Fréttablaðið - 31.12.2018, Page 42

Fréttablaðið - 31.12.2018, Page 42
Brandenburg / SÍA Taktu þátt í síðasta lestrarátaki Ævars vísindamanns og þú gætir orðið að persónu í æsispennandi ævintýrabók! Allir krakkar í 1.-10. bekk geta tekið þátt – og sömuleiðis foreldrar og forráðamenn! Átakið stendur frá 1. janúar til 1. mars 2019. Allar upplýsingar á www.visindamadur.is Hvað langar þig að lesa í dag? ári, þótt veikindi sem borgarstjór- inn hefur greint frá spili þar enga rullu. Ráðhúsið hefur nötrað undan- farin misseri þar sem hver skandall- inn rekur annan og að lokum er borgarstjóra ekki sætt í embætti. Meirihlutinn sættist á Dóru Björt Guðjónsdóttur Pírata í hans stað. Mjög mun fjara undan Facebook næstu misserin. Æ fleira fólk snýst gegn risanum, því það treystir ekki að persónuleg skilaboð leki ekki út. Raunar mun Facebook áfram glíma við vandræði sem varða öryggi not- enda samfélagsmiðilsins. Ragnar Þór mun standa við stóru orðin og skæruhernaður á vegum VR verður staðreynd á fyrstu mán- uðum nýs árs. Það mun kosta hann formennskuna í VR. Væringar verða í Framsóknar- flokknum, þrátt fyrir fádæma róleg- heit yfir ríkisstjórnarsamstarfinu á árinu. Sigurður Ingi Jóhannsson mun hætta í stjórnmálum, öllum að óvörum. Lilja Alfreðsdóttir verður formaður Framsóknar. Skandall tengdur Ásmundi Einari Daðasyni félagsmálaráðherra mun hrekja hann úr flokknum. Framsókn leitar út fyrir þingflokkinn að nýjum ráð- herra. Skúli kveður Ísland Skúli Mogensen skilur við WOW sem þó heldur áfram starfsemi sinni, íslenskum neytendum til hagsbóta. Skúli flytur af landi brott og leitar nýrra ævintýra á nýjum slóðum. Kristján Loftsson, sem seldi Guð- mundi Kristjánssyni í Brimi hlut sinn í HB Granda á árinu, mun láta mikið að sér kveða í íslensku viðskiptalífi á nýju ári með því að kaupa stóran hlut í skráðu félagi. Völvan sér fyrir átök í Seðlabank- anum. Sigríður Benediktsdóttir tekur við af Má Guðmundssyni sem seðlabankastjóri. Það mun valda titringi innan bankans, enda Sig- ríður umdeild, jafnt persónulega og sem fræðimaður. Þórarinn G. Pétursson verður skipaður annar aðstoðarbankastjóri eftir að lögum um bankann er breytt og annarri stöðu aðstoðarbankastjóra bætt við. Útvarpsstjóri í kröppum dansi Úttekt á rekstri RÚV mun leiða í ljós að pottur er víða brotinn í rekstr- inum. Útvarpsstjóri á í erfiðleikum með að útskýra málið og mikill þrýstingur verður á hann að segja af sér. Hann mun halda stöðunni, en veikist töluvert við málið. Völvan sér Gunnar Smára Egils- son verða áberandi í byrjun árs meðan skærur á vinnumarkaði standa sem hæst. Þótt stjórnarandstaðan hafi verið frekar veikburða undanfarið ár, verða raddir um hærri veiðigjöld sífellt háværari og ríkjandi kvóta- kerfi sífellt óvinsælla hjá þjóðinni. Á meðan munu sægreifar halda áfram að kaupa upp íslensk fyrirtæki. Katla rumskar Jón Jónsson tónlistarmaður fær sýkingu í raddböndin og mun ekki geta komið neitt fram á árinu. Í ljós kemur að honum líkar það að taka sér hvíld frá sviðsljósinu. Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott, því Jón skapar sér óvænt nafn sem pródú- ser, bak við tjöldin. Katla rumskar eftir aldarlangan svefn. Nærsamfélagið lamast og flugumferð raskast. Mikil athygli beinist að Íslandi í kjölfarið, og þrátt fyrir allar spár mun metfjöldi ferða- manna sækja landið heim árið 2019. VÖLVUSPÁ 2019 3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R34 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 1 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 E C -C E 9 4 2 1 E C -C D 5 8 2 1 E C -C C 1 C 2 1 E C -C A E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.