Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 15

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 15
15Ljósmæðrablaðið - Sumar 2010 isol hjá móður og fóstri. Rannsóknir hafa ennfremur sýnt að breyting getur orðið á heila og taugaþroska fósturs ef móðirin býr við mikla streitu á meðgöngunni og jafnvel síðustu sex mánuði fyrir meðgöngu (Khas- han o.fl., 2008). Líðan kvenna á meðgöngu getur einnig haft áhrif á þroska ónæmis- kerfisins hjá fóstrinu (Mattes o.fl., 2009). Þegar barn elst strax í móðurkviði upp við svo mikið áreiti sem heimilisofbeldi er, þá venjast líkamskerfi barnsins á að vera alltaf á hættustigi sem síðan getur leitt til sjúk- dóma seinna á ævinni (Turner, Finkelhor og Ormrod, 2006). Shonkoff og félagar (2009) skipta streitu í nokkur stig og eitt þeirra er eitruð streita (toxic stress) sem getur haft áhrif á heila- byggingu fóstursins og hefur einnig áhrif á önnur líffæri. Slík streita á fósturskeiði veldur lægri mótstöðu fyrir hvers kyns streitusjúkdómum langt fram á fullorðins- aldur svo sem hjarta-, lungna- og geðsjúk- dómum. Endurtekið andlegt og líkamlegt ofbeldi og heimilisofbeldi eru dæmi um þætti sem valdið geta eitraðri streitu. Nýlegar rannsóknir sýna ennfremur að streita móður á meðgöngu og fyrstu vikur og mánuði eftir fæðingu getur haft áhrif á börn þeirra þannig að þau þroskist seinna og jafnvel ýtt undir þroskafrávik eins og athyglisbrest – ADHD og önnur hegðunar- vandamál (Bergman, Sarkar, Glover og O‘Connor, 2008; Kernick, Wolf, Holt, Mill og Petronis, 2008; Talge o.fl., 2007). Þá er vitað að konur sem búa við heimilisofbeldi hafa neikvæðara viðhorf til meðgöngunnar (Jarvis, Gordon og Novaco, 2005) og að konur sem búa við mikla streitu eru líklegri en aðrar til að fæða fyrir tímann (Khashan, o.fl., 2009). Áhrif heimilisofbeldis á börn og unglinga Ung börn sem verða vitni að heimilisof- beldi sýna meiri kvíða, ótta, reiði og eru í meiri hættu á að sýna ofbeldi gagnvart öðrum (Graham-Bermann, 1996; Osofsky, 1995). Þau hafa fleiri atferlisvandamál, er hættara við þunglyndi og eru líklegri til að eiga við önnur sálfélagsleg vandamál að stríða heldur en börn sem ekki hafa orðið vitni að ofbeldi á heimilinu (Sternberg, Baradaran, Abbott, Lamb og Guterman, 2006; Wolfe, Crooks, Lee, McIntyre- Smith og Jaffe, 2003). Án íhlutunar eru þau í hættu á að verða afbrotaunglingar (Carlson, 1990) og sýna ofbeldishegðun á fullorðinsárum (Sugarman og Hotaling, 1989). Eins og mæðrum þeirra, er börnum sem búa við heimilisofbeldi hættara við að fá áfallastreituröskun (Lieberman, Van Horn og Ippen, 2005) og geta farið upp á móti öllu í andfélagslegri hegðun (Litrow- nik, Newton, Hunter, English og Everson, 2003) sem getur gert uppalendum erfitt fyrir í uppeldishlutverkinu (Timmer, Ware, Urquiza og Zebell, 2010). Í samantekt frá Women‘s Aid sem gefið er út reglulega til að kynna helstu niður- stöður rannsókna á heimilisofbeldi, kemur fram að heimilisofbeldi geti haft ýmis heilsufarsleg áhrif á börn. Þar má nefna hegðunarvandamál, þunglyndi, kvíða, erfiðleika með svefn, fengið martraðir, verið viðbrigðin, kvartað yfir kviðverkjum, sýnt skapsveiflur, byrjað aftur að væta sig, hegðað sér eins og þau væru miklu yngri en þau eru, vandræði geta komið upp í skólagöngu og þau geta orðið einræn. Unglingum er hættara við að flosna upp úr skóla, byrja að nota vímuefni, sýna sjálfskaðandi hegðun og fleira (Women‘s Aid, 2004/05). Eftir skilnað eru börnin stundum notuð til að njósna um móður sína, þau notuð til að hóta henni eða vera milligöngumenn í því að móðirin taki við ofbeldismanninum aftur inn á heimilið. Þá eru börn sem búa við heimilisofbeldi í mikilli hættu á að lenda í tilfinninga- og hegðunarvandamálum þegar þau eldast. Þau geta sýnt einkenni eins og reiði og kvíða, geta pissað undir fram eftir aldri, orðið þunglynd, misnotað lyf og áfengi og stundað sjálfskaðandi hegðun (Hegarty, Taft og Feder, 2008). Í rannsókn Graham-Bermann og Perkins (2010) á 190 börnum á aldrinum 6-12 ára sem höfðu búið við heimilisofbeldi kom fram að þeim mun lengur sem börnin höfðu búið við ofbeldið og þeim mun oftar sem þau höfðu orðið vitni að því þeim mun alvarlegri voru áhrifin á líkamlega heilsu þeirra, andlega heilsu, félagsþroska og vitrænan þroska. Kerfisbundin heim- ildarannsókn Wolfe og félaga (2003) á áhrifum heimilisofbeldis á börn sýndi að 40-60% skólabarna sem höfðu orðið vitni að heimilisofbeldi höfðu orðið fyrir neikvæðum áhrifum sem ýmist beindust inn á við (internalizing, stundum þýtt sem innhverfing) svo sem kvíða og þunglyndi eða út á við (externalizing, stundum þýtt sem úthverfing) svo sem með reiði og árásargirni, sem rannsakendur telja sýna þörfina á því að þessi börn fái einhvers konar íhlutun. Russell, Springer og Green- field (2010) rannsökuðu 1.175 einstaklinga á aldrinum 20-24 ára á Miami, Florida og komust að þeirri niðurstöðu að því alvar- legra heimilisofbeldi sem ungmennin höfðu orðið vitni að sem börn þeim mun meira jukust líkurnar á þunglyndi hjá þeim og þeim mun oftar sem þau höfðu orðið vitni að heimilisofbeldi jukust líkurnar enn meir á þunglyndi. Rannsókn- arniðurstöður Graham-Bermann og Seng (2005) sem varðaði heilsu 160 leikskóla- barna sýndi að bæði ofbeldi og streita tengdust heilsuvandamálum forskóla- barna, svo sem astma, ofnæmi, ADHD, og streitutengdum kvörtunum svo sem meltingarvandamálum og höfuðverk. Þá kom einnig fram að léleg heilsa móður og streita barnsins höfðu sterkustu fylgnina við slæma heilsu barnsins. Í ofangreindri samantekt frá Women‘s Aid (2004/05) kemur fram að börn sem búa á heimilum þar sem heimilisofbeldi er til staðar verða yfirleitt vitni að því og oft verða þau fyrir barðinu á því líka. Í skýrslu frá Samtökum um Kvennaathvarf segir að árið 2008 hafi 77 börn komið til dvalar með mæðrum sínum í Kvennaathvarfið. Í 70% tilvika höfðu börnin verið beitt ofbeldi og hefur hlutfall þeirra barna sem hafa verið beitt ofbeldi farið hækkandi undanfarin ár (Samtök um Kvennaathvarf, 2008). Rannsóknin „Heimilisofbeldi á meðgöngu frá sjónarhóli kvenna“ var þríþætt: 1. Áhrif heimilisofbeldisins á konurnar frá sjónarhóli kvennanna. Hefur þegar verið kynnt (Ástþóra Kristinsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir, 2010). 2. Áhrif heimilisofbeldisins á börnin frá sjónarhóli kvennanna. Sá þáttur er kynntur í þessari grein. 3. Lýsing á mönnunum frá sjónarhóli kvennanna. Sá þáttur verður kynntur síðar. Tilgangur þess hluta rannsóknarinnar sem hér er kynntur er að lýsa áhrifum heimilis- ofbeldis á þau íslensku börn sem mæðurnar áttu á meðan þær bjuggu við heimilisof- beldið. Áhrifunum er því lýst frá sjónarhóli mæðra barnanna. Rannsóknarspurningin er: „Hver eru áhrif heimilisofbeldis á börn séð frá sjónarhóli mæðra þeirra, sem búið hafa við heimilisofbeldi á meðgöngu og endranær?“ Aðferðafræðin Til að svara rannsóknarspurningunni var valin fyrirbærafræðileg aðferð, Vancouver- skólinn í fyrirbærafræði (Sigríður Hall- dórsdóttir, 2000, 2003), sem lýst var í Ljósmæðrablaðinu [88(1)] þar sem fyrsti hluti rannsóknarinnar var kynntur (Ástþóra Kristinsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir, 2010). Þar voru kynnt þrep rannsóknar- ferlisins í Vancouver-skólanum og hvernig þeim var fylgt í þessari rannsókn, vitrænum meginþáttum í rannsóknarferlinu lýst sem og þátttakendum, gagnasöfnun og gagna- greiningu ásamt umfjöllun um réttmæti rannsóknarinnar. Að lokum var fjallað um siðfræði rannsóknarinnar og getið þess leyfis sem fengið var hjá Vísindasiðanefnd (tilvísun SVNb2009010006/03.7) og að rannsóknin var tilkynnt til Persónuverndar (tilvísun: S4206/2009/LSL/-). Í töflu 1 er lýsing á þátttakendum í rannsókninni m.a. aldri þeirra, menntun, aldur konu þegar ofbeldissamband hófst, árafjölda í ofbeld- issambandi og hvers konar ofbeldi konan bjó við. Þar er einnig yfirlit yfir fjölda og aldur barnanna, hvort þau urðu vitni að ofbeldinu ásamt yfirliti yfir aldur barnanna í dag.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.