Fréttablaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 30
Tónlistarmaðurinn Hrafn Bogdan kemur fram á Vetrarhátíð í Reykjavík næsta
laugardag en þá mun hann flytja
eigið efni fyrir sundlaugargesti
Vesturbæjarlaugar á Sundlaugar-
nótt, sem er hluti Vetrarhátíðar.
„Þar mun ég spila eigin lög fyrir
sundlaugargesti, fyrst og fremst á
gítar en kannski líka píanó. Þetta
verður ljúfur fílingur fyrir gestina
enda er ég fyrst og fremst að leita
eftir að skapa skemmtilega og
þægilega stemningu og leyfa fólki
að njóta góðrar tónlistar og söngs.“
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og
standa yfir í hálftíma.
Hrafn, sem er nýorðinn 22 ára
gamall, hóf ungur tónlistarnám.
„Ég var sex ára gamall þegar ég
hóf að læra á píanó ásamt því að
syngja í drengjakór. Á svipuðum
tíma byrjaði ég í raun líka að semja
tónlist en það voru bara lítil lög
á píanóið með engum söng. Um
tólf ára aldurinn byrjaði ég svo að
semja lög með söng og texta.“
Hógvær stíll
Sem strákur hlustaði Hrafn mest
á klassíska tónlist en um tólf ára
aldurinn segist hann hafa einbeitt
sér meira að söng og eigin laga-
smíðum ásamt því að halda áfram
í klassíkinni. „Þegar ég var 19 ára
byrjaði ég að kenna sjálfum mér
á gítar og er á fullu í því verkefni.
Tónlistinni minni er best lýst sem
poppi og byggist stíll minn mest
á því að spila á tónleikum. Ég er
búinn að taka upp „live“ EP-plötu
sem ég mun gefa út á Spotify í lok
þessa mánaðar og svo er stefnan
sett á aðra hefðbundna EP-plötu
síðar á árinu.“
Hann lýsir fatastíl sínum sem
frekar hógværum en samt aðeins í
klassíska átt. „Hann samanstendur
yfirleitt bara af einfaldri peysu
eða skyrtu og dökkum buxum.
Fatastíllinn hefur helst mótast í
gegnum árin af fólkinu í kringum
mig, t.d. vinum, fjölskyldu og
ýmsum listamönnum sem ég hef
litið upp til. En hann hefur þó í
grunninn verið meira og minna sá
sami síðan ég var lítill. Ég fylgist
ekkert sérstaklega með tískunni
heldur skoða frekar hvað hentar
persónuleika mínum og læt bara
vaða. Þó er ég aðeins meðvitaður
um hvað er inni og hvað ekki, en
þó alls ekki mikið.“
Hvar kaupirðu þér helst föt?
Það er engin sérstök búð sem ég
fer í umfram aðrar. Ég kaupi bara
það sem mér finnst fallegt hverju
sinni, sem getur verið hvar sem er.
Hvaða litir eru í uppáhaldi?
Það breytist reglulega en akk-
úrat núna eru það dökkgrænn og
brúnn, helst í dekkri kantinum.
Áttu minningar um gömul tísku-
slys?
Það var helst þegar ég gekk einu
sinni með forljóta og allt of stóra
prjónahúfu sem ég bjó til þegar
ég var í Hagaskóla. Hún passaði
engan veginn við það sem ég
klæddist en ég gekk með hana í
nokkur skipti. Fljótlega fékk ég þó
nóg og keypti mér almennilega
húfu.
Hvaða flík hefur þú átt lengst og
notar enn?
Það eru Nike innanhúss-skór sem
ég keypti í byrjun árs 2012.
Áttu einhverjar uppáhaldsversl-
anir?
Nei, ég held ekki upp á neina sér-
staka.
Áttu eina uppáhaldsflík?
Ég á mér nokkrar en sú sem ég
nota kannski mest núna eru
ljósbrúnar galla-stuttbuxur. Mér
finnst alltaf langþægilegast að
vera í stuttbuxum þegar ég er
heima og er í raun eins oft í þeim
og ég get.
Bestu og verstu fatakaupin?
Sem dæmi um bestu fatakaupin
má nefna sparijakkann minn sem
ég nota alltaf mikið og svo Nike
innanhúss-skórnir. Í raun á ég mér
engin verstu kaup því yfirleitt er
ég alltaf viss um hvað ég ætla að
kaupa mér.
Notar þú fylgihluti?
Ég notaði úr fyrir nokkrum árum
en það brotnaði og ég hef ekki
keypt mér nýtt síðan.
Stuttbuxur þægilegar
Hrafni Bogdan finnst þægilegast að vera í stuttbuxum
heima. Hann kemur fram á Vetrarhátíð næsta laugardag.
Hér er Hrafn í ljósbrúnu stuttbuxunum sem eru í miklu uppáhaldi. Blái bolurinn er frá J.Crew. MYND/ANTON BRINK
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
SMART BUXUR,
FYRIR SMART KONUR
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Algjört
verðhrun
á útsölu
Aðeins 6 verð
Str. 36-56
1.000.-
2.000.-
3.000.-
4.000.-
5.000.-
6.000.-
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Frettabladid.is færir
þér nýjustu fréttir
dagsins og ítarlega
umöllun um málefni
líðandi stundar.
Fylgstu með á
frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
0
7
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
2
-8
1
2
0
2
2
4
2
-7
F
E
4
2
2
4
2
-7
E
A
8
2
2
4
2
-7
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
6
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K