Stjarnan - 01.07.1932, Blaðsíða 13

Stjarnan - 01.07.1932, Blaðsíða 13
STJARNAN Reyndu aftur Veður var hið fegursta, en Jón sá ekki sólina, hann var í svo döpru bragÖi. Hann var bæði vinnulaus og félaus, og var nú á leiðinni til að heimsækja frænda sinn. “Eg kom til at> leita ráða hjá þér, frændi,” sagði Jón. “Eg misti vinnuna fyrir 6 mánuðum og hefi haldið til hjá kunningjum mínum síðan, en þeir hafa nóg með sig. Eg hefi ekki peninga til að komast heim. Eg hef farið um alt til að leita mér atvinnu, en vinnu er hvergi að finna.” “Hvaða vinnu getur þú gjört?” spurSi frændi hans, sem var nokkurskonar mátt- arstoð og meðráðamaður fólks í hérað- inu. “Eg vann fyrir víðvarpsfélag í þrjú ár, og hafði 300 dollara á mánuði, meðan nóg var af vinnu og peningum,” svaraði Jón. “Það er nóg til af peningum, drengur minn”, svaraði gamli maðurinn. “Fólkið er bara hrætt um að missa þá og hrúgar þeim saman.” Jón var heldur daufur á svip og segir: “Getur verið að nóg sé til af peningum, en þeir sem hafa þá, halda dauSahaldi 1 þá. Það er enga vinnu að fá. Hvar sem eg hefi reynt eru þeir að leggja af menn. í gær heimsótti eg formann fyrir véla- verksmiðju, og hann sagðist hafa hundrað umsækjendur fyrir hvert pláss sem losn- aði.” “Það er hægt að fá vinnu, Jón,” svaraði frændi hans. Jón hristi höfuðið og sagði: “Eg ætla ekki að þræta við þig, frændi, en þú hefir ekki veriS út um alt til að 'leitast fyrir um vinnu, en eg hefi verið alstaðar og get sagt þér að vinna fæst ekki.” Það mátti vel sjá að Jóni var farið að renna í skap. “Það getur verið að þú finnir ekki þá vinnu, sem þig vantar, en eg er sann- færður um að þú getur farið út í dag, og unnið þér inn þrjá dollara, en þú hugsar ef til vill að þú ættir að hafa 10 dollara á dag fyrir vinnu þína.’' “Eg vildi þú gætir sagt mér hvar eg get unnið mér inn þrjá dollara. Eg er fús til að gjöra hvað sem er. Eg hefi ekki cent í vasanum, og eg verð að hafa eitthvað að eta.” “Þú getur farið inn í betri hluta borg- arinnar, í vinnufötum þínum, heimsótt fólkið þar og boðist til að þvo bíla fyrir einn dollar, þú getur að minsta kosti feng- ið þrjá bíla til að þvo í dag, þú hefir varla tíma til að gjöra meira. Og gjörðu það vel. Það eru svo margir sem gjarnan vilja láta þvo bíla sína en hafa ekki tíma til að fara með þá á bifreiðastöðvar og bíða þeirra þar. Eg þekki tvo negra, sem hafa gjört þetta, og þeir hafa unnið sér inn um eða yfir 5 dollara á dag aS jafn- aði. Ef þú vilt ekki gjöra þetta, þá getur þú heimsótt húsmæðurnar ,0g boðist til að hreinsa gólfteppi þeirra, þvo glugga og sópa kjalara, stinga upp garða og setja niður blóm. Eg er viss um að þú getur unnið þér inn 40 cent á klukkutíma í betri hluta bæjarins. Þú hefir að líkindum aldrei gjört þessháttar vinnu, en það er þess vert að reyna, og þú getur lært á því. Auk þess getur það opnað veg að annari vinnu, ef maður vinnur með dugn- aði og áhuga aS hverju sem er.” “Eg verð að kannast við, að eg hefi aldrei hugsað um þetta,” sagði Jón, “en eg skal reyna það.” Þremur dögum seinna kom Jón til að heimsækja frænda sinn, og nú lék bros um varir hans. “Eg þvoði tvo bíla og stakk upp garð, það sem eftir var af deg- inum þegar eg talaði við þig síðast, frændi,” sagði hann, “og eg vann mér inn þrjá og hálfan dollar. Maðurinn, sem eg

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.