Fréttablaðið - 31.12.2018, Page 8
Í farbanni í Malaga
Það var um miðjan janúar sem
Fréttablaðið greindi frá því að
Sunna Elvira Þorkelsdóttir, þrítugur
lögfræðingur, hefði fallið á milli
hæða, um fjóra metra, á heimili
sínu í Malaga á Spáni. Þjóðin fylgd-
ist grannt með málum hennar og
þáverandi eiginmanns hennar, Sig-
urðar Kristinssonar. Böndin bárust
fljótlega að Sigurði í tengslum við
svokallað Skáksambandsmál, sem
snerist um stórfelldan fíkniefna-
flutning til Íslands.
Sigurður var úrskurðaður í varð-
hald á Spáni en Sunna lögð inn á
spítala. Fréttablaðið ræddi við Sunnu
skömmu eftir slysið og lýsti hún þar
taugaáfallinu sem hún fékk eftir
innlögnina á spítalann. Sunna kom
ekki til landsins fyrr en í apríl en þau
Sigurður höfðu verið úrskurðuð í far-
bann vegna málsins.
Sigurður var tvívegis ákærður á
árinu, annars vegar fyrir aðild að
Skáksambandsmálinu og hins vegar
vegna skattalagabrota í gegnum fyrir-
tækið SS verk. Skattsvikin voru sögð
nema 105 milljónum króna. Héraðs-
dómur Reykjaness dæmdi Sigurð í 20
mánaða skilorðsbundið fangelsi og
til greiðslu 137 milljóna króna í sekt.
Aðalmeðferð í Skáksambandsmálinu
fer fram snemma í janúar á nýju ári.
Sigurður og Sunna Elvira slitu sam-
vistum eftir allt sem á hafði gengið.
Í viðtali í nóvember sagðist Sunna,
sem er lömuð fyrir neðan brjóst,
stefna að því að verða besta útgáfan
af sjálfri sér.
Sextán ár fyrir hrottafengið morð
á Hagamel
Í apríl dæmdi Héraðsdómur Reykja-
víkur Khaled Cairo, 39 ára Jemena,
í sextán ára fangelsi fyrir morðið á
Sanitu Brauna, 44 ára lettneskri konu,
í íbúð þar sem hún bjó á Hagamel í
september í fyrra. Fréttablaðið
fylgdist með aðalmeðferð málsins
og greindi frá. Þar komu nágrannar
og lögreglumenn fyrir dóminn. Einn
lögreglumaðurinn lýsti aðkomunni
sem skelfilegri. Þar hefði Cairo staðið
alblóðugur „eins og módel“. Hann
hefði hlegið þegar hann sá myndir af
líki Sanitu við skýrslutöku eftir hand-
tökuna.
Cairo snöggreiddist við dómsupp-
söguna og greindi verjandi hans síðar
frá því að hann hygðist áfrýja niður-
stöðunni til Landsréttar.
Fjölskylduharmleikur
að Gýgjarhóli
„Vettvangurinn benti eindregið til
þess að þarna hefði ég átt hlut að
máli,“ sagði Valur Lýðsson, bóndi
að Gýgjarhóli II í Biskupstungum,
við aðalmeðferð í máli gegn honum
í lok ágúst. Valur var ákærður og
síðar dæmdur fyrir morðið á bróður
sínum, Ragnari Lýðssyni, á Gýgjar-
hóli II að kvöldi föstudagsins langa.
Valur lýsti við aðalmeðferðina því
sem hann rak minni til frá kvöldinu.
Hann hefði þar rætt framtíðaráform
bæjarins við Ragnar og bróður þeirra
Örn. Bræðurnir voru gestkomandi
að heimili Vals. Valur sagði að hann
og Ragnar hefðu drukkið um kvöldið
og hinn síðarnefndi brugðist ókvæða
við þegar þeir hófu að ræða hug-
myndina um að færa bæjarstæðið
og koma upp kaldavatnsveitu. Um
morguninn hefði hann vaknað og
komið að líki Ragnars. Valur var
dæmdur til sjö ára fangelsisvistar.
Dagur Hoe Sigurjónsson, 25 ára,
var í júní dæmdur í sautján ára
fangelsi fyrir að hafa ráðið hinum
albanska Klevis Sula bana á Austur-
velli í desember í fyrra. Dagur réðst
einnig á Elio Hasani, félaga Klevis,
og veitti honum nokkur stungusár.
Elio komst lífs af og var útskrifaður
af spítala nokkrum dögum eftir
árásina.
Guðmundar- og
Geirfinnsmál leidd til lykta
Það var í lok september sem
umtalaðasta og umdeildasta
sakamál Íslandssögunnar
var leitt til lykta, nærri fjöru-
tíu árum eftir að Hæstiréttur
kvað upp upprunalega dóm
sinn. Sakborningarnir fimm
í Guðmundar- og Geirfinns-
málum voru sýknaðir, fimm
árum eftir að starfs-
hópur Ögmundar
Jónassonar, þáverandi
innanríkisráðherra,
komst að þeirri niður-
stöðu að játningar þeirra
Sævars Marinós Cie-
sielski, Kristjáns Viðars
Júlíussonar, Tryggva
Rúnars Leifssonar, Guð-
jóns Skarphéðinssonar
og Alberts Klahn Skafta-
sonar væru ómarktækar.
Sindri stelur senunni
Þjóðin fylgdist grannt með málum
Sindra Þórs Stefánssonar, ferðalögum
hans og ævintýrum. Sindri Þór var
handtekinn snemma á árinu, grun-
aður um aðild að umfangsmiklum
þjófnaði á 600 tölvum úr gagna-
verum Advania á Reykjanesi. Var
hann færður í varðhald í fangelsinu á
Hólmsheiði en síðar að Sogni. Þegar
á Sogn var komið strauk Sindri úr
fangelsinu, sem er opið, og flúði land.
Deilt var um það hvort Sindri
hefði verið frjáls ferða sinna eða ekki
en gæsluvarðhaldsúrskurður var þá
runninn úr gildi. Sindri fór í flug til
Svíþjóðar, með sömu vél og meðal
annars með forsætisráðherra. Frétta-
INNLENDUR ANNÁLL
um 800 milljónir króna.
Undir hana féllu kyrrsetningar
á fasteignum, ökutækjum, banka-
reikningum og hlutafé í fyrirtækjum.
Hæsta krafan var á hendur Jónsa,
söngvara sveitarinnar, en hún nam
638 milljónum króna. Í yfirlýsingu
sem sveitin sendi frá sér sögðust með-
limir hennar ekki hafa neitt að fela.
Um væri að ræða brest hjá endur-
skoðanda sem starfaði fyrir þá.
„Við munum greiða þetta til baka
og finna út hvað það var sem fór
úrskeiðis. Við treystum þarna end-
urskoðanda okkar og töldum að
allt væri í góðu, þegar það reyndist
svo þveröfugt. Við viljum hafa allt
klárt og uppi á borðum. Þetta eru
engin Panama-skjöl eða neitt slíkt.
Við borgum okkar skatt eins og
aðrir og þetta er allt í farvegi,“ sagði
Georg, bassaleikari sveitarinnar, í
mars.
Þá fækkaði meðlimum sveitar-
innar um einn í byrjun október
þegar trommuleikarinn Orri Páll
sagði skilið við Sigur Rós eftir ásökun
um nauðgun. Bandaríska listakonan
Meagan Boyd steig opinberlega fram í
september og sagði Orra hafa brotið á
sér fyrir fimm árum þegar sveitin var í
Los Angeles við upptökur á plötunni
Kveik.
Úttekt í Orkuveitunni
Óhætt er að segja að mikil ólga hafi
verið meðal starfsmanna Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) í sumar. Innri
endurskoðun Reykjavíkurborgar
gerði úttekt á vinnustaðamenningu
þar eftir að þrír starfandi stjórnendur
voru sakaðir um kynferðislega áreitni
í starfi eða fyrir kynferðisbrot áður en
störf hófust.
Málið hófst með uppsögn Bjarna
Más Júlíussonar, framkvæmdastjóra
hjá Orku náttúrunnar, dótturfélagi
OR, en honum var sagt upp vegna
óviðeigandi hegðunar í garð sam-
starfskvenna sinna. Þeirra á meðal
var Áslaug Thelma Einarsdóttir,
sem einnig var sagt upp störfum
um svipað leyti. Áslaug lýsti reynslu
sinni í færslu á Facebook, en hún og
Einar Bárðarson, eiginmaður hennar,
blaðið birti fyrst yfirlýsingu
Sindra sem sagðist ætla að
koma heim fljótlega. Hann
var handtekinn í Amsterdam
tveimur dögum síðar. Ákæra
var gefin út í gagnaversmálinu
svokallaða á hendur Sindra
og sex öðrum í lok ágúst.
Sindri var í farbanni fram í
október en hann reiddi fram 2,5
milljónir í tryggingu til að losna úr
því og flaug til Spánar með fjölskyldu
sinni.
Aðalmeðferð yfir Sindra og sex-
menningunum fór fram í byrjun
desember og er enn beðið eftir nið-
urstöðu í málinu. Sindri og verjandi
hans hafa gagnrýnt aðferðir lögreglu
vegna málsins.
Allt í frosti hjá Sigur Rós
Fréttablaðið greindi frá því í mars að
eignir þeirra Jóns Þórs Birgissonar,
sem oftast er nefndur Jónsi, Georgs
Holm og Orra Páls Dýrasonar, með-
lima Sigur Rósar, hefðu verið kyrr-
settar að kröfu Tollstjóra. Um var að
ræða kyrrsetningu eigna að verðmæti
Árið 2018 á
innlendum vettvangi
Ókyrrð í háloftunum, umfangsmikill gagnaversþjófnaður, sóðatal kjörinna full-
trúa og braggablús er meðal þess sem var hvað mest í deiglunni á árinu sem er nú
að renna sitt skeið. Fréttablaðið tekur hér saman helstu fréttamál ársins innan
landsteinanna. Vakin er athygli á því að samantektin endurspeglar aðeins nokk-
ur af þeim stóru málum sem voru í umræðunni og er fjarri því að vera tæmandi.
3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
1
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
C
-C
9
A
4
2
1
E
C
-C
8
6
8
2
1
E
C
-C
7
2
C
2
1
E
C
-C
5
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K