Fréttablaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 23
Þorvaldur Gylfason Í DAG Reykjavík – Saga þjóðar hvílir á þrem meginstoðum. Fyrsta stoðin er sagan eins og sagn- fræðingar skrá hana skv. skrifuðum heimildum, einkum stjórnmála- og menningarsaga og persónusaga – oftast af sjónarhóli þeirra sem mest máttu sín. Næsta stoð er sagan eins og hún horfir við skáldum og fræði- mönnum. Nærtækt dæmi er Íslend- ingasögur sem nútímamenn skoða yfirleitt sem skáldverk í samræmi við bókfestukenninguna frekar en sem annála. Þriðja stoðin þéttir söguna Fyrsta stoðin stóð ein lengi vel. Önnur stoðin, framlag skáldanna, reis varla í vitund manna að heitið geti fyrr en á 19. öld þegar bókfestu- kenningin ýtti sagnfestu til hliðar, kenningunni um Íslendingasögur sem sannsögulegar heimildir. Þriðja stoðin er félagssagan, stundum nefnd hversdagssaga, alþýðusaga fólks sem hvergi komst á blað í hefð- bundinni sagnfræði. Þessi þriðja stoð reis ekki að ráði fyrr en á níunda ára- tug 20. aldar með aukinni lýðræðis- vitund  almennings. Hér er átt við sögur venjulegs fólks í dagsins önn, fólks sem kemur yfirleitt hvergi við sögu sagnfræðinganna og yfirleitt ekki heldur skáldanna. Frásagnir þessa fólks fylla og þétta þjóðar- söguna, bregða nýrri birtu á hana og breyta stefnu hennar og inntaki. Sagnfræðingar tóku að gefa slíku efni meiri gaum eftir því sem traust almennings til yfirvalda tók að dvína eftir 1980. Þá steig fram fleira fólk en áður til að segja sögu sína. Þetta er helzta burðarstoð íslenzkrar sjálfs- ævisöguritunar. Frásagnir alþýðu- fólks hafa lengi lifað með þjóðinni þótt þær yrðu ekki viðfangsefni sagnfræðinga fyrr en undir lok 20. aldar. Sjálfsbókmenntirnar stóðu á gömlum merg persónusögu sem flokka má sem þjóðlegan fróðleik. Þegar félagssagan ruddi sér til rúms komu sagnfræðingar um síðir auga á þennan merkilega hluta menn- ingararfsins og tóku að nýta hann til að rannsaka sögu alþýðunnar. Fyrir þann tíma var litið á slíkt efni sem skemmtibókmenntir sem ættu lítið erindi við vísindi. Sjaldgæf innsýn Á fyrri tíð þegar sagan var fyrst og síðast saga þeirra sem mest máttu sín komust aðrir ekki á blað, t.d. konur. Það gerðist t.d. ekki fyrr en 2012 að út var gefin Dagbók Elku Björnsdóttur verkakonu í Reykjavík frá árunum 1915-1923 í bókaröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar sem Sigurður Gylfi Magnússon prófessor í Háskóla Íslands á veg og vanda af ásamt Má Jónssyni og Davíð Ólafssyni samstarfsmönnum sínum. Elka hafði frá ýmsu að segja sem ella hefði fallið í gleymsku, t.d. um Spænsku veikina, fullveldisfagnaðinn 1. desember 1918, fundi Bókmenntafélagsins og stofnun verkakvennafélagsins Fram- sóknar. Frásögn hennar komst ekki á þrykk fyrr en alþýðusagan fékk byr undir vængi seint á 20. öld. Í bóka- flokknum Merkir Íslendingar (sex bindi, 1947-1957) eru 96 ritgerðir um enn fleiri karla; ég segi „enn fleiri“ því tvær ritgerðirnar fjalla um feðga. Aðrar bækur af sama toga eru m.a. sjálfsævisaga Theódórs Friðriks- sonar rithöfundar Í verum (1941), bók Gísla Jónssonar alþingismanns Frá foreldrum mínum. Íslensk bar- áttusaga (1966) og ævisaga Hafsteins Sigurbjarnarsonar rithöfundar frá 1974, saga alþýðumanns sem mátti frá ungum aldri berjast fyrir lífi sínu Hversdagssaga og móður sinnar frá degi til dags. Önnur markverð dæmi eru dagbækur alþýðuskáldsins Magnúsar Hj. Magn- ússonar, sem var fyrirmynd Halldórs Laxness að Ólafi Kárasyni Ljósvíkingi í Heimsljósi, sjálfsævisaga Tryggva Emilssonar Fátækt fólk (1976-1979) og minningabækur Hannesar Sig- fússonar skálds Flökkulíf (1981) og Framhaldslíf förumanns (1985). Enn eitt fróðlegt dæmi er Bræður af Ströndum þar sem dagbækur tveggja bræðra, bréf og annað efni veita sjald- gæfa innsýn í daglegt líf fólks á ofan- verðri 19. öld undir leiðsögn Sigurðar Gylfa Magnússonar. Margar aðrar bækur misvel þekktra höfunda mætti nefna auk mikils fjölda sjálfsævisagna þjóðþekktra karla og kvenna. Sjónarhóll hagnýtrar sagnfræði Bækur sem þessar, sögur fólks sem sagnfræði með gamla laginu horfir fram hjá, birtast enn, stundum aðal- lega til heimabrúks. Arngrímur Sig- urðsson kennari birti Hver ein tíð: Minningavefur einnar aldar (þrjú bindi, 2004). Nýrra dæmi er Jón og Jóna frá 2017, saga Jóns Hjaltalíns Gunnlaugssonar læknis og konu hans Jónu Halldóru Bjarnadóttur eftir Kristínu Jónsdóttur. Of lítið er gefið út af slíkum bókum af sjónar- hóli hagnýtrar sagnfræði, e.t.v. af því að höfundarnir sjálfir, fjölskyldur þeirra eða útgefendur treysta ekki á áhuga óvandabundins fólks á slíkum sögum, vanmeta gildi þeirra og telja efnið því ekki eiga erindi út fyrir raðir fjölskyldunnar. Því kann margt gott efni að koma fyrir sjónir færra fólks en vert væri. Mikils er um vert að sagnfræðingar og aðrir vinni skipulega úr birtum sem óbirtum endurminningum, sjálfsævisögum, samtalsbókum, bréf- um, dagbókum og skráðum svörum við spurningalistum Þjóðminjasafns- ins þar sem hefur verið safnað saman miklu efni um hversdagsmenningu íslenzkrar alþýðu s.l. 150 ár. Slíkar heimildir eru verðmæt uppspretta vitneskju um liðna tíð handa þeim sem vilja kynnast högum ekki bara höfðingjanna heldur einnig venju- legs fólks. Gott og girnilegt Nú er ljúffenga Goða upphengiáleggið komið í umhverfis- vænni umbúðir úr pappa. Því er ekkert mál að flokka og endurvinna. Betra fyrir umhverfið Goði - alltaf góður NÝTT Með góðri sAmvisku S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23F I M M T U D A G U R 7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 0 7 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 4 2 -A 8 A 0 2 2 4 2 -A 7 6 4 2 2 4 2 -A 6 2 8 2 2 4 2 -A 4 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.