Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 10

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 10
10 Ljósmæðrablaðið - desember 2010 Mynd 2. Dreifing á hlutfallslegum fjölda kvenna við útskrift eftir tíma frá fæðingu og barneignareynslu (frumbyrja/fjölbyrja) Tími frá fæðingu/aldur barns við útskrift (klst.) H lu tf al ls le gu r fjö ld i k ve nn a (% ) <6 1,4 7,7 6,9 38,5 19,1 20,9 31,9 9,9 33,3 17,0 6,9 6,0 45 40 35 30 25 20 15 10 5 0 6-12 12-18 18-24 24-36 36-48 Hlutfall frumbyrja Hlutfall fjölbyrja Sú stofnun sem oftast var haft samband við var Landspítalinn en þangað var leitað í 46 skipti eða um 78% tilvísana til stofnana. Í 11,9% tilvika (n=7) var leitað til heilsu- gæslunnar og í 10,2% tilvika (n=6) til annarra fæðingastofnana (HSU og HSS). Þeir fagaðilar sem oftast var vísað til voru læknar en tilvísanir til lækna voru samtals 31 eða um 50% tilvísana. Í 7 tilfellum var vísað til brjóstaráðgjafa (11,3%), 4 sinnum til hjúkrunarfræðings (6,5%) og tvisvar til sjúkraþjálfara (3,2%). Þær ástæður sem nefndar voru fyrir tilvís- unum voru m.a. eftirfarandi: 1. Vegna móður þar sem helstu vanda- málin tengdust erfiðleikum við brjósta- gjöf, eftirfylgni og meðferð vegna hækkaðs blóðþrýstings, sýkinga , blæð- inga og þvagfæravandamála, auk fíkni- efnaneyslu á heimili og stoðkerfavanda- mála móður. 2. Vegna barns s.s. tengt eftirliti og meðferð á gulu og sýkingu hjá barni. Símtöl ljósmæðra á meðan heimaþjón- ustu stóð. Fjöldi símtala sem tilgreind voru til ljós- mæðra spannaði frá einu símtali til 12 á hverja sængurkonu. Algengast var að um eitt símtal væri að ræða (n=121, 34,5%) en ástæður sem oft voru nefndar hér fyrir símtölunum var símtal frá fæðingarstofnun þar sem óskað var eftir heimaþjónustu og frá sængurkonu sem tilkynnti heimkomu sína. Fjöldi símtala sem ljósmæður hringja spanna frá einu símtali til 10 fyrir hverja konu. Í 46,6 % tilfella voru engin símtöl skráð frá ljósmóður, í 28,6% tilfella hringdu ljósmæðurnar eitt símtal, í 11,7% tilfella tvö símtöl fyrir hverja konu. Þegar skoðað var hvenær símtölin fóru fram með tilliti til vikudags kom í ljós að oftast var hringt í ljósmóður á virkum degi (n=248) eða í 67% tilfella, en 31% símtala fór fram um helgar (n=115) og 1,6% um stórhátíð (n=6). ). Hvað varðar tímasetn- ingu símtala frá ljósmóður í heimaþjón- ustu kom í ljós að ljósmæður hringdu í 64% tilfella á virkum dögum (n=174), 33% (n=91) um helgar og 1,11% (n=3) um stórhátíð. Þrátt fyrir að flest símtölin færu fram að degi til, frá kl. 8 til 16, þá kom í ljós að um 36-42% þeirra áttu sér stað síðdegis eða að kvöldi (kl. 16:01-23:59). Mjög lítið var um símhringingar að nóttu til (0,9-2,9%). Þrátt fyrir að flest símtöl hafi verið metin almenns eðlis þá voru um 10-20% símtala flokkuð sem bráðasímtöl. Helstu ástæður fyrir símtölum samkvæmt athugasemdum ljósmæðra. Helstu ástæður símtala vegna heimaþjón- ustu voru eftirfarandi: 1. Skipulag þjónustunnar s.s. vegna utan umhalds og hagnýtra þátta sem teng- kom í ljós að 30 vitjanir voru bráðavitjanir eða um 1,5% vitjana. Flestar vitjanir eða um 98,5 % voru því almennar vitjanir. Þættir sem ekki sýndu fram á marktæk áhrif á meðalfjölda og meðaltímalengd vitjana í heimaþjónustu voru fyrri kynni sængurkvenna af ljósmæðrunum, sú vega- lengd sem ljósmæðurnar þurftu að fara í vitjun og flokkun kvenna í hin mismunandi þjónustustig (p>0,05). Skriflegar athugasemdir ljósmæðra er komu fram við skráningu upplýsinga um vitjanir Athugasemdir sem settar voru fram varð- andi vitjanirnar voru einkum skýrandi t.d. vegna innihalds vitjana, lengdar þeirra eða fjölda. Efnislega komu athugasemdirnar helst inn á eftirfarandi: 1. Fylgikvilla móður og skýringu á aukinni þörf á eftirliti s.s. vegna blæðingahættu, sýkingar, blóðþrýstingsvanda, fylgi- kvilla og eftirlits tengdu mænurótar- deyfingu og keisaraskurði. 2. Fylgikvilla hjá barni og aukinni þörf á eftirliti s.s. vegna þróunar óeðlilegrar gulu, óværðar barna, sýkinga, ónógrar þyngdaraukningar og viðbeinsbrots. 3. Erfiðleika við brjóstagjöf og þörf á auknu eftirliti þeim tengdum s.s. vegna sárra geirvarta, barn var latt að drekka eða tók ekki brjóst. 4. Erfið reynsla að baki, úrvinnsla og aukin þörf á eftirliti s.s. vegna fyrri sögu um áföll t.d. tengdum missi barns, erfiðri meðgöngu og /eða fæðingar- reynslu og sögu um vanlíðan, þung- lyndi og kvíðaröskun. 5. Aukin þörf á umönnun vegna bakgrunns vegna tungumálaörðuleika erlendra for- eldra og vegna ungs aldurs foreldra. Tilvísanir heimaþjónustuljósmæðra til stofnanna og eða annarra fagaðila Tilvísanir til stofnana og fagaðila voru tilgreindar í 61 skipti eða í 17,8% tilfella. við hækkun á blóðþrýstingi sem kall- aði á nánara eftirlit og í tveimur tilfellum var þörf á bráðainnlögn og nánu eftirliti í kjölfarið. Aðrar ástæður sem skýrðu fleiri vitjanir voru óeðlileg blæðing móður sem leiddi til bráðainnlagnar og fíkniefnavandi á heimili sængurkonunnar sem kallaði á mikla þörf fyrir stuðning og eftirfylgni. Athyglisvert er að skoða sérstaklega meðaltímalengd hverrar vitjunar hjá þeim ljósmæðrum sem önnuðust þann hóp kvenna sem þurftu fleiri vitjanir vegna heilsufarsvanda hjá móður eða barni (heimafæðingar ekki meðtaldar). Í ljós kemur að meðaltími hverrar vitjunar var yfir meðaltali (54mín) eða um 73 mínútur. Fram kom í þremur af þessum skýrslum þar sem vitjanirnar töldu 9-11 í heildina að ekki var sérstaklega rukkað fyrir þessar aukavitjanir. Hér var um að ræða alvarleg veikindi móður og náið eftirlit þess vegna. Meðaltími vitjana hjá þessum konum var 81 og 98 mínútur. Þegar heildarfjöldi vitjana var skoðaður með tilliti til fyrri reynslu kom í ljós að frumbyrjur fengu að meðaltali fleiri vitjanir (7,17) en fjölbyrjur (6,34) og var munurinn tölfræðilega marktækur (p<0,001). Eins og sést á mynd 4 var mesti munurinn á fjölda frumbyrja (n=79, 53,4%) og fjölbyrja (n=55, 29,4%) er fengu 8 vitjanir. Tímalengd vitjana hjá öllu úrtakinu spannaði frá 10 mínútum til 180 mínútna. Meðaltímalengd vitjana hjá öllum hópnum voru 54 mínútur en í ljós kom marktækur munur eftir barneignareynslu kvennanna þar sem ljósmæðurnar eyddu að meðaltali lengri tíma í vitjanir ef um frumbyrjur var að ræða (60,3 mín) samanborið við fjöl- byrjur (52,2 mín) (p<0,05). Varðandi tímasetningu vitjana kom í ljós að flestar vitjanir eða tæp 70% þeirra áttu sér stað á virkum degi, tæp 30 % um helgi og 1,6% um stórhátíð. Af 2067 vitjunum þar sem gert var grein fyrir því hvort um almennar eða bráðavitjanir var að ræða

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.