Fréttablaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 18
www.skoda.is KODIAQ OG KAROQ. FYRIR FÓLKIÐ ÞITT OG NÁTTÚRUNA. Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Hvort sem þú velur margverðlaunaðan KODIAQ eða glænýjan og snjallan KAROQ gerir þú hvort tveggja. Komdu og prófaðu jeppabræðurna frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig! HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum ENDURNÝJAÐU TENGSLIN MEÐ KODIAQ OG KAROQ. 4.690.000 kr.5.790.000 kr. Með því að koma með fjölnota mál og kaupa græna kaffikortið er hægt að spara heilmikinn pening árlega. Í Hámu er hægt að fá ýmis litrík og falleg fjölnota mál á lágu verði. Í Hámu er ekki hægt að fá einnota plastglös heldur bara fjölnota glös. Með fjölnota matarboxunum tókst FS að minnka sölu á einnota matar- boxum um helming á einu ári. „Nú vorum við að hækka verð á einnota boxunum í 100 krónur og lækka á fjölnota boxum og verðum með þau á til- boði út febrúar. Vonandi skilar það árangri,“ segir Rebekka Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi FS. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Félagsstofnun Stúdenta (FS) hefur unnið að því markvisst síðustu ár að minnka notkun einnota plasts í matsölu sinni, Hámu, í Háskóla Íslands. Sem leið að því markmiði hafa þau hafið sölu á fjölnota matarboxum og boðið upp á fjölnota drykkjarmál í stað plastmála auk þess sem þeim sem mæta með fjölnota matarbox eða mál til að kaupa sér kaffi eða mat býðst að borga lægra verð. Rebekka Sigurðardóttir, upplýs- ingafulltrúi FS, segir í samtali við Fréttablaðið að þau hafi fyrst byrjað árið 2017 á því að kaupa fimm þús- und fjölnota plastmál með skila- boðum á ensku og íslensku þar sem biðlað var til fólks að skila glösum eftir notkun. „Þetta bar árangur því árið á undan höfðu farið um 78 þúsund einnota plastglös, eða um 6.500 á mánuði. En árið 2017, eftir að merktu glösin komu, notuðum við um 31 þúsund einnota glös, eða um 2.600 á mánuði. Á síðasta ári voru einnota glösin fjarlægð frá vatns- vélunum og eru ekki notuð nema í neyð,“ segir Rebekka. Hún segir að þau hafi tekið til þessa ráðs því í gegnum tíðina hafi horfið mikið magn af leirtaui og hnífapörum, bæði úr Hámu og af kaffistofum stúdenta, sem staðsettar eru víða á háskólasvæðinu. „Þetta brotnar afar sjaldan, postu- línsmálin eru nánast óbrjótandi, og því er það ráðgáta hvað verður af þessu öllu því stór hluti skilar sér ekki til okkar eftir notkun. Sumt fer úr húsi og annað í ruslið. Því miður oft nokkurt magn. Við höfum frétt af Hámubollum uppi í hillum heima hjá fólki og til sölu á nytja- mörkuðum. Oft sárvantar margt, sérstaklega hnífapör og bolla, og þá neyðumst við til að bjóða upp á plast og pappa,“ segir Rebekka. Helmingi færri einnota matarbox seld á einu ári Í fyrra hafi þau síðan tekið matar- boxin í gegn. Árið 2017 voru seldir 57.026 heitir réttir í Hámu. Sama ár voru seld um 23 þúsund einnota matarbox. Það má því gera ráð fyrir að um 46 prósent allra heita rétta hafi verið seld í slíkum einnota boxum. Til að minnka það hófu þau í fyrra sölu á fjölnota matarboxum. Minna einnota og meira fjölnota Í Háskóla Íslands hefur tekist vel að innleiða ýmsar aðgerðir sem miða að því að minnka notkun einnota plasts og nota fjölnota í auknum mæli. Í Hámu hefur tekist að minnka sölu á einnota matarboxum og drykkjarmálum. Næst á dagskrá eru kaffibollarnir. Átakið skilaði sér vel því árið 2018 var seldur 64.581 heitur réttur og aðeins um 13.400 einnota box. Þá var hlutfallið sem fór út af heitum réttum í einnota boxum komið niður í 21 prósent. „Nú vorum við að hækka verð á einnota boxunum í 100 krónur og lækka á fjölnota boxum og verðum með þau á tilboði út febrúar. Von- andi skilar það árangri,“ segir Rebekka. Hún segir að næsta vígi þeirra sé kaffisala. „Stúdentar og starfsfólk HÍ er kaffiþyrst fólk en árlega hellum við upp á tæplega 300 þúsund bolla af kaffi. Þó að við séum sífellt að bæta við postulínsmálum velja enn of margir frekar pappamál og um 200 þúsund slík fara hjá okkur árlega. Þessari sóun viljum við útrýma,“ segir Rebekka. Hún segir að til að reyna að hvetja fólk til að nota fjölnota kaffi- og temál og vatnsflöskur látu þau fram- leiða slíkt fyrir sig og selji það með lítilli álagningu í Hámu, á kaffistof- um stúdenta og í Bóksölu stúdenta. Einnig noti þau aðrar leiðir, eins og að gefa þeim afslátt sem koma með sín eigin fjölnota mál. Þann 1. febrúar hófu þau, sem dæmi, sölu á nýjum 20 bolla afsláttarkortum fyrir kaffi og te. Einungis þau sem koma með sín eigin fjölnota mál geta nýtt þau. Þegar keypt er almennt kaffi- kort fá stúdentar bollann á 150 krónur, en með græna kaffikortinu er verðið talsvert lægra, eða 115 krónur fyrir bollann. „Þetta er partur af umhverfisátaki okkar til að draga úr notkun á ein- nota og hvetja fólk til að koma með sitt eigið fjölnota. Hvað varðar kaffikortin, þá geturðu komið með þitt eigið mál og það getur verið að hámarki 400 millilítrar, sem er talsvert stærra en bollarnir, þannig að þú færð ekki bara kaffibollann ódýrari heldur færðu líka meira í bollann þinn. Þannig erum við að draga úr sóun á einnota umbúðum en líka að taka umhverfisvænt skref. Því þótt fólk sé að nota postulín þá er það rafmagn, sápa og vatn sem fer í að þrífa það,“ segir Rebekka. Hún segir að árangurinn þyki þeim merkilegur, en á sama tíma sé erfitt að hugsa út í sóunina sem á sér stað víða í samfélaginu. „Okkur finnst þetta mjög merki- legt. Þetta er rosalega stórt átak og þegar þú sérð þessar tölur þá eru þær skuggalegar því mannfjöldinn er svo mikill. Hér í þessu samfélagi starfa um tvö þúsund manns og stúdentar eru um tólf þúsund. Það er hægt að heimfæra þetta upp á önnur svæði og ímynda sér hversu mikil sóun er í gangi og hverju við erum að breyta,“ segir Rebekka að lokum. Háskóli Íslands er einn stærsti vinnustaður landsins. Við skólann eru skráðir 12.470 nemendur. Auk þeirra starfa við háskólann um tvö þúsund manns. Háma er staðsett á Háskólatorgi, í Stakkahlíð, Háskóla- bíói, Eirbergi og Árnagarði. Háma heimshorn er í Tæknigarði og Háma salatbar á Háskólatorgi. Kaffistofur stúdenta eru í Læknagarði, Odda og Öskju. Í Hámu og á kaffistofunum er fjölbreytt úrval af mat og drykk. Hér í þessu sam- félagi starfa um tvö þúsund manns og stúdentar eru um tólf þúsund. Það er hægt að heimfæra þetta upp á önnur svæði og ímynda sér hversu mikil sóun er í gangi og hverju við erum að breyta. Lovísa Arnardóttir lovisaa@frettabladid.is TILVERAN 7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 4 2 -7 2 5 0 2 2 4 2 -7 1 1 4 2 2 4 2 -6 F D 8 2 2 4 2 -6 E 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.