Fréttablaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 54
Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, dreifa, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til inntöku, Panodil Brus
freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægum verkjum. Hitalækkandi. Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Veldu Panodil
sem hentar þér!
Verkjastillandi og
hitalækkandi
Panodil LB-5x10-Lyfja copy.pdf 1 21/01/2019 13:04
KVIKMYNDIR
Vice
Leikstjórn: Adam McKay
Aðalhlutverk: Christian Bale, Amy
Adams, Steve Carell
Það er eitthvað skemmti-lega geggjað við að Adam McKay er orðinn einn beittasti samfélags-rýnirinn í Hollywood eftir að hafa haslað sér
þar völl með galsafengnum gaman-
myndum á borð við Anchorman,
Talladega Nights, Step Brothers og
The Other Guys.
Annars er ekkert yfir þessum við-
snúningi að kvarta. Greining hans á
rotnu fjármálakerfinu, The Big Short
frá 2015, var vel heppnuð og nú
býður hann með Vice upp á óþægi-
lega skemmtilega tveggja klukku-
stunda vatnspyntingu.
Vice er sérkennileg mynd, djörf
samsuða heimildarmyndar og pól-
itískrar satýru sem því miður er svo
skelfilega raunsönn að það sækir að
manni köfnunartilfinning að mynd-
inni lokinni.
Eitt af því sem gerir Vice svo magn-
aða er að hún minnir okkur rudda-
lega á að eftir aðeins tvö ár með
örvitann, sem kann ekki að hnýta
á sig bindi, í Hvíta húsinu erum
við búin að gleyma að það eru ekki
nema rétt tíu ár síðan þar véluðu um
miklu verri og hættulegri menn en
Donald Trump.
Fláráður varaforseti
Myndin hverfist um Dick Cheney,
alræmdan varaforseta George W.
Bush, og rekur hvernig drykkfelldur
lúser rífur sig upp og klifrar til æðstu
metorða í Washington og endar
sem valdamesti varaforseti Banda-
ríkjanna fyrr og síðar.
Fámáll og fláráður kemur Cheney
sér í þá stöðu að hann og hans
menn ráða öllu sem þeir vilja ráða
með strengjabrúðuna George W.
Bush í forgrunni. Voða klárir karlar
sem létu ekkert gott af sér leiða en
græddu á tá og fingri á meðan.
Christian Bale hefur unnið
ófáa leiksigra á ferlinum en
hefur aldrei risið jafn hátt og í
túlkun sinni á Cheney. Þetta
er miklu meira en bara enn
eitt grímubúningahlut-
verkið þar sem leikara
er breytt í raunveru-
lega persónu með
slatta af aukakílóum
og haug af farða. Bale
beinlínis umbreytist
í Cheney og skilar þessum hættulega
manni óþægilega vel.
Amy Adams er litlu síðri í hlut-
verki eiginkonunnar, Lynne Chen ey,
sem er mikill áhrifavaldur þar sem
það er hún sem rífur
vonlausa barflug-
una upp á rass-
gatinu, smitar
metnaðargirni
sinni yfir á rón-
ann og keyrir
hann áfram
til illra verka.
Þá er Sam
R o c k w e l l
alveg dásam-
legur Bush
þ ó t t
hann virki að vísu aðeins meira
sjarmerandi en fyrirmyndin en
jafn heimskur. Sá frábæri gaman-
leikari Steve Carell flýgur hátt sem
sótrafturinn Donald Rumsfeld sem
er absúrdkómískur í þráhyggju
sinni um að ráðast inn í Írak.
Allt er þetta sem sagt
svolítið fyndið þótt
þetta sé síður en svo
hlægilegt enda sagan
sem hér er sögð virki-
lega skelfileg. Ekki síst
þar sem ekki sér enn
fyrir endann á þeim
hryllingi sem þessir kónar
kölluðu yfir heims-
byggðina.
Súrrealísk samsuða
Vice er um margt óvenjuleg bíó-
mynd og ekki hægt að segja að hún
sé aðgengileg. Fyrstu 50 mínúturnar
eða svo minna frekar á heimildar-
mynd en leikna kvikmynd. Er
meira eins og áróðursverk
úr smiðju Michaels Moore
eða áramótaannáll RÚV
með áherslu á fanta-
brögð Bush-klíkunnar.
Ég hef heyrt eitt-
hvað um að fólk hafi
gefist upp á myndinni á
þessum kafla en slíkt er
mikið glapræði. Í fyrsta
lagi er
þessi hluti myndarinnar mjög
áhugaverður og flæðir vel og síðan
tekur enn betra við þegar McKay
dúndrar í fimmta gír og gefur leikur-
unum lausan tauminn í túlkun á
öllu þessu virkilega vonda fólki sem
gætir þess þó að óhreinka aldrei á sér
hendurnar.
Og sem heild smellur Vice saman
sem áleitið og óvægið verk sem á
erindi við okkur öll. Alltaf. Þetta er
ekki falleg mynd en það er heimur-
inn ekki heldur og ekki skánaði
hann við það að Cheney sá ekkert
nema tækifæri í hryðjuverkaárás-
unum 11. september 2001. Tækifæri
sem hann því miður nýtti til hins
ýtrasta „and the rest is history“, eins
og sagt er, nú eða bara kvikmyndin
Vice.
Vituð þér enn, eða hvað?
Þórarinn Þórarinsson
NIÐURSTAÐA: Um margt
undarleg og erfið mynd sem
segir mikilvæga sögu sem
okkur væri hollast að
rifja upp og gleyma
aldrei. Og já, Christian
Bale er frábær Dick
Cheney. Skelfilega
frábær.
Hrollvekjandi satíra um vonda hvíta karla
Steve Carell og Sam Rockwell eru frekar fyndnir í hlut-
verkum átakanlega ófyndinna manna, Rumsfeld og Bush.
Christian Bale og Amy Adams eru óþægilega góð í hlutverkum Cheney-hjónanna þar sem Dick er óttalegur drulluhali á meðan frúin er mögnuð Lafði Macbeth.
7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍÓ
0
7
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
4
2
-8
F
F
0
2
2
4
2
-8
E
B
4
2
2
4
2
-8
D
7
8
2
2
4
2
-8
C
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
6
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K