu og komu í veg fyrir að eitthvað yrði úr hugmyndum Infantino, í bili að minnsta kosti. Forseti UEFA, Aleks- ander Ceferin, sagði Infantino blind- an af græðgi og sakaði hann um að reyna að selja sál knattspyrnunnar. Bannað að gagnrýna Rétt eins og undanfarin ár höfðu fjölmiðlar vart undan við að greina frá spillingarmálum innan knatt- spyrnuhreyfingarinnar á árinu, en ólíklegra er þó orðið að meiriháttar breytingar verði innan frá. Sú breyt- ing var nefnilega gerð á siðareglum sambandsins að starfsfólki aðildar- sambanda og -félaga er hreinlega bannað að tala illa um sambandið sjálft eða starfsfólk þess, í tengslum við heimsmeistaramót. Það hefur væntanlega verið erfitt fyrir suma að halda í sér þegar fram kom við vitna- leiðslur fyrir dómi í Bandaríkjunum að fyrrverandi forseti argentínska og suðurameríska knattspyrnusam- bandsins hafi þegið 120 milljónir króna í mútur fyrir að greiða Katar atkvæði í kjöri um staðsetningu HM 2022. Ekki var það skárra þegar fyrrverandi meðlimur FIFA-ráðsins sagðist á dögunum hafa verið boðnir tugir milljóna króna fyrir að greiða Rússum atkvæði sitt vegna mótsins glæsilega sem fram fór í ár. Hátt í 30 áhrifamenn úr knatt- spyrnuhreyfingunni hafa játað glæpi sína fyrir dómi eftir að rannsókn bandarískra yfirvalda á spillingar- málum hófst um árið, meðal annars fyrrverandi forsetar knattspyrnu- sambanda en ásakanir um fjármála- misferli ná aftur um áratugi. Segja má að spilling hafi verið svo almenn meðal áhrifamesta fólks alþjóða- knattspyrnunnar að FIFA hafi varla verið viðbjargandi þegar Sepp Blatter hrökklaðist frá völdum með milljarða í vasanum. En er staðan mikið betri í dag? Í forsetatíð Infant- ino hefur mikið verið rætt um siðbót en þegar hann var sjálfur undir smá- sjá siðanefndar sambandsins í fyrra leysti hann nefndina upp að fullu. Nýr meðlimur nefndarinnar, Sundra Rajoo, var handtekinn af yfirvöldum í Malasíu í nóvember vegna gruns um spillingu. Hann sagði sig í kjöl- farið frá störfum fyrir nefndina. FIFA hagnaðist um 400 milljarða króna á HM í Rússlandi. Það er því eitthvað til í buddunni til að halda jólin hátíðleg. Draugar liðinna spill- ingarmála munu eflaust banka upp á í höfuðstöðvunum á jólanótt, en það er svo sem nóg til fyrir þá líka. Trump, Sádar, spilling og FIFA Björn Berg Gunnarsson fræðslustjóri Íslandsbanka FIFA hagnaðist um 400 milljarða króna á HM í Rússlandi. Það er því eitthvað til í buddunni til að halda jólin hátíðleg. 11M I Ð V I K U D A G U R 1 9 . D e s e M b e R 2 0 1 8 MARkAðuRInn 1 9 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 D 9 -8 E F 4 2 1 D 9 -8 D B 8 2 1 D 9 -8 C 7 C 2 1 D 9 -8 B 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.