Fréttablaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 22
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Áfengi var ekki þvingað ofan í þá með þeim afleið- ingum að þeir fóru skyndi- lega að tala tungum. Bannið við afhendingu burðarplast- poka er þannig ein aðgerð af mörgum sem gripið verður til. Varla er til of mikils mælst að þingmenn þjóðarinnar séu sæmilega skynsamir og búi yfir rökhugsun. Ef í ljós kemur að þingmenn eru haldnir verulega slæmum dómgreindarskorti er best fyrir alla að þeir hverfi af þingi. Þegar er ljóst að fjórir þingmenn Miðflokksins, sem kenndir eru við barinn Klaustur, búa ekki yfir nægi- legri skynsemi og rökhugsunin er heldur ekki upp á það besta. Í stað þess að hafa hægt um sig, eins og fólk gerir venjulega þegar það skammast sín vegna athæfis síns, hafa þingmennir hátt og kasta fram alls kyns full- yrðingum sem hvert skynsamt mannsbarn sér að geta ekki staðist. Nú halda þingmennirnir því fram að Bára Halldórs- dóttir sem tók upp fyllirísraus þeirra á barnum, hafi brugðið sér í dulargervi þegar hún tók upp samtalið og hafi ákveðið dulargervið áður en hún mætti á staðinn. Í fjölmiðlum hefur ítrekað verið rætt við Báru, en þar hefur hvergi komið fram að hún búi yfir skyggnigáfu. Hún á samt að hafa vitað fyrirfram hvenær þingmenn- irnir myndu vera á þessum tiltekna bar. Ekki nóg með það, heldur á hún einnig að hafa gert sér grein fyrir því að þeir myndu verða ofurölvi, keppast við að klæmast og rægja samstarfsfólk sitt. Nú skulum við útiloka að Bára Halldórsdóttir búi yfir skyggnigáfu. Ef hún hefði þá gáfu hefði það vísast komið fram í fjölmiðlum. Um leið er eina mögulega skýringin á því að hún hafi fyrirfram vitað að hún myndi komast í feitt sú að hún hafi áður séð og heyrt til þessara þing- manna á barnum og því vitað að þeir væru klámkjaftar þegar þeir væru komnir í glas. Ekki passar það við yfirlýsingar þingmannanna sjálfra sem segjast ekki hafa þekkt sig í orðunum sem þeir létu falla á barnum. Það er næsta óhuggulegt að fjórir þingmenn úr sama flokki skuli bjóða landsmönnum upp á þá vitleysislegu skýringu að ásetningur Báru hafi verið svo sterkur að hún hafi brugðið sér í dulargervi. Staðreyndir málsins eru mjög einfaldar og verður ekki haggað: Þingmenn- irnir fóru á barinn, drukku og klæmdust og höfðu hátt. Þeir helltu sig sjálfir fulla. Áfengi var ekki þvingað ofan í þá með þeim afleiðingum að þeir fóru skyndilega að tala tungum. Vel mætti ætla að í hópi þessara fjögurra þing- manna væri allavega einn réttlátur sem gerði sér ljóst hversu galna samsæriskenningu þeir eru að bera á borð fyrir landsmenn. En þingmennirnir halda hópinn. Það hlýtur að vera vegna þess að formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, vill haga málum á þennan veg. Staðreyndir málsins blasa samt við öllu skynsömu fólki. Þingmönnunum var ekki fjarstýrt af Báru Halldórsdóttur. Þeir eru ekki fórnarlömb. Skömmin er þeirra, en þeir kunna ekki að skammast sín. Njósnari með skyggnigáfu? Plast er efni sem endist afar lengi og er því hentugt til ýmissa nota. Einmitt þessi eiginleiki þess gerir það hins vegar einstaklega óhentugt sem einnota efni. Vörur úr plasti sem hent er eftir örskamma notkun geta enst í tugi og hundruð ára sem úrgangur. Burðarplastpokar hafa verið bannaðir í fjölda ríkja og í síðustu viku mælti ég fyrir frumvarpi sem felur í sér að frá og með 1. janúar 2021 verði óheimilt að afhenda burðar- poka úr plasti á sölustöðum vara. Með þessu tökumst við á við það mikla magn plastpoka sem er í umferð en höfum auk þess víðtækari áhrif. Aðgerðin snertir daglegan veru- leika heimilanna í landinu og virkjar okkur til að hugsa á annan hátt en áður um plast og eigin neyslu. Með frumvarpinu fylgi ég eftir tillögum frá samráðsvett- vangi um aðgerðir í plastmálefnum sem í sátu fulltrúar atvinnulífs, sveitarfélaga, umhverfisverndarsamtaka, opinberra stofnana, Alþingis, ráðuneyta og fleiri. Tillaga þeirra um aðstoð við neytendur sem mæta með marg- nota umbúðir undir keypta matvöru hefur þegar komið til framkvæmda og undirbúningur stendur yfir varðandi viðurkenningar fyrir framúrskarandi plastlausar lausnir. Verið er að vinna úr öðrum tillögum auk þess sem fyrir liggur að tilskipun ESB til að takast á við plastmengun verður innleidd en þar er t.d. lagt til að ríkjum verði gert skylt að draga úr notkun matarumbúða og drykkjarbolla úr einnota plasti. Bannið við afhendingu burðarplastpoka er þannig ein aðgerð af mörgum sem gripið verður til. Heyrst hefur að plastpokarnir séu aðeins hluti af plast- vandanum og ekki ætti að horfa til þeirra heldur gera þess í stað eitthvað annað. Ég segi: Gerum margt. Verkefnið fram undan er umfangsmikið og við þurfum margs konar lausnir. Plastvandinn er stór og við verðum að taka hann alvarlega. Hvernig borðar maður fíl? Einn bita í einu. Frumvarpið um plastpokana er einn slíkur biti – aðgerð sem virkjar okkur með beinum hætti við að hugsa um lausnir án plasts. Saman getum við lyft grettistaki. Bann við burðarplastpokum virkjar okkur til að hugsa á annan hátt en áður um plast og eigin neyslu. Plastpokabann – mikilvægt skref Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráð- herra Vertu klár í Lífshlaupið! BOSE Soundsport free 20.792 kr. stgr. Verð áður 25.990 kr. stgr. 20% afsláttur Sofið hjá óvininum Vinstri græn fögnuðu 20 ára afmæli í gær þótt einhverjum finnist sósíalísku berin heldur hafa súrnað á þessum tveimur áratugum og þyki nú síðast illt að sörfa hægri ölduna með utanríkisráðherra í Venesúela. Í fyrstu stefnuyfirlýsingu VG kvað við sígildan tón um jöfnuð og félagslegt réttlæti. Sjálfsagt má deila um það hvernig þau mál hafa þróast á þessum 20 árum. Eitt er þó víst að það hefði væntanlega þurft að segja Stein- grími J. og félögum það þrisvar við stofnun flokksins að eftir 20 ár leiddi hann ríkisstjórnar- samstarf með höfuðóvinunum í Sjálfstæðisflokknum og Fram- sóknarflokknum. Tveir litlir Klaustursdrengir … Þótt allt virðist ganga smurt hjá ríkisstjórn sem hefði þótt óskapnaður í árdaga VG, hlýtur forsætisráðherra að taka eftir samdrættinum milli Miðflokks- ins og Sjálfstæðisflokksins. Þótt Miðflokkur, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur hafi ekki haft þingstyrk til að mynda rík- isstjórn eftir kosningar þá gæti fjölgað um tvo í Miðflokknum á næstunni eftir að tveir úr Flokki fólksins fóru á rall og þótt einn úr Miðflokknum hafi drukkið flösku af ólyfjan gæti fjölgað í hópnum þannig að eftir standi 33 sem duga vel til að halda VG í skefjum á umbrotatímum. sighvatur@frettabladid.is adalheidur@frettabladid.is 7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R22 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 7 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 4 2 -9 9 D 0 2 2 4 2 -9 8 9 4 2 2 4 2 -9 7 5 8 2 2 4 2 -9 6 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.