Fréttablaðið - 07.02.2019, Qupperneq 18
www.skoda.is
KODIAQ OG KAROQ. FYRIR FÓLKIÐ ÞITT OG NÁTTÚRUNA.
Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Hvort sem
þú velur margverðlaunaðan KODIAQ eða glænýjan og snjallan KAROQ gerir þú
hvort tveggja. Komdu og prófaðu jeppabræðurna frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
ENDURNÝJAÐU TENGSLIN
MEÐ KODIAQ OG KAROQ.
4.690.000 kr.5.790.000 kr.
Með því að koma með fjölnota mál
og kaupa græna kaffikortið er hægt
að spara heilmikinn pening árlega.
Í Hámu er hægt að fá ýmis litrík og
falleg fjölnota mál á lágu verði.
Í Hámu er ekki hægt að fá einnota
plastglös heldur bara fjölnota glös.
Með fjölnota matarboxunum tókst
FS að minnka sölu á einnota matar-
boxum um helming á einu ári.
„Nú vorum við að hækka verð á einnota boxunum í 100 krónur og lækka á fjölnota boxum og verðum með þau á til-
boði út febrúar. Vonandi skilar það árangri,“ segir Rebekka Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi FS. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Félagsstofnun Stúdenta (FS) hefur unnið að því markvisst síðustu ár að minnka notkun einnota plasts í matsölu sinni, Hámu, í Háskóla Íslands.
Sem leið að því markmiði hafa þau
hafið sölu á fjölnota matarboxum
og boðið upp á fjölnota drykkjarmál
í stað plastmála auk þess sem þeim
sem mæta með fjölnota matarbox
eða mál til að kaupa sér kaffi eða
mat býðst að borga lægra verð.
Rebekka Sigurðardóttir, upplýs-
ingafulltrúi FS, segir í samtali við
Fréttablaðið að þau hafi fyrst byrjað
árið 2017 á því að kaupa fimm þús-
und fjölnota plastmál með skila-
boðum á ensku og íslensku þar sem
biðlað var til fólks að skila glösum
eftir notkun.
„Þetta bar árangur því árið á
undan höfðu farið um 78 þúsund
einnota plastglös, eða um 6.500
á mánuði. En árið 2017, eftir að
merktu glösin komu, notuðum við
um 31 þúsund einnota glös, eða um
2.600 á mánuði. Á síðasta ári voru
einnota glösin fjarlægð frá vatns-
vélunum og eru ekki notuð nema í
neyð,“ segir Rebekka.
Hún segir að þau hafi tekið til
þessa ráðs því í gegnum tíðina hafi
horfið mikið magn af leirtaui og
hnífapörum, bæði úr Hámu og af
kaffistofum stúdenta, sem staðsettar
eru víða á háskólasvæðinu.
„Þetta brotnar afar sjaldan, postu-
línsmálin eru nánast óbrjótandi, og
því er það ráðgáta hvað verður af
þessu öllu því stór hluti skilar sér
ekki til okkar eftir notkun. Sumt
fer úr húsi og annað í ruslið. Því
miður oft nokkurt magn. Við höfum
frétt af Hámubollum uppi í hillum
heima hjá fólki og til sölu á nytja-
mörkuðum. Oft sárvantar margt,
sérstaklega hnífapör og bolla, og
þá neyðumst við til að bjóða upp á
plast og pappa,“ segir Rebekka.
Helmingi færri einnota
matarbox seld á einu ári
Í fyrra hafi þau síðan tekið matar-
boxin í gegn. Árið 2017 voru seldir
57.026 heitir réttir í Hámu. Sama
ár voru seld um 23 þúsund einnota
matarbox. Það má því gera ráð fyrir
að um 46 prósent allra heita rétta
hafi verið seld í slíkum einnota
boxum. Til að minnka það hófu þau
í fyrra sölu á fjölnota matarboxum.
Minna einnota og meira fjölnota
Í Háskóla Íslands hefur tekist vel að innleiða ýmsar aðgerðir sem miða að því að minnka notkun einnota plasts og nota fjölnota í
auknum mæli. Í Hámu hefur tekist að minnka sölu á einnota matarboxum og drykkjarmálum. Næst á dagskrá eru kaffibollarnir.
Átakið skilaði sér vel því árið 2018
var seldur 64.581 heitur réttur og
aðeins um 13.400 einnota box. Þá
var hlutfallið sem fór út af heitum
réttum í einnota boxum komið
niður í 21 prósent.
„Nú vorum við að hækka verð á
einnota boxunum í 100 krónur og
lækka á fjölnota boxum og verðum
með þau á tilboði út febrúar. Von-
andi skilar það árangri,“ segir
Rebekka.
Hún segir að næsta vígi þeirra sé
kaffisala.
„Stúdentar og starfsfólk HÍ er
kaffiþyrst fólk en árlega hellum við
upp á tæplega 300 þúsund bolla af
kaffi. Þó að við séum sífellt að bæta
við postulínsmálum velja enn of
margir frekar pappamál og um 200
þúsund slík fara hjá okkur árlega.
Þessari sóun viljum við útrýma,“
segir Rebekka.
Hún segir að til að reyna að hvetja
fólk til að nota fjölnota kaffi- og
temál og vatnsflöskur látu þau fram-
leiða slíkt fyrir sig og selji það með
lítilli álagningu í Hámu, á kaffistof-
um stúdenta og í Bóksölu stúdenta.
Einnig noti þau aðrar leiðir, eins
og að gefa þeim afslátt sem koma
með sín eigin fjölnota mál. Þann 1.
febrúar hófu þau, sem dæmi, sölu á
nýjum 20 bolla afsláttarkortum fyrir
kaffi og te. Einungis þau sem koma
með sín eigin fjölnota mál geta nýtt
þau. Þegar keypt er almennt kaffi-
kort fá stúdentar bollann á 150
krónur, en með græna kaffikortinu
er verðið talsvert lægra, eða 115
krónur fyrir bollann.
„Þetta er partur af umhverfisátaki
okkar til að draga úr notkun á ein-
nota og hvetja fólk til að koma með
sitt eigið fjölnota. Hvað varðar
kaffikortin, þá geturðu komið með
þitt eigið mál og það getur verið
að hámarki 400 millilítrar, sem er
talsvert stærra en bollarnir, þannig
að þú færð ekki bara kaffibollann
ódýrari heldur færðu líka meira í
bollann þinn. Þannig erum við að
draga úr sóun á einnota umbúðum
en líka að taka umhverfisvænt skref.
Því þótt fólk sé að nota postulín þá
er það rafmagn, sápa og vatn sem fer
í að þrífa það,“ segir Rebekka.
Hún segir að árangurinn þyki
þeim merkilegur, en á sama tíma sé
erfitt að hugsa út í sóunina sem á sér
stað víða í samfélaginu.
„Okkur finnst þetta mjög merki-
legt. Þetta er rosalega stórt átak og
þegar þú sérð þessar tölur þá eru
þær skuggalegar því mannfjöldinn
er svo mikill. Hér í þessu samfélagi
starfa um tvö þúsund manns og
stúdentar eru um tólf þúsund. Það
er hægt að heimfæra þetta upp á
önnur svæði og ímynda sér hversu
mikil sóun er í gangi og hverju við
erum að breyta,“ segir Rebekka að
lokum.
Háskóli Íslands er einn stærsti
vinnustaður landsins. Við skólann
eru skráðir 12.470 nemendur. Auk
þeirra starfa við háskólann um tvö
þúsund manns. Háma er staðsett á
Háskólatorgi, í Stakkahlíð, Háskóla-
bíói, Eirbergi og Árnagarði. Háma
heimshorn er í Tæknigarði og Háma
salatbar á Háskólatorgi. Kaffistofur
stúdenta eru í Læknagarði, Odda og
Öskju. Í Hámu og á kaffistofunum
er fjölbreytt úrval af mat og drykk.
Hér í þessu sam-
félagi starfa um tvö
þúsund manns og stúdentar
eru um tólf þúsund. Það er
hægt að heimfæra þetta upp
á önnur svæði og ímynda sér
hversu mikil sóun er í gangi
og hverju við erum að
breyta.
Lovísa
Arnardóttir
lovisaa@frettabladid.is
TILVERAN
7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
2
-7
2
5
0
2
2
4
2
-7
1
1
4
2
2
4
2
-6
F
D
8
2
2
4
2
-6
E
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
6
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K