Stjarnan - 01.07.1932, Blaðsíða 14

Stjarnan - 01.07.1932, Blaðsíða 14
IIO STJARNAN stakk upp garSinn fyrir, sagöi mér frá smíÖatóla félagi, sem vantaÖi mann í einn e8a tvo daga. Eg náði í þaí5 og fór að vinna þar daginn eftir. Eg spurði ekkert um kaupiÖ, en þeir borguðu mér 5 dollara á dag. Eg vann þar í tvo daga, og hugs- aðu þér bara. Formaður smíÖatóla verk- smiðjunnar gaf mér meSmæli til kunn- ingja síns, sem verslar meÖ víÖvarpstæki, svo nú hefi eg fengið vinnu með hærra kaupi en nokkru sinni fyr. Eg byrja þar á morgun. Jón var frá sér numinn af gleði. “Hefir þaÖ ekki gengiÖ vel, frændi, síðan þú sagðir mér að nóg vinna væri til? Áður fann eg enga vinnu, af því eg hélt hún væri ekki til.” X Turngæzlumaðurinn og átjörnufræðingurinn (Framh. frá bls. 108) laus, tárin glitruðu í augum hans. Loks greip hann hönd turngæzlumannsins og sagði hrærður: “Þú ert bæði vitrari og betri en eg, og Biblían kennir þér háleit- ari sannleika en eg get lært af stjörnun- um.” Þannig endaði saga gamla mannsins. Ungi maðurinn stóð upp og sagði: “Eg þakka þér, faðir Martin, fyrir það sem þú hefir kent mér í dag. Frændi þinn var í sannleika meiri fræðimaður heldur en dr. Blankenhagen.”—K.K.L. Hreinhjartaðir “Sælir eru hreinhjartaðir því þeir munu Guð sjá.” Matt. 5 :8. Hreinleiki hjartans ætti að vera hið mikla takmark er vér keppum eftir. Vor innri maður verður að hreinsast fyrir orð og anda GuSs. Og þegar þetta verður mun einnig vor ytri maður verða hreinn í allri framkorrtu. Mjög náið samband er milli tilfinninga vorra og skynsemi vorr- ar. Ef vér elskum hið illa þá verður oss næsta örðugt að skilja hvað gott er. Ef hjarta vort er óhreint, mun auga vort sljófgast. Hvernig geta menn sem elska vanheilaga hluti, séð hinn heilaga Guð? Ó hvílík sæla að fá að sjá Guð, þegar hér á jörðu. Ljómi hans er himin á jörðu. Hinir hreinhjörtuðu sjá föðurinn í Kristi. Vér sjáum sannleika hans, kær- leika, speki, og mátt, vilja hans og fyrir- ætlanir, já, sjálfan hann. En þetta getur ekki orðið nema vér snúum oss frá synd- inni. Aðeins þeir, sem sækjast eftir heilagleika geta sagt: “Augu mín líta ætíð til Drottins.” Bæn Mose: “Sýndu mér þína dýrð,” getur aðeins orðið heyrð ef vér hreinsumst frá öllu ranglæti.” “Vér munum sjá hann eins og hann er, og hver sem hefir þessa von til hans hreinsar sjálfan sig eins og hann er hreinn.” Sælan sem samfélagið við Drottinn veitir, og hin dýrðlega von, sem vér höfum um að sjá hann, ætti að vera oss öflug hvöt, til að sækjast eftir hreinleika til orða og verka, og fyrir Guðs náð getum vér öðlast hann. Drottinn, skapa í oss hreint hjarta, svo vér getum sé'ö þig. C. H. S. Senorita Carmen Portino, 25 ára að aldri, er vélfræðingur borgarinnar Rio de Janeiro, höfuðborgar Brazilíu. Síðast- liðið haust var hún fulltrúi á vegalagn- ingaþingi þjóðanna, sem haldið var í Washington. Pulltrúar dáðust að hátt- prýði hennar. Senorita Portino lagöi sig eftir vélafræði á háskólanum, og kvaðst hún enga námsgrein hafa fundið jafn skemtilega. Hún hefir eftirlit með öllum opinberum byggingum í Rio de Janeiro, nú sem stendur er henni mest umhugað um vegabætur. Hún áformar að stein- leggja strætin á milli bygginga þeirra, sem borgin hefir umráð yfir. Hún var eini kvenmaðurinn á þessum vélfræðinga fundi.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.