Fréttablaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 8
MINI Cooper
Nýskr. 12/2017, ekinn 8 þús. km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð 4.390.000 kr.
Rnr. 430349.
RANGE ROVER Sport HSE
Dynamic 3.0 SDV6
Nýskr. 1/2016, ekinn 53 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 12.490.000 kr.
Rnr. 10388.
LAND ROVER
Discovery 5 240D HSE
Nýskr. 6/2018, ekinn 3 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 13.690.000 kr.
Rnr. 420002.
RANGE ROVER Evoque
180D HSE Dynamic
Nýskr. 2/2016, ekinn 40 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.490.000 kr.
Rnr. 103733.
JAGUAR - LAND ROVER
Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík
525 6500 / jaguarlandrover.is
Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum
gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla.
Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag.
NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR
SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6
LAND ROVER
Discovery Sport HSE
Nýskr. 7/2015, ekinn 46 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 5.990.000. kr.
Rnr. 145166.
LAND ROVER
Discovery 4 S 3.0 TDV6
Nýskr. 6/2015, ekinn 87 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.890.000 kr.
Rnr. 103852.
JAGUAR XE 240D
R-sport AWD
Nýskr. 1/2018, ekinn 13 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 7.290.000 kr.
Rnr. 145557.
LAND ROVER Discovery
5 240D SE
Nýskr. 11/2017, ekinn 54 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 10.500.000 kr.
Rnr. 145504.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
2
2
2
4
MAKEDÓNÍA Atlantshafsbandalagið
(NATO) undirritaði í gær samkomu-
lag við Makedóníu um aðild ríkisins
að varnarbandalaginu. Þetta þótti
óhugsandi fyrir fáeinum árum vegna
afstöðu Grikkja. Eftir að Makedónar
og Grikkir sömdu um breytingu
á nafni fyrrnefnda ríkisins og að
Grikkir myndu þá ekki beita neitun-
arvaldinu gegn aðild Makedóna að
NATO og ESB er þetta orðin raunin.
Undirritunin færir Makedóna nær
því að breyta nafni ríkisins í Lýðveld-
ið Norður-Makedónía. Ríki Atlants-
hafsbandalagsins eiga eftir að full-
gilda sáttmálann. Nikola Dimitrov,
utanríkisráðherra Makedóna, sagði
að í kjölfar undirritunar taki aðeins
fáeina daga að breyta nafninu.
„Þessi niðurstaða var ekki óhjá-
kvæmileg. Hún var ekki einu sinni
líkleg. Ég tek ofan fyrir leiðtogum
beggja hliða sem sýndu fram á að hið
ómögulega er í raun mögulegt […] Á
næstu dögum munum við útkljá
síðustu deilumálin sem við eigum
við nágranna okkar,“ sagði Dimitrov.
Jens Stoltenberg, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins, sagði
daginn sögulegan. Heimasíða Nató
greindi frá því að Stoltenberg óskaði
stjórnvöldum í Grikklandi og Make-
dóníu til hamingju og hrósaði þeim
fyrir hugrekkið sem stjórnirnar hafi
sýnt.
Val Stoltenbergs á orðinu „hug-
rekki“ er skiljanlegt enda markar
samkomulagið endalok áratuga-
langrar deilu Grikkja og Makedóna.
Frá því Makedónar fengu sjálfstæði
frá Júgóslavíu 1991 og völdu þetta
nafn á ríki sitt hafa Grikkir verið
ósáttir.
Óánægja Grikkja er tvíþætt. Þeir
óttast að með nafnið að vopni geri
Makedónar tilkall til grísks land-
svæðis, það er að segja gríska hér-
aðsins Makedóníu. Hins vegar þykir
þeim nafnið ótækt í sögulegu sam-
hengi. Hið forna konungsríki Make-
dónía, sem Alexander mikli stýrði til
að mynda, var að mestu leyti innan
grísku Makedóníu og er álitið hluti af
menningararfi Grikkja.
Þótt stjórnvöld beggja ríkja hafi nú
samið um nafnbreytingu og um að
hvorugt ríkið geri tilkall til landsvæð-
is hins er stór hluti grísks almenn-
ings ósáttur, já og gríska þingsins.
Skoðanakannanir benda til að meiri-
hluti Grikkja sé á móti samkomu-
laginu. Sextíu prósent samkvæmt
mælingu Pulce RC í janúar. Kyriakos
Mitsotakis, formaður stjórnarand-
stöðuflokksins Nýs lýðræðis, hefur
til að mynda gagnrýnt að Grikkir
viðurkenni makedónska tungu með
gerð samkomulagsins.
Og Makedónar eru margir ósáttir
sömuleiðis. Vilja ekki beygja sig
undir Grikki og breyta nafni ríkis-
ins. Ljóst er þó að ávinningurinn er
mikill að mati makedónskra stjórn-
valda. Fá að öllum líkindum lang-
þráða aðild að bæði NATO og ESB.
thorgnyr@frettabladid.is
Makedónar færast nær NATO
Nikola Dimitrov og Jens Stoltenberg á sameiginlegum blaðamannafundi í gær. NORDICPHOTOS/AFP
BRETLAND „Ég hef verið að velta því
fyrir mér hvernig sá krókur helvítis,
sem ætlaður er þeim sem þrýstu á
Brexit án nokkurrar hugmyndar
um framkvæmdina, lítur út,“ sagði
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs
Evrópusambandsins, á blaða-
mannafundi í gær. Tusk hafði þá
lokið fundi með Leo Varadkar, for-
sætisráðherra Írlands, í Brussel.
Fundur Tusks og Varadkars sner-
ist um Brexit. Pattstaða er í mál-
inu þar sem breska þingið hafnaði
samningi er ríkisstjórn Theresu May
hafði gert við ESB og nú vilja Bretar
fá umdeildu ákvæði um varúðarráð-
stöfun breytt. Ákvæðið varðar fyrir-
komulag landamæra Bretlands og
Írlands. Tusk sagði að varúðarráð-
stöfunin væri ekki á förum.
Þá sagðist hann vita að margir
Bretar og Evrópubúar óskuðu þess
að hætt yrði við Brexit. „Ég hef alltaf
staðið með því fólki. En staðreyndir
málsins eru þær að forsætisráðherr-
ann og leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar útiloka slíkt. Það er ekkert
raunverulegt pólitískt afl sem vill
beita sér fyrir áframhaldandi veru í
ESB. Það er ekkert gleðiefni en sú er
staðreyndin.“ – þea
Harðorður um
Brexit-sinna
Donald Tusk, for-
seti leiðtogaráðs
Evrópusam-
bandsins.
Sögulegur dagur að
mati framkvæmda-
stjóra NATO. Makedónía
skrefi nær því að verða
meðlimur bandalagsins.
Utanríkisráðherra lands-
ins boðar breytingu á
nafni ríkisins.
Ég tek ofan fyrir
leiðtogum beggja
hliða.
Nikola Dimitrov utanríkisráðherra
7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
2
-A
3
B
0
2
2
4
2
-A
2
7
4
2
2
4
2
-A
1
3
8
2
2
4
2
-9
F
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
6
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K