Fréttablaðið - 31.12.2018, Síða 44
miðlum, ekki síst fyrir þær sakir að
stórstjörnur munu klæðast skónum
á rauða dreglinum.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
sannar það á árinu að hún er sú
menningarstofnun á landinu sem
er af mestum gæðum og er sú eina
sem stenst alþjóðlegan samanburð.
Gestum hljómsveitarinnar mun
fjölga.
Árni Pétur Guðjónsson vekur eft-
irtekt fyrir leik á sviði með vorinu.
Leifur Ýmir myndlistarmaður
mun koma fólki á óvart á árinu með
verkum sínum. Áhugi frá galleríum
á meginlandinu verður mikill.
Ásmundur Ásmundsson mynd-
listarmaður opnar sýningu í Osló í
haust sem mun vekja mikla lukku
meðal Norðmanna.
Hamrén víkur
Gulldrengirnir okkar
í knattspyrnu-
l a n d s l i ð i n u
munu ekki ná
sér upp úr þeim
öldudal sem
þeir eru í og það
er eitthvað í
kortunum um
að Eric Hamrén
muni ekki klára
u n d a n k e p p n i n a
fyrir EM 2020. Gamlir
draugar eins og
agavandamál,
ó v ö n d u ð
ummæli og
liðsval sem
kemur flest-
um á óvart
munu taka
sinn toll og
Hamrén mun
k ve ð ja . KS Í
leitar til Heim-
is Guðjóns-
sonar, þjálfara
m e i st a ra l i ð s
HB, til að klára
undankeppnina. Léttleikinn kemur
aftur í klefann og aginn úti á velli
tryggir liðið í umspil en með naum-
indum þó.
Það mun gusta um KSÍ á ársþing-
inu í febrúar. Kristalkúlan sýnir
að Guðni Bergsson, formaður KSÍ,
standi storminn af sér. En hans pól-
itík verður að setja Íslandsmótið
meira í hendurnar á ÍTF og halda
áfram að gera KSÍ að grænum vinnu-
stað. Áfram verður kvabbað um
Laugardalsvöll og undirbúningur
heldur bara áfram. Staða yfirmanns
knattspyrnumála verður felld inn í
starf KSÍ og einhver innanhúss fær
einfaldlega stöðuhækkun.
Eiður finnur ástina
Þá munu gömlu félagarnir Eiður
Smári og Arnar Þór verða
tilkynntir sem þjálf-
arar U-21 árs lands-
liðs Íslands. Eiður
finnur ástríðuna
e i n n i g u t a n
vallar og nælir
sér í konu úr
s t j ó r n m á l -
unum. Stefnir
í gott ár þar á
bænum.
Það eru
allra fyrri hluta næsta tímabils.
Arnór Sigurðsson tekur annað
tímabil með CSKA og heldur áfram
að blómstra. Ekki mikil vandræði á
þeim pilti.
Íslenski fótboltinn blæs í sóknar-
lúðrana. Miðaverð verður snarlækk-
að og ýmislegt gert til að fá fólk aftur
á völlinn. Tómir vellir eru hættir að
vera töff í augum stjórnarmanna og
stjórnmálamanna. Ýmislegt verður
gert til að fylla þessi risamannvirki
sem standa tóm lungann úr árinu.
Umgjörðin verður stórbætt hjá
flestum félögum og leynimakkið
í kringum bjórsölu á völlunum
verður aflagt.
Pepsi-deild karla verður spenn-
andi langt fram eftir móti. Valsmenn
munu hafa þetta í þriðja sinn í röð
en KR mun veita þeim harða keppni
en gefa eftir á lokasprettinum. FH
veldur vonbrigðum sumarsins og
Grindavík og ÍA falla. Þróttarar og
Ólafsvíkingar koma í þeirra stað.
Ævintýri Magna frá Grenivík heldur
áfram og liðið verður nær því að fara
upp en að falla.
Það verður meiri spenna í
kvennaboltanum. Þór/KA mun
standa uppi sem sigurvegari eftir
ótrúlega lokaumferð þar sem tit-
illinn skiptir um hendur ansi oft
þessar 90 mínútur. Valur, Stjarnan
og Breiðablik munu fylgja þeim eins
og skugginn og deildin verður jafn-
ari en oft áður. Valskonur munu fá
silfrið og Margrét Lára sýnir að hún
er ekki dauð úr öllum æðum.
Handboltinn rúllar í janúar eins
og flest öll fyrri ár. Mikill gleðigjafi
í skammdeginu. Ísland kemst upp
úr riðlinum og í milliriðil en lýkur
keppni þar. Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari horfir
sáttur á mótið. Ánægður með fram-
lag ungu strákanna. Skömmu eftir
mótið kemur franska stórliðið PSG
og kaupir Hauk Þrastarson frá Sel-
fossi. Önnur félagaskipti eru ekki
sjáanleg. Aron verður áfram í Barce-
lona og Guðjón Valur hjá Ljónunum
í Rhein-Neckar.
Gummi Ben afþakkar
Síminn mun tilkynna um hver
verður andlit enska boltans í
febrúar. Eftir örlitla umhugsun
mun Gummi Ben segja nei takk og
halda kyrru fyrir hjá Vodafone. Það
verður því Hörður Magnússon sem
mun stökkva um borð og gera enska
boltanum aftur hátt undir höfði.
Metnaðarleysi Vodafone kristallað-
ist í kringum stórleik Liverpool og
Manchester United þar sem engin
dagskrárgerð var fyrir eða eftir
leik. Honum til aðstoðar verða þau
Gunnar Birgisson frá RÚV og Sigríð-
ur Þóra Ásgeirsdóttir sem mun sjá
um umfjöllun um leiki helgarinnar.
Síminn mun ekki klikka á að fá hæfa
konu til starfa.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, sem
vann til gullverðlauna í 200 metra
hlaupi á Ólympíuleikum ungmenna
í Búenos Aíres, mun halda áfram að
vekja athygli. Sem og kraftajötunn-
inn Júlían J.K. Jóhannsson. Hann
mun halda áfram að bæta sig.
Ólafía Þórunn mun slá í gegn
og þjóðin mun sitja
límd við skjáinn
á ókristilegum
tíma til að sjá
hana slá hvert
snilldarhöggið
á fætur öðru.
V i ð t a l i ð
við hana í
kjölfarið fær
Ólaf Þórðarson
nánast til að
gráta.
VÖLVUSPÁ 2019
nokkur félagaskipti í kortunum.
Aron Einar tekur stökkið í sólina til
Tyrklands eða Katar. Birkir Bjarna-
son fer aftur til Ítalíu og Ari Freyr
skiptir um lið. Alfreð Finnbogason
fær mjög gott tilboð en ákveður að
vera um kyrrt í Augsburg.
Gylfi og Alexandra munu eignast
barn í september/október sem hefur
svo jákvæð áhrif á spilamennsku
Gylfa. Fyrirspurnir koma en verðið
fælir stórliðin frá. Hann verður
áfram í Everton.
Jón Dagur kemur aftur til Fulham
og slær í gegn í Championship-
deildinni. Vekur áhuga og eftirtekt
3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
1
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
E
C
-C
9
A
4
2
1
E
C
-C
8
6
8
2
1
E
C
-C
7
2
C
2
1
E
C
-C
5
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K