Fréttablaðið - 31.12.2018, Side 24

Fréttablaðið - 31.12.2018, Side 24
Sydney Áramótin ganga einna fyrst í garð í Sydney í Ástralíu og af því tilefni er haldin flugelda- sýning sem á fáa sína líka. Milljónir manna fylgjast með flugeldunum sem skotið er frá höfninni og brúnni við Óperuhúsið fræga. Dúbaí Heimsmetið fyrir stærstu flugeldasýn- ingu heims var sett á manngerðu eyjunum Palm Jumeirah og World Islands í Dúbaí. Um áramótin 2014 voru rúmlega 479 þúsund sprengjur sprengdar á aðeins sex mínútum, sem gera yfir þúsund sprengjur á sekúndu. Upplifunin hefur verið stórfengleg og líklega hefur verið best að njóta sjónar- spilsins í þyrlu. Louisville Þrumur yfir Louisville eða Thunder Over Louisville kallast opnunarhátíð Kentucky Derby hátíðarinnar sem haldin er í Louisville í Kentucky í Bandaríkjunum. Talið er notuð séu um sextíu tonn af flugeldum í sýningunni sem skotið er upp í 28 mínútur. Burj Khalifa Burj Khalifa í Dúbaí er hæsta bygging heims, 829,8 metrar að hæð. Við opnun skýjakljúfsins var haldin hreint mögnuð flugeldasýning þar sem flugeldum var skotið af öllum hæðum hússins. Ár hvert er haldin óvið- jafnanleg flugeldasýning við Burj Khalifa um áramót. Montreal Árlega er haldin flugeldakeppni í Montreal í Kanada sem kallast the Montreal International Fireworks Com- petition. Hún er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Fyrirtæki hvaðanæva úr heiminum taka þátt og sýna það allra besta og nýjasta úr heimi flugelda í hálftíma sýningu. Sigurvegarinn hlýtur Jupiter-verðlaunin. Pétursborg Skarlatsrauðu seglin kallast við- burður í Pétursborg í Rússlandi en hann er hluti af sumarhátíð þar í borg sem kallast White Nights eða hvítar nætur. Flugeldar, tónleikar og vatnasýning eru stór hluti af viðburðinum sem milljónir sækja heim árlega. Þessi hefð hófst við lok heimsstyrjaldarinnar síðari árið 1945 þegar nokkrir skólar í Leníngrad sameinuðust um að ljúka skólaárinu með því að minnast sögunnar frægu um Skarlatsrauðu seglin eftir Alexander Grin. Einn af hápunktunum er þegar sænska skipið Kronor siglir upp Neva-ána með skarlatsrauð seglin þanin. Flugldar lýsa upp heiminn Undursamlegar flugeldasýningar eru haldnar víða í heiminum. Það getur verið mögnuð upplifun að horfa á þessar listasýningar á himninum. Nokkrar flugeldasýningar eru tald- ar bera af og hér skal nefna nokkrar þeirra. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 8 M Á N U DAG U R 3 1 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 E C -A C 0 4 2 1 E C -A A C 8 2 1 E C -A 9 8 C 2 1 E C -A 8 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.