Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Qupperneq 14
14 Ljósmæðrablaðið - desember 2010
Útdráttur
Rannsóknir benda til að heimilisofbeldi hafi
víðtæk og langvinn áhrif á börn. Tilgangur
þess hluta rannsóknarinnar „Heimilisof-
beldi á meðgöngu frá sjónarhóli kvenna“
sem hér er kynntur var að kanna áhrif heim-
ilisofbeldis á börn séð frá sjónarhóli mæðra
þeirra. Rannsóknaraðferðin var Vancouver-
skólinn í fyrirbærafræði sem hentar vel til að
rannsaka slík mannleg fyrirbæri. Tekin voru
15 viðtöl við 12 konur á aldrinum 18-72
ára, meðalaldur þeirra var 37 ½ ár. Niður-
stöður lýsa mikilli streitu hjá börnunum.
Þau urðu öll vitni að ofbeldinu og ólust
upp við aðstæður þar sem þau voru sífellt
hrædd, kvíðin og áhyggjufull. Eitt barnið
hafði verið greint með kvíða strax í leikskóla
og tvö voru greind með athyglisbrest. Sum
börnin fóru að sýna andfélagslega hegðun.
Eftir skilnað voru mörg barnanna ennþá
hrædd við föður sinn og vildu ekki fara
til hans um helgar. Flest börnin sýndu þó
jákvæðar breytingar til hins betra í kjölfar
skilnaðar bæði í líðan heima og í skóla.
Slæmar minningar tengdar heimilisofbeld-
inu sóttu þó á börnin og þau voru talsvert
að spyrja út í sárar minningar. Sum eldri
börnin voru reið út í föður sinn og ofbeldi
hans og vildu jafnvel skipta um nafn og
kenna sig við móður sína. Fagfólk verður
að þekkja áhrif heimilisofbeldis á börn og
hvaða leiðir eru bestar til að aðstoða konur
sem búa við heimilisofbeldi og minnka
þannig hættu á langvarandi skaðlegum
áhrifum á börn og mæður þeirra.
Lykilorð: Börn, meðganga, heimilisofbeldi,
makaofbeldi, þolendur heimilisofbeldis, fyrir-
bærafræði, viðtöl.
Abstract
Children: The silent victims of domestic
violence – Seen from the perspective of
their mothers who have been abused in
pregnancy and at other times
Research results indicate that domestic
violence has widespread and long term
effects on children. The purpose of the part
of the study „Domestic violence in pregnancy
from women‘s perspective,“ which is intro-
duced here, was to study domestic violence’s
effects on children seen from the perspective
of their mothers. The research methodology
was the Vancouver School of doing phenom-
enology which has proven effective in study-
ing human phenomena. Fifteen interviews
were conducted with 12 women, aged 18-72
years. Mean age was 37 ½ years. The results
show a great deal of stress in the children.
They all witnessed the violence and grew up
in circumstances where they were constantly
frightened, worried and anxious. One of the
children had been diagnosed with anxiety
already in preschool and two were diagnosed
with attention deficit. Some of the children
began to show antisocial behaviour. After
divorce many of the children were still afraid
of their father and did not want to visit him
at week-ends. Most of the children showed
changes for the better after divorce, feel-
ing better both at home and at school. Bad
memories attached to the violence haunted
them, however, and they asked a lot about
memories that still hurt. Some of the older
children were still angry at their father and
his violence and even wanted to change
their name and take their mother’s name as
surname. Professionals must know the effects
domestic violence has on children and what
ways are best to help women who live in
domestic violence and thus reduce the danger
of long term detrimental influence on the
children and their mothers.
Keywords: Children, domestic violence,
spouse abuse, abuse survivors, phenom-
enology, interviews.
Inngangur
Að búa við heimilisofbeldi getur valdið
mikilli streitu hjá barnshafandi konu
(Ástþóra Kristinsdóttir og Sigríður Hall-
dórsdóttir, 2010). Undanfarin ár hafa áhrif
streitu hjá móður á barn sem hún gengur
með mikið verið rannsökuð. Talge, Neal
og Glover (2007) sýndu fram á samband
milli hás gildis streituhormónsins cort-
Börnin: Hin hljóðu fórnarlömb
heimilisofbeldis
Séð frá sjónarhóli mæðra þeirra sem hafa búið við heimilis-
ofbeldi á meðgöngu og endranær
Sigríður Halldórsdóttir
Prófessor við heilbrigðisvísindasvið
Háskólans á Akureyri
Ástþóra Kristinsdóttir
Ljósmóðir og hjúkrunarstjóri,
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins.
R I T R Ý N D G R E I N
Önnur grein af þremur um reynslu kvenna af ofbeldi á meðgöngu og endranær.
Í þessari grein er fjallað um áhrif ofbeldisins á börnin. Í síðustu greininni verður fjallað um ofbeldismennina.