Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 21

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 21
21Ljósmæðrablaðið - desember 2010 Reykjavík og hins vegar í Hafnarfirði. Tvo yngri drengina sína fæddi hún svo annars vegar á heimili sínu og hins vegar á Selfossi. Jóna talar mikið um að ljósmæðurnar sem hún kynntist úti á landi hafi verið yndis- legar konur og það að þekkja þær fyrir fæðinguna hafi verið stór þáttur í að líða vel í fæðingunni. Hún sagði að ljósmæðurnar í Reykjavík og Hafnarfirði hafi verið góðar konur en hún muni lítið eftir þeim. Jóna talaði um að helsti kostur þess að fæða í Reykjavík hafi verið sá að þá hafi hún fengið góða hvíld fyrir og eftir fæðinguna þegar hún dvaldi hjá móðursystur sinni. Næst yngsta barnið sitt átti hún heima og þótti henni það gott. Þá tók ljósmóðirin í sveitinni á móti og var fjöldi fjölskyldumeð- lima viðstaddur. Yngsta barnið sitt fæddi hún síðan á sjúkrahúsinu á Selfossi, henni þótti það svo heimilislegt og gott að hún líkti því við heimafæðingu. Hún hét sjálfri sér því að ef hún myndi eignast fleiri börn myndi hún fæða þau á Selfossi en til þess kom þó ekki. Jóna segist oft hafa hugsað með sér hversu mikið þessar ljósmæður úti á landi hafi þurft að þola og hversu færar þær hafi verið. Fæðingarsaga Rósu Rósa er 48 ára gömul kona. Hún er gift og á þrjú uppkomin börn. Fyrsta barnið hennar fæddist árið 1982, annað árið 1985 og það síðasta fæddist árið 1994. Þegar ég bað hana að segja sögu sinna fæðinga vildi hún tala um fæðingu yngstu dóttur sinnar. En sú fæðing er frábrugðin hinum á þann hátt að æskuvinkona hennar, Sigurlinn Sváfnis- dóttir, sem er starfandi ljósmóðir á Selfossi kom úr sínum frítíma og tók á móti barninu. Sigurlinn fylgdi Rósu í gegnum alla meðgönguna í mæðravernd á Hellu. Rósa hafði verið í mjög miklum samskiptum við Sigurlinn og aðrar ljósmæður á Selfossi á meðgöngunni vegna mikilla uppkasta alla meðgönguna. Hún ældi bókstaflega frá degi eitt og fram á síðasta dag. Vegna þessa þurfti hún að fara nokkrum sinnum á spítala til að fá næringu í æð sökum þess hversu orku- lítil hún var orðin. Engar sérstakar ástæður fundust fyrir þessum uppköstum, einhverjir læknar vildu tengja þetta andlegri líðan en því er Rósa ekki sammála. Meðal annars vegna þess að hún var farin að æla þó nokkru áður en hún vissi að hún væri þunguð. Hún var gengin tæpar 38 vikur af meðgöngunni þegar hún fór af stað. Jólin voru á næsta leiti, það var 20. desember. Hún fór af stað rétt eftir hádegi. Fyrri fæðingar höfðu gengið hratt og vel fyrir sig og hafði Rósa á tilfinningunni að þessi fæðing myndi einnig ganga vel. Eiginmaður Rósu og Sigurlinn voru þau einu sem tóku þátt í fæðingunni. Hún segist hafa verið ánægð með það þar sem hún hafi alltaf viljað vera svo að segja ein með sjálfri sér í fæðingunni, henni finnst hún sjálf hafa bestu stjórnina og hún ein geti gert þetta. Þegar hún kom á sjúkrahúsið var hún komin með 6 í útvíkkun. Hún fékk enga deyfingu í fæðingunni. Henni fannst í þessari fæðingu sem og hinum fyrri hún alltaf fá þessa tilfinningu um að hún vilji hætta við eða fresta þessum ósköpum. Sársaukinn var svo mikill og hún vildi bara að þeim myndi ljúka sem fyrst. Eftir eðlilegan framgang fæðingar fæddist síðan fín 15 marka stelpa rétt fyrir kvöldmat. Rósu fannst gott að geta haft eiginmann sinn sem mest hjá sér í sængurlegunni. Eiginmaður hennar valdi að fara heim á nóttinni til að sinna eldri börnum en Rósa og nýfædda stúlkan dvöldu á spítalanum í þrjár nætur. Þau héldu síðan öll heim á Þorláksmessu. Rósu fannst gott hversu fáar konur voru á sængurkvennadeildinni og hvað andrúmsloftið þar var heimilislegt og notalegt. Rósa talar um að það hafi verið ,,dýrðlegt að þekkja ljósmóðurina”. Hún segir að það sé erfitt að lýsa þessu eitthvað nánar en öll samskipti hafi gengið svo vel og henni liðið vel í fæðingunni. Sigurlinn vissi alltaf hvað átti að gera og vissi alveg hvernig hún átti að umgangast þau hjónin. Það að þekkja ljós- móðurina svona vel er bara ómetanlegur þáttur í öllu ferlinu að mati Rósu. Rósa átti tvö eldri börnin sín í Reykjavík því þá bjó hún þar. Hún segir að það hafi aldrei hvarflað að sér að eiga hin börnin á öðrum stað, því þá þekkti hún ekkert annað. Hún telur þó að fæðingarreynslan frá Selfossi hafi verið best og það að hafa kannast við flestar ljósmæðurnar á staðnum hafi vegið þungt. Hún talar einnig um að ljósmæðurnar í Reykjavík hafi reynst sér vel. Þrátt fyrir það man hún minna eftir þeim enda gafst minni tími til samskipta og frekari kynna. Samantekt Framangreindar sögur bera það með sér að konur sem fæða börn sín í smærri byggðarlögum geti notið ákveðinna forréttinda. Þau forréttindi felast í því að vera í nánari tengslum við sína ljós- móður og geta jafnvel fengið sömu ljós- móður með sér á meðgöngu, í fæðingu og í sængurlegu. Ég tel að ef ljósmóðir hefur haft árangursrík samskipti við verðandi foreldra á meðgöngunni geti það haft góð áhrif í fæðingunni. Það kom skýrt fram í fæðingarsögunum að þessar konur mátu samband sitt við ljósmóður fyrir og í fæðingu mikils og átti það stóran þátt í upplifun þeirra af fæðingunni. Konurnar tvær þekktu þó ljós- mæðurnar sínar á mjög ólíkan hátt. Jóna úr fyrri sögunni þekkti sína ljósmóður úr þorpinu, kannaðist við hana og hafði heyrt af hennar góðu verkum. Hún hafði t.d. tekið á móti litlu systur hennar nokkrum árum áður. Rósa úr seinni sögunni hafði æsku- vinkonu sína sem ljósmóður og er það örugglega óskastaða fyrir margar konur að hafa einhvern hjá sér sem maður treystir fullkomlega og kann vel að meta. Það kom líka skýrt fram í frásögn Rósu þegar hún sagði að það hafi verið ,,dýrðlegt” að hafa Sigurlinn sem ljósmóðir. Mér fannst þetta lýsingarorð segja allt sem segja þurfti. Það er ekki lífsspursmál að ná að mynda svona sterk tengsl við ljósmóður og auðvitað ekki allir sem eiga kost á því. Það er þó ljóst að þann tíma sem ljósmóðirin fær með konunni, á meðgöngunni og í fæðingunni er nauðsynlegt að nýta vel til að kynnast og byggja upp traust og eðlileg samskipti. Það sést vel á þessum sögum að mikil- vægi nærveru og yfirsetu ljósmóður hefur haldist óbreytt í áranna rás og mun alltaf skipa stóran sess í starfi ljósmæðra. Ég tel að umræðan um starf ljósmæðra og eðli þess verði að fá meiri umfjöllun í samfélaginu þar sem margir eru farnir að sjúkdóm- svæða fæðinguna, hið náttúrulega ferli hefur aðeins gleymst. En það er auðvitað einn af hornsteinum ljósmóðurfræðinnar að líta á fæðinguna sem lífeðlislegt ferli, bregðast við þeim aðstæðum sem geta komið upp og leita samráðs eða vísa á aðra sérfræðinga verði hinni barnshafandi konu ekki sinnt af ljósmóðurinni einni, samanber það sem fram kemur í hugmyndafræðilegum áherslum náms í ljósmóðurfræði. Umræðan í samfélaginu í dag hvetur konur að vissu leiti til að fæða börnin sín frekar í Reykjavík, til að skjótari möguleiki gefist til inngripa. Af fenginni reynslu af fæðingu úti á landi tel ég sorglega þróun ef flestallar fæðingar flytjast til Reykjavíkur og konur hætta að líta á fæðinguna sem eðlilegt ferli. Þá tapast valmöguleikinn sem konur hafa um fæðingarstað. Litlar fæðingarstofur úti á landi geta vegna smæðar sinnar og fjölda fæðinga veitt góða og persónulega þjónustu. Eins og Jóna sagði í fæðingarsögu sinni þá fannst henni upplifunin af fæðingu sinni á Selfossi komast nærri því að eiga heima. Þegar ég velti fyrir mér hvaða áhrif fyrr- greindar fæðingarsögur hafa á mig sem verðandi ljósmóður er af nokkru að taka. Mér sýnist ljóst að nýta þurfi þann tíma sem gefst í aðdraganda fæðingarinnar til að tengjast konunni og eftir atvikum maka hennar einhverjum böndum. Ég sem ljósmóðir þarf að vera vel upplýst og örugg í starfi, veita markvissa fræðslu og svara spurningum foreldranna á vandaðan og greinargóðan hátt. Allir þessir þættir stuðla að því, hvort sem tíminn með hinum verðandi foreldrum er mikill eða lítill, að þegar að fæðingunni kemur þá muni foreldrarnir en frekar geta treyst á fumlaus vinnubrögð ljósmóður- innar. Ofangreint er í samræmi við nokkrar af þeim hugmyndafræðilegu áherslum sem lagðar eru til grundvallar í ljósmóður- fræðinámi, svo sem að ávinna sér virðingu og traust konunnar og að styrkja hana í sínum ákvörðunum.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.