Fréttablaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 2
Veður Gengur í norðan 20-28 m/s, fyrst V-til, en síðar einnig fyrir austan og kólnar í veðri. Hvassast verður á Vestfjörðum, Austfjörðum og undir Vatnajökli. Snjókoma á norðanverðu landinu, en slydda eða rigning með köflum syðra. Lægir víðast hvar og rofar til þegar líður á daginn og frystir um land allt. SJÁ SÍÐU 26 Skotglaðir Íslendingar Það var margt um manninn á flugeldasölu björgunarsveitarinnar Ársæls í Gróubúð á Grandagarði í gær. Þessar stúlkur virtu fyrir sér flugeldapakk- ann Tralla, á meðan afi þeirra hafði mögulega augastað á einhverju örlítið kraftmeira. Flugeldasala er langstærsta fjáröflunarleið Slysavarnafélags- ins Landsbjargar og þannig hefur skotgleði landsmanna stuðlað að skilvirku starfi björgunarsveita víða um land. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR AFGANISTAN „Ég get ekki sagt að ég hafi saknað jólastressins, ofspilunar á jólalögum í útvarpinu og neyslu- brjálæðisins sem oft einkennir hátíðarnar heima. Auðvitað sakna ég samverustunda við vini og fjöl- skyldu og þó ég skjóti sjaldnast upp flugeldum sjálf, þá verður skrítið að sjá enga flugelda á áramótunum,“ segir Brynja Dögg Friðriksdóttir, starfsmaður Íslensku friðargæslunn- ar í Kabúl, um jólahaldið í herstöð í afgönsku höfuðborginni. Brynja Dögg hefur verið í Afgan- istan frá því í lok janúar en hún starfar á fjölmiðla- og almanna- tengslaskrifstofu verkefnisins Resol- ute Support sem er á vegum NATO. Verkefni hennar felst í myndbanda- gerð og myndatökum fyrir sam- félagsmiðla og ferðast hún töluvert milli herstöðva vegna vinnunnar. „Ég var búin að vera á viðbragðs- lista Íslensku friðargæslunnar í nokkur ár en í fyrra var haft sam- band við mig og spurt hvort ég hefði áhuga á að starfa í Afganistan í eitt ár. Mér fannst ég ekki geta hafnað þessu tækifæri enda óvíst hvort það myndi bjóðast aftur,“ segir Brynja Dögg sem hefur bakgrunn úr fjöl- miðlum en hefur síðustu ár unnið sem verktaki við kvikmyndagerð. Í herstöðinni þar sem Brynja Dögg býr má finna fulltrúa flestra þeirra landa sem eru aðilar að verk- efninu en þau eru 41. „Við Norður- landabúarnir eigum okkar eigið félagsheimili sem heitir því virðu- lega nafni Nordic Palace. Þar héld- um við jól í norrænum anda og við verðum líka þar um áramótin. Dan- irnir sem búa hérna fengu sendan jólamat, andabringu, puru steik og ris à l’amande sem ég og einn Finni njótum góðs af.“ Sjálf fékk Brynja senda nokkra pakka frá Íslandi. „Ég fékk malt og appelsín og svo bað ég sérstaklega um laufabrauð. Það var reyndar orðið að laufamylsnu þegar það kom til Kabúl og ég hef setið ein að henni.“ Nú styttist óðum í heimkomu Brynju en hún segir að þessi tími hafi verið bæði skemmtilegur og lærdómsríkur. „Afganistan og Afganar eiga sérstakan stað í hjarta mínu eftir dvöl mína hér. Afganar búa yfir miklum dug og kjarki sem sást best í þingkosningunum í október þegar milljónir manna og kvenna stóðu í löngum biðröðum til að kjósa þrátt fyrir ótryggt ástand. Það er óskandi að nýtt ár færi Afgön- um langþráðan frið eftir hátt í 40 ára stríðsátök svo uppbygging geti hafst hér af fullum krafti.“ sighvatur@frettabladid.is Óskandi að nýja árið færi Afgönum frið Brynja Dögg Friðriksdóttir, sem starfar hjá Íslensku friðargæslunni, hélt upp á jólin í herstöð í Kabúl. Hún fékk sent malt og appelsín en laufabrauðið varð að mylsnu á leiðinni. Hún segir dvölina í Afganistan hafa verið lærdómsríka. Brynja Dögg hefur verið í Afganistan í tæpt ár. Afganistan og Afganar eiga sér- stakan stað í hjarta mínu eftir dvöl mína hér. Brynja Dögg Frið- riksdóttir SAMFÉLAG Sæbraut í Reykjavík verð- ur lokuð í dag frá klukkan 11.00 til 13.30 vegna Gamlárshlaups ÍR sem farið verður í 43. skipti í ár. Rúmlega 1.700 manns eru skráðir til leiks í hlaupinu en aldrei hafa fleiri tekið þátt. Hlauparar mæta til leiks við Hörpu og sem fyrr mun karnival- stemning ríkja, enda eru þátttak- endur hvattir til að mæta í fjölskrúð- ugum búningum. Hlaupið hefst við Hörpu klukkan 12.00. Sæbraut verður lokuð frá Geirsgötu og að Holtavegi. Er öku- mönnum bent á að fara frekar um Miklubraut en hægt verður að kom- ast að hafnarsvæðinu frá Holtavegi. – khn Lokanir vegna gamlárshlaups ÁRAMÓT Flest bendir til þess að mengunarský verði yfir borginni á nýársnótt. Álíka mengun og um síð- ustu áramót gæti verið í vændum, ef marka má veðurspá fyrir borgina í kvöld. „Það verður hægur vindur í kvöld en ekki alveg logn. Það gæti dottið niður um nóttina og þá gæti komið þessi leiðindastybba,“ segir Þor- steinn V. Jónsson veðurfræðingur. Reykjavíkurborg hefur varað við svifryksmengun í borginni á nýárs- nótt, en búist er við að svifryks- mengun fari yfir heilsuverndar- mörk á fyrstu klukkustundum nýs árs. Styrkur svifryks var hár nær allan sólarhringinn 1. janúar 2018 en venjulega fellur styrkurinn hratt þegar líða tekur á nýársnótt. Fólk með viðkvæm öndunarfæri, hjarta- og æðasjúkdóma og börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir svifryki. Æskilegast er fyrir þennan hóp að vera innandyra þegar mest gengur á í kringum miðnættið og loka gluggum. – khn Mengunarský í kortunum FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 1 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 E C -A 7 1 4 2 1 E C -A 5 D 8 2 1 E C -A 4 9 C 2 1 E C -A 3 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.