Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 16

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 16
16 Ljósmæðrablaðið - desember 2010 Niðurstöður Í niðurstöðum má greina þrjá meginþætti sem tengjast tíma og rúmi: Fyrir skilnað; eftir skilnað og staðan í dag; horft til fram- tíðar (sjá töflu 2). Fyrir skilnað Konurnar höfðu margar sögur að segja af börnum sínum og neikvæðum áhrifum heimilisofbeldisins á þau, en börnin bjuggu við mjög mikla streitu sem fram kom með ýmsum hætti. Börnin sýndu öll mikil tilfinn- ingaleg viðbrögð eins og áhyggjur og hræðslu. Þá sýndu sum börnin andfélagslega hegðun og hjá flestum börnunum var einnig um neikvæðar geðrænar afleiðingar að ræða svo sem kvíða. Tilfinningaleg viðbrögð barnanna ein- kenndust einkum af hræðslu, áhyggjum og svefnörðugleikum. Sumar konurnar nefndu að börnin væru næm á líðan mæðra sinna og ef þeim liði illa liði barninu illa líka. Sum börnin höfðu lélega matarlyst og mæðurnar höfðu miklar áhyggjur af þeim. Eldri börnin höfðu áhyggjur af því hvernig ástandið væri á heimilinu þegar þau voru að koma heim. Anna sagði frá því að börnin hafi ekki viljað vera nálægt föður sínum, að þau hafi skynjað tóninn í málrómi hans og fundið hvernig andrúmsloftið var á heimilinu. Sara sagði um barnið sitt að hann segði við pabba sinn: „þú ert vondur.“ Dísa sagði líka: “hann gerir mun á börnunum sínum og ég var hrædd að taka málstað þeirra.” Eitt barnið sagði við móður sína þegar foreldrarnir voru að rífast „mamma segðu bara já“ og vonaðist þá til að ekki kæmi til ofbeldis. „Börnin voru bara eins og hræddir hérar inn í herberginu sínu“ sagði Dísa um börnin sín þegar þau vissu af ofbeldinu. Bára sagði: ”börnin voru alltaf hrædd” og Elsa sagði um dóttur sína: „það kom alveg tímabil þar sem ég var orðin virki- lega hrædd um hana. Hún hætti bara að borða og svaf illa á nóttunni og annað.“ Andfélagsleg hegðun kom fram hjá sumum börnunum og kom þá einkum fram í hegðunarvandamálum eins og virðingar- leysi og hortugheitum gagnvart móðurinni. Nokkrar kvennanna tala um að börnin hafi ekki sýnt fullorðnum neina virðingu því það læri börnin sem fyrir þeim sé haft. Börnin sjái og heyri hvernig maðurinn kemur fram við móðurina og virðist að einhverju leyti líkja eftir því. Þetta olli mæðrunum miklum tilfinn- ingalegum sársauka. Bára lýsir þessu þannig: „[Hann] gerir lítið úr mér fyrir framan börnin mín... Þau bera enga virðingu fyrir mér lengur. Þau kalla mig hálfvita og ulla á mig af því að ég hef enga .. ég er búin að missa alla stjórn. Þau hafa engan aga vegna þess að í hvert sinn sem ég reyni .. þú veist“. Geðrænar afleiðingar. Mörg börnin fundu fyrir kvíða og eitt barn greindist með kvíða þegar á leikskólaaldri og tvö greindust með athyglisbrest – ADHD. Guðrún hefur áhyggjur af barni sínu: „Drengurinn er nýbú- Tafla 2. Niðurstöður. Börnin: Hin hljóðu fórnarlömb heimilisofbeldis – séð frá sjónarhóli mæðra þeirra sem búið hafa við heimilisofbeldi Voru börnin vitni að ofbeldinu? Jóna 55-65 Háskóli 18 ára 21 ár A, L, F, K 3 U,U,U Já Ungl., F,F Linda 35-45 Grunnskóli 35 ára 4 ár A, F 2 U,U Já L,U Lára 45-55 Háskóli 17 ára 9 ár A, L 1 U Já F Guðrún 25-35 Háskóli 18 ára 4 ár A, L, K, F 1 U Já S Sigrún 25-35 Háskóli 26 ára 1 ár A, L 1 Fór á meðan barnsh. Já L Inga 25-35 Iðnskóli 15 ára 9 ár A, L, K 1 (er barnsh.) U Já S Bára 25-35 Grunnskóli 24 ára 8 ár A, L, K, F 2 U,U Já S,S Dísa 65-75 Iðnskóli 18 ára 40 ár A, L, F 3 (er barnsh.) U,U,U Já F,F Halla 15-25 Grunnskóli 17 ára 4 ár A, K Er barnshafandi Á ekki við Á ekki við Á ekki við Elsa 15-25 Stúdent 17 ára 3 ár A, L, K 1 U Já L Nanna 25-35 Háskóli 22 ára 9 ár A, K 1 U Já L Anna 35-45 Grunnskóli 17 ára 9 ár A, L, K, F 3 (er barnsh.) U,U,U Já Ungl., Ungl., S Meðaltal 37.5 ár Mikil breidd 19.5 ár 10.1 ár *Sjá skýringu 2 börn Öll börnin Nafn Aldur Menntun Aldur konu þegar ofbeldissamband hófst Aldur barna þegar ofbeldi hófst Voru börnin vitni að ofbeldinu? Árafjöldi í ofbeldis- sambandi Hverskonar ofbeldi? Fjöldi barna á ofbeldis- tíma Tafla 1. Lýsing á þátttakendum. *Skýring við töflu: Þar sem talið er upp hvers konar ofbeldi: L= líkamlegt ofbeldi, K= kynferðislegt ofbeldi, A= andlegt ofbeldi, F= fjárhagslegt ofbeldi. Allar bjuggu konurnar við fleiri en eina tegund ofbeldi. Aldur barna þegar ofbeldi hófst: Ungbarnaaldur (0-2 ára) = U. Leikskólaaldur (2-6 ára) = L. Skólaaldur (6-12 ára) = S. Unglingsaldur (12-18 ára) = Ungl. Fullorðin (eldri en 18 ára) = F. Aldur barna í dag Fyrir skilnað Eftir skilnað og staðan í dag Horft til framtíðar Tilfinningaleg viðbrögð barnanna einkenndust af hræðslu, áhyggjum og svefntruflunum ásamt lélegri matarlyst. Andfélagsleg einkenni komu fram hjá sumum börnunum m.a. í virðingarleysi, mótþróa, óhlýðni, ögrun, storkun og hortugheitum gagn- vart móðurinni og öðrum fullorðnum. Geðrænar afleiðingar. Mörg börnin fundu fyrir kvíða og eitt barn greindist með kvíða þegar á leikskólaaldri og tvö greindust með athyglis- brest – ADHD. Jákvæðar breytingar á líðan barnanna, bæði heima og í skóla. Langvarandi neikvæðar tilfinningar og hræðsla yngri barnanna gagn- vart feðrunum sem m.a. kom fram í því að þau vildu ekki fara til þeirra um helgar. Erfiðar endurminningar. Heimilisofbeldið sækir á börnin og þau eru talsvert að hugsa og spyrja út frá sárum minningum. Langvarandi reiði eldri barnanna sem kemur m.a. fram í því að þau vilja sum skipta um nafn og kenna sig við móður sína. Áhyggjur og hræðsla mæðranna vegna barnanna. Mæðurnar eru hræddar um börnin sín gagnvart feðrum barnanna sem halda áfram ofbeldisfullri hegðun lengi eftir skilnaðinn. Áhyggjur mæðranna af framtíðar samskiptamynstri barnanna. Mæðurnar óttast að börnin þeirra fari í sama far og þau upplifðu á bernskuheimili sínu.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.