Stjarnan - 01.10.1932, Qupperneq 2

Stjarnan - 01.10.1932, Qupperneq 2
146 STJARNAN Hann kemur Hann, sem er “ofar hverri tign og valdi og mætti, ofar öllum herradómi og sér- hverju nafni, sem nefnt er, ekki aSeins í þessari veröld, heldur og í hinni tilkom- andi.” (Efes. 1:21), liann mun bráSum koma í skýjum meÖ veldi og dýrS mikilli. Sem skapari og herra alheimsins, stendur Kristur svo miklu ofar öllum jarSneskum stjórnendum, sem himininn er hærri en jörSin. Hann kemur ekki sem einn kon- unganna, heldur sem konungur konung- anna og Drottinn drotnanna. Jesajas kall- ar hann: “UndraráSgjafa, GuShetju, ei- lífSarföSur, friSarhöfSingja.” Þegar Jóhannes skírari boSaSi konm Krists í heiminn sagSi hann: "Gjörið iSrun því himnaríki er nálægt.” SvipaS ur boSskapur hljómar nú til íbúa heims- ins, því tíminn nálgast er Jesús kemur í dýrS sinni, til að samansafna fólki sínu, og veita því friS og frelsi. Endurkoma Krists verÖur hinn stærsti og hátíSlegasti atburSur, sem nokkurn tíma hefir átt sér staS, og allir íbúar heimsins ættu aS búa sig undir þenna mikilsverSa atburS. Spádómar Biblíunnar segja skýrt frá hvaÖ verSa muni áSur og um þaS leyti sem Jesús kemur. Hvernig hann kemur, til hvers hann kemur, og hvaSa áhrif koma hans hefir á heiminn. Þótt vér vitum hvorki daginn né stundina, þá vitum vér meS vissu aS koma hans er nálæg. Á- standiÖ í heiminum er einmitt eins og sagt er aS þaS muni verSa áSur en Jesús kemur. “Sjá, brúSguminn kemur, gangiS út til móts viS hann,” hljómar nú í heim- inum, og þúsundir manna búa sig til aS mæta honum. AS vera reiÖubúinn aS mæta honum, er hiS mest áríðandi í lifi mannsins. Einungis þeir, sem hafa hafn- að þekkingu, munu spyrja: HvaS verSur úr fyrirheitinu um komu hans?” Allir munu sjá hann þegar hann kemur. “Sjá hann kemur með skýjunum og hvert auga mun sjá hann.” Opinb. 1 íbúar heimsins munu ekki allir verða umventir og bjóSa hann velkominn, hann mun held- ur ekki koma til fáeinna útvaldra vina. Koma Krists verður opinber og á allra vitund. Þegar lærisveinarnir spurSu hann: “HvaS mun verða tákn komu þinnar og enda veraldar?” svaraÖi Jesús: “GætiS þess aS enginn leiði ySur í villu.” MeS þessu svari benti hann á, aþ rangar kenn- ingar um endurkomu hans og tilgang hennar mundu gjöra trieir og meir vart viS sig, eftir þvi setn tíminn nálgaSist. “Því aÖ eins og eldingin gengttr út frá austri og skín alt til vesturs, þannig ntun verða koma manns-sonarinns.” Matt. 24: 27. Enginn fals spámaður eða falskenning, þótt kraftaverk fylgi, getur jafnast á viS það sem hér er lýst að muni verða þegar Jesús kemur. Ekkert jarðneskt ljós er skærara en eldingin, geislar hennar eru sterkari en sólarljósiS, og þrengja sér inn í hvern krók og kima. Jesús sagði aS hann niundi koma í dýrð sinni, í dýrS föðursins og hinna heilögu engla. Feg- urS og kraftur eins engils hristi jörðina og skelfdi þá sem stóSu á verSi viS gröf Krists, svo þeir féllu til jarðar sem dauð- ir væru. Þegar Jesús kernur og allur herskari englanna með honum, þá mun himin- hvolfið ljóma meS svo mikilli dýrS, aÖ hinir óguðlegu geta ekki séð þaS og lifað. Þeir munu hrópa til fjallanna og hatnr- anna að hrynja yfir þá og hylja þá fyrir ásjónu hans, sem þeir hafa fyrirlitiS. Og af því þeir geta ekki falið sig þá munu þeir tortýmast og aS engu gjörast viS opinberun hans. Einungis þeir sem hér lifa í samfélagi viS Jesúm, og þroska hjá sér hans hugarfar, munu geta staÖist frammi fyrir honum á þeim mikla degi. T. G. B.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.