Stjarnan - 01.07.1932, Page 15
STJARNAN
iii
Smávegis
Skólakennari einn í SvíþjóS hafÖi
fengið tveggja daga frí til að gifta sig.
En hann var burtu í 4 daga. Þetta gramd-
ist fólkinu svo mjög, að skólastjórnin
varð að taka málið til meðferðar. Spurn-
ingin var, hvað ætti að gjöra við kennar-
ann. Presturinn, sem var atkvæðamaður
sótti einnig fundinn, og sat hann lengi
þegjandi og hlustaði á samræðurnar, síð-
an tekur hann til máls og segir: “Það
stendur í Biblíunni að þeim, sem mikið
elskar sé mikið fyrirgefið. Eg sting upp
á því að vér fylgjum orðum Ritningar-
innar.” Með þessu var málið látið falla
niður.
Canada hefir 1,110 bókasöfn með hér
um bil 9,500,000 eintökum.
Gullnáma hefir fundist í Louvincourt
og Malartic, í norðvesturhluta Quebec
fylkisins. Belti þetta, þar sem gullið hefir
fundist er um 100 mílur á lengd, og frá
3-10 mílur á breidd.
Fjöldi karla og kvenna eru nú að flytja
út á land, frá borgum Bandaríkjanna.
Þeir hafa enga vinnu og ekkert að lifa á
í borgunum, svo þeim er veittur styrkur
til að koma undir sig fótunum, þar sem
þeir geta haft eitthvað að borða svo lengi
sem jörðin ber ávöxt sinn, og skógurinn
veitir timbur til eldsneytis og húsabygg-
inga.
Skólabörn í Bandaríkjunum lögðu 27
miljónir dollara inn á banka árið sem
leið. Þetta er nærri því dollar að meðaltali
fyrir hvert einasta barn, sem þar er á
skólaaldri.
Ný flugvél sem reynd var í Róm hefir
6 vængi, hún getur flogið 75 til 100 míl-
ur á klukkutíma, en er þó svo lítil að hún
kemst inn í venjulegt bifreiða skýli.
STJARNAN
kemur út mánaðarlega
Útgefendur: The Western Canadian
Union Conference S.D.A. Stjarnan kost-
ar $1.50 um árið í Canada, Bandaríkj-
unum og á Islandi. (Borgist fyrirfram).
Ritstjóri og ráðsmaður:
DAVtÐ GUÐBRANDSSON.
Skrifstofa:
306 Sheri>rooke St., Winnipeg, Man.
Phone: 31 708
Þá fyrst er vináttan sönn, þegar tveir
vinir gleðjast af því að vera saman, án
þess þó að mæla orð frá munni.—G. E.
Viktu aldrei frá því sem gott er og göf-
ugt. Gjörðu það ekki hvað sem i boði er.
Það er svo lítilmannlegt, og maður iðr-
ast þess svo sárt á eftir.—B. B.
Heimurinn tekur svo litlum framför-
um í siðgæði, af því menn vilja oftast
byrja á því, að endurbæta aðra en ekki
sjálfa sig.—X.
Ef þú elskar lífið þá eyddu ekki tíman-
um, því hann er það sem myndar lífið,—X.
Sá maður hlýtur að vera göfugur, sem
gleymir sinni eigin sorg af því að sjá
gleði vinar síns.
Hrós er hið sama fyrir sálina sem eitur
er fyrir líkamann, með þeim eina mismun,
að allir forðast eitrið, en sækjast eftir
hrósinu.
Hrein og göfug sál er hafin yfir móðg-
un, ranglæti, hæðni og sársauka, hún er
ósærandi af öðru en hluttekningu í ann-
ara kjörum.
Árið sem leið dóu yfir 7,000 manns af
bifreiðarslysum á Englandi, en 180,000
meiddust. Þess háttar slysum hefir fjölg-
að ár frá ári. Æjtla menn að víndrykkja
sé helzta orsökin. Jafnvel þó menn séu
ekki dauða drukknir þá eru þeir hvorki
eins aðgætnir né snarráðir þegar þeir eru
hreyfir af víni.