Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 32

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 32
32 Ljósmæðrablaðið - desember 2010 á móti barninu. Af því varð nú reyndar ekki heldur varð annar óvæntur atburður sem gladdi okkur. Það var þegar heil hljómsveit birtist allt í einu á veitingastaðnum og hóf að spila fyrir okkur en auðvitað hafði ein af húsvísku ljósmæðrunum samið við maka sinn um að gleðja norðlenskar ljósmæður með söng og hljóðfæraleik. Aðalfundurinn og allt sem honum fylgdi var einstaklega vel heppnaður og rós í hnappagat húsvískra ljósmæðra. Í lokin má geta þess að félagar í Norður- landsdeild eru 47 og í stjórn félagsins eru eftirtaldar ljósmæður; Sigfríður Inga Karlsdóttir, formaður, Hulda Magnadóttir, varaformaður, Rakel Káradóttir, meðstjór- nandi, Birna Málfríður Guðmundsdóttir, gjaldkeri og Sigrún Rósa Vilhjálmsdóttir, ritari. Við sendum öllum ljósmæðrum góðar kveðjur frá Norðurlandi. Sigfríður Inga Karlsdóttir Sjóðanefnd fundaði vegna styrkúthlutana úr Rannsókna- og þróunarsjóði LMFÍ þann 22. nóvember. Fyrir fundinum lágu 10 umsóknir að upphæð 4.308.000 kr. Staða sjóðsins var 3.780.000 kr, þar af eftirstöðvar styrkvilyrða fyrri ára 925.000 kr og óskertur höfuðstóll skal vera 1.000.000 kr skv. stofnskrá Rannsókna- og þróunarsjóðs. Til úthlutunar var því 1.855.000 kr. Umsóknir voru teknar fyrir í stafrófsröð, fyrst tvær til lægri styrkupphæðar og síðar átta umsóknir til 500-609.000 kr. Allar umsóknir voru fullnægjandi en einni umsókn var hafnað þar sem viðkomandi hafði ekki sjóðsaðild. Tveimur umsóknum um gerð efnis fyrir www.ljosmodir.is var vísað til stjórnar LMFÍ þar sem eðlilegt var talið að félagið styrkti þau verkefni beint en ekki í gegnum sjóði félagsins í samkeppni við rannsókna- og þróunarstyrki félagsmanna. Ljóst var að ekki yrði mögulegt að styrkja öll verkefnin til fulls. Eining var um það að laun rannsakanda og útlagðan kostnað ætti að leggja að jöfnu og meistararannsóknir skyldi styrkja betur en aðrar rannsóknir. Niðurstaða sjóðanefndar var sú að styrkja meistararannsóknir um 300.000 kr en aðrar rannsóknir um 250.000 kr. og umsóknir vegna skólagjalda í framhaldsnámi fengu fullan styrk. Styrkveitingar voru sem hér segir: • Anna Sigríður Vernharðsdóttir sótti um styrki til gerðar greinaflokks á www. ljosmodir.is og vegna annars áfanga bæklingaraðar LMFÍ. Þessum umsóknum var vísað til stjórnar LMFÍ og talið eðlilegt að félagið styrkti þessi verkefni beint. • Rannveig Rúnarsdóttir hlaut 90.000 kr styrk vegna skólagjalda í framhaldsnámi og 300.000 kr styrk vegna mastersrann- sóknar sinnar um ávinning feðra af fjöl- skyldumeðferðarsamtali fyrir útskrift af meðgöngu- og sængurkvennadeild. • Björg Sigurðardóttir hlaut 300.000 kr styrk vegna mastersrannsóknar sinnar á þekkingu og upplifun ljósmæðra af axlarklemmum. • Guðlaug María Sigurðardóttir hlaut 250.000 kr styrk vegna gerðar kennsluheftis í nálastungum fyrir ljós- mæður. • Kristbjörg Magnúsdóttir hlaut 250.000 kr styrk vegna þýðingar, staðfæringar og gerðar námsefnis um HypnoBirthing. • Ingibjörg Th. Hreiðarsdóttir hlaut 45.000 kr styrk vegna skólagjalda í fram- haldsnámi og 300.000 kr styrk vegna mastersrannsóknar sinnar um ávinning meðferðarsamtals við foreldra nýbura á vökudeild. • Valgerður Lísa Sigurðardóttir hlaut 250.000 kr styrk vegna rannsóknar sinnar á viðtalsþjónustunni Ljáðu mér eyra. 22. nóvember 2010 Guðlaug Einarsdóttir Fundargerð Sjóðanefndar nóvember 2010 Eldhressar ljósmæður á leið á aðalfund NLMFÍ. Tilkynning frá Ljósmæðrafélaginu Stjórn Ljósmæðrafélags Íslands minnir á að á aðalfundi í vor verða formannskosningar í félaginu, þar sem sitjandi formaður hefur þá gengt starfinu þau sex ár sem leyfilegt er skv. reglum félagsins. Það líður því senn að framboðum í starfið. Stjórnin. Á ÍSLANDI

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.