Stjarnan - 01.02.1930, Síða 16
“Sigrandi og til þess að sigra.”
Aldrei liafa heiðin trúarbrögg gjört eins miklar tilraunir til að halda kenn-
ingum sínum á lofti um allan heim og nú. Jafnvel í höfuðborg Bandaríkjanna
prédika Búddatrúarmenn af kappi, til að koma hvítum lærðum mönnum á sina
skoðun. Þetta var einmitt það, sem Jesaja spámaður .fyrirsagði i þessum orðum:
“Þeir eru allir i austurlenzkum göldrum og spáförum.” Jes. 2 :6.
Kaþólskan hefir með sínum nýfengnu veraldarvöldum ákveðið að draga allan
heiminn undir fána sinn og vald og mun það hepnast henni um stundar sakir, því
að vér lesum: “Öll jörðin fylgdi dýrinu með undrun.”
Mótmælenda kirkjurnar sameina sig í eina volduga heild og mynda þannig
líkneski af kaþólskunni, til þess að geta haft áhrif á stjórn landsins og notað hana
sem vinnukonu sína, til að framkvæma það, sem þetta sameinaða vald kirnanna
kynni að heimta af henni. “Og þvi var veitt að gefa líkneski dýrsins anda, til
þess að líkneski dýrsins gæti jafnvel talað, og komið því til leiðar, .að allir yrðu
deyddir, sem ekki skyldu vilja tilbiðja líkneski dýrsins.” O’pinib. 13:15. Af þessu
er auðséð að þetta sameinaða vald Mótmælenda kirknanna verður eins hræðilegt
ofsóknarvald og kaþólskan var.
Andatrúin smeygir sér allstaðar inn í kirkjurnar og gagnsýrir þær og þar
af leiðandi fer kristindómurinn rénandi og kirkjudómurinn vaxandi. Opinb. 18:
i-3-
Meðan þetta á sér stað í kirkjunum í heimalöndunum, er hin voldugasta
kristniboðshreyfing að1 dreifast út um allan heim og fara frá einni þjóð til annarar.
Boðskapurinn, sem Guð nú fyrir munn þjóna sinna kunngjörir heiminum, er
fundinn í Opinb. 14:6-12. Þeir prédika nú, samkvæmt nýútkomnum skýrslum, á
347 tungumálUm. Þeir hafa upp á síökastið kunngjört þennan boðskap á nýju
tungumáli með sex og hálfs dags millibili. Þessi boðskapur verður nú prentaður
á 141 tungumálum. Það hefir engin hreyfing1 verið í allri sögu mannkynsins, sem
getur jafnast við þessa. Kristur lýsti henni með svofeldum orðum: “Þessi fagn-
aðarboðskapur um ríkið mun prédikaður verða um alla heimsbygðina, til vitnis-
burðar öllum þjóðum; og þá mun endirinn koma.” Matt. 24:14. Fáein dæmi
munu fljótt sannfæra oss um “að Drottinn mun gjöra upp reikning sinn á jörð-
unni, binda enda á hann og ljúka við hann i skyndi.” Róm. 9:28.
1 einni rammkaþólskri borg neituðu prestarnir að fyrirgefa fólkinu, sem
gekk til skrifta, vegna þess að það hafði keypt bækur af Sjöunda dags adventist-
um. Ein fjölskylda fór þá að halda hinn sanna hvíldardag Drottins helgan og
innan skamms fylgdu svo margar fjölskyldur dæmi hennar að söfnuður var mynd-
aður og margar fleiri fjölskyldur standa reiðubúnar til að ganga í hann.
Margir af svertingjunum í Afríku, sem hafa veitt elskunni til sannleikans
viðtöku og hlýða boðum Guðs, fara út í þorp hinna' heiðnu landa sinna og prédika
Krist fyrir þeim og menn svo hundruðum skiftir veitir honum viðtöku. Þeir
koma með hin gömlu skurðgoð sín og gjöra eldsmat lir jieim. Einn af kristni-
boðum vorum, sem er læknir, hefir síðustu árin læknað fjölda marga holdsveika
sjúklinga i Afríku og er breska stjórnin i Afríku ótilkvödd farin aö styðja það
háleita verk.
Á eyjunum i Suður-hafinu koma mannætur, sem alla sína æfi hafa etið manna-
kjöt og drukkið mannablóð í veizlum sínum, yfir í herbúðir vorar og verða svo
góðir kristnir, að kristniboðarnir geta farið aö heiman á ráðstefnu í Ástralíu, án
þess að þurfa að læsa dyrum, skúffum og kistum í húsinu, og komið heim aftur
að sex vikum liðnum og fundið alt eins og þeir skildu við það. Ætli það myndi
véra eins ugglaust að skilja húsin þannig eftir í þessum svokölluðu kristnu lönd-
utn?—Alt þetta segir oss skýrum orðum, að akrarnir séu þegar hvítir til upp-
skerun’nar, sem nú fer í hönd. “Fyrir því skuluð og þér vera viðbúnir, því að
Manns-Sonurinn kemur á þeirri stundu, sem þér eigi ætlið.” Matt. 24 :44.