Stjarnan - 01.10.1932, Page 3

Stjarnan - 01.10.1932, Page 3
STJARNAN 147 Dœmisaga Einu sinni fanst ósléttur hvítur steinn á lítt bygðu landi. Börnin léku sér að honum á daginn, og létu hann liggja fyrir utan dyrnar á nóttunni. Steinar voru sjaldgæfir í þessum hluta landsins, annars hefðu börnin kastað honum og ekki hirt um hann frekar. Einu sinni gekk ókunnugur maður framhjá, og staðnæmdist fyrir utan kof- ann. Hann var bæði þreyttur og svangur, hann barði að dyrum og meðan hann beið þess aS opnað væri kom hann auga á steininn og tók hann upp. Hánn sagði þeim sem opnaði frá erindi sínu, og með- an hann beið eftir matnum rannsakaði hann steininn nákvæmlega. Börnin voru hissa að hann skyldi gefa svo nákvæmar gætur að leikfangi þeirra, og foreldrarnir skildu ekkert í að hann, sem virtist vera mentaður maður, skyldi eyða tímanum til að skoða ómerkilegan stein. Þegar gesturinn var ferðbúinn spurði hann hvers virði steinninn væri. “Hann er einskis virði,” svaraði húsbóndinn, “þú mátt eiga hann ef þú vilt.” “Nei,” svaraði maöurinn, “eg vil ekki þiggja hann endurgjaldslaust, eg skal gefa ykkur aleigu mína fyrir hann.” Og þrátt fyrir mótmæli fólksins tók hann peningapyngju upp úr vasa sínum og gaf þeim alt sem í henni var, fyrir steininn. Nú skulum við láta steininn segja frá reynslu sinni: “Hvers vegna tekur hann mig burtu frá litlu börnunum, sem þótti svo vænt um mig ? Hvers vegna lætur hann mig niður í dimma tösku, og flytur mig svo langt i burtu ? Eg sé enga ástæðu til þess. Að lokum kom ferðamaðurinn til stórr- ar borgar, og fór á fund gimsteinafægj- ara/ og sagði við hann: “Fægðu þenna stein fyrir mig, hafðu marga fbti á honum, verkið verður að vera svo vel af hendi leyst, að steinninn verði hæfur til að skreyta konungs kórónu.” Gimsteina fægjarinn tók strax til starfa. Hann mældi steininn nákvæmlega og gjörði ýmsa uppdrætti. “Hvað á alt þetta að þýða,” hugsaði steinninn með mér. Fyrst var hann fægður alt í kring þar til hann var nokkurn veginn sléttur, það var talsvert verk. HJann nuggaði steininn með sandpappír án þess að taka nokkuð tillit til hvernig hann fyndi til. Þegar hann var búinn sagði steinninn: “Eg vona þetta sé nú á enda, eg hefi liðið svo mikið. Eg er viss urn að enginn steinn hefir þolað slíka meðferð.” Gimsteinafægjarinn var aðeins byrj- aður á verki því, sem honum hafði veriö falið að gjöra. Steinninn var að visu orð- inn sléttur, en hann sendi ekki einn ein- asta geisla út frá sér. Nú var steinninn festur við plötu, og rispaðar línur á hann, alveg eins og þær, sem gimsteinafægjarinn hafði dregið upp á blaðið. “En hvað á alt þetta að þýða?” sagði steinninn, “það er ekkert gaman að þessu, það eru endalausar þjáningar. Eg skil ekkert í þessu.” Þegar búiS var að rispa steininn allan

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.