Stjarnan - 01.07.1932, Blaðsíða 6

Stjarnan - 01.07.1932, Blaðsíða 6
102 STJARNAN þeir eru í landi óvina sinna, hafna eg þeim ekki og býSur mér ekki viS þeim, svo aS eg vilji aleySa þeim, og rjúfa þannig sátt- mála minn viS þá, því aS eg er Drottinn GuS þeirra.” “Þetta aS ofsóknum hefir aS nokkru leyti lint, er ennþá eitt tákn upp á þaS, aS endurkoma Krists og endir heimsins er í nánd. Um allar þessar aldir hefir hin daglega reynsla GySinganna veriS óyggj- andi sönnun fyrir áreiSanlegleika spádóm- anna. Spádómar þessir eru einfaldir, á- kveSnir og nákvæmir, og uppfylling þeirra er bókstafleg, fullkomin og ó- hrekjandi.” “ Verði þinn vilji ” (Framh. frá bls. 99) og því sé bezt aS hugsa sem minst um trúmál. En ef þú af öllu hjarta trúir á Jesúm, þá þarftu ekki aS óttast slíkt, því hann segir, aS Ritningin geti ekki raskast. Jóh. 10:35. Þegar þú svo heyrir mismun- andi kenningar í kristindómsmálum, þá prófa þú þær meS GuSs heilaga orSi, og gættu því i GuSs nafni, og vegna þinnar eilífu velferSar, aS þú svo fylgir GuSs orSi, sem mun standa stöSugt, þó himin og jörS forgangi, en lát eigi blekkjast af skoSunum heimsins, tilfinningum þínum, eSa því, sem þú kallar fagra siSi. Minstu þess aS Jesús segir um manna kenningar: “Sérhver jurt sem minn himneski FaSir hefir eigi gróSursett mun upprætt verSa,” og “til einkis dýrka þeir mig, er þeir kenna lærdóma sem eru manna boSorS.” Matt. 15 :13.9. “Sá, sem gjörir Guðs vilja varir að eilífu.” i. Jóh. 2:17. Er þér al- vara, þegar þú biöur GuS: “VerSi þinn vilji?” Breytni þín svarar þeirri spurn- ingu. “Villist ekki. GuS lætur ekki. aS sér hæSa, því aS þaS sem maSur sáir, þaS mun hann og uppskera.” Gal. 6:7. Öruggur grundvöllur Ef alt í heiminum væri bygt á GuSs orSi, þá væru menn lausir viS sorg og vonbrigSi. Ekkert er eins áríSandi eins og þaS aS vita aS vér byggjum á traustum grundvelli. Ef menn reisa íbúSarhús, þá líta þeir eftir aS undirstaðan sé áreiSan- leg, og þvi vandaSra sem húsiS á aS vera, því nákvæmara gefa menn gætur aS grundvellinum. Þegar eilífSar framtíS mannsins er um aS ræSa þá ættu menn aS vera enn þá varkárari. ÞaS er mögu- legt aS vita um áreiSanlegleika vonar vorrar. Vér skulum leita í GuSs orSi aS grundvellinum fyrir þessari fullvissu. í Ez. 12:22 ávítar GuS fólk sitt fyrir þetta orStak: “Tíminn dregst og allar vitranir reynast marklausar.” Nú höfum vér prédikaö táknin upp á endurkomu Krists í 80 ár, en mörgum sýnist nú; sem koma hans sé f jarlægari heldur en þegar þeir fyrst tóku trú. Vér erum aSeins duft. ÞaS er eSli manns aS efast. HiS verald- lega og tímanlega umkringir oss á allar hliSar. Menn heyra guSsafneitun og fyrirlitningu alt umhverfis, þar til maS- ur sýkist af því sama, nema maSur verji sig meS því aS sitja stöSugt viS fætur Jesú til aS læra af honum. ÞaS er hætta á því aS margir, sem hafa smakkaS GuSs góöa orS og kraft komandi aldar hrekist af leiS fyrir hinum stríSa straumi vantrú- arinnar, sem nú gengur yfir heiminn. Bylgjur vantrúarinnar hafa þegar skolaS burt ýmsum boSberum kristindómsins, af þvi þeir stöSu ekki grundvallaSir á hinu trausta bjargi, GuSs orSi. Satan neytir allra bragSa til aS ná hinum bestu og göf- ugustu starfsmönnum Drottins í net sitt, svo þeir hætti aS vinna fyrir GuSs ríki. Kæri lesari, GuS gefi þér og mér sigur yfir öllum freistingum, fyrir óbifanlega trú á orS Drottins, sem lifir og varir aS eilífu. S. Johnson. O. E. S.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.