Fréttablaðið - 07.02.2019, Page 54

Fréttablaðið - 07.02.2019, Page 54
Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, dreifa, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til inntöku, Panodil Brus freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægum verkjum. Hitalækkandi. Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Veldu Panodil sem hentar þér! Verkjastillandi og hitalækkandi Panodil LB-5x10-Lyfja copy.pdf 1 21/01/2019 13:04 KVIKMYNDIR Vice Leikstjórn: Adam McKay Aðalhlutverk: Christian Bale, Amy Adams, Steve Carell Það er eitthvað skemmti-lega geggjað við að Adam McKay er orðinn einn beittasti samfélags-rýnirinn í Hollywood eftir að hafa haslað sér þar völl með galsafengnum gaman- myndum á borð við Anchorman, Talladega Nights, Step Brothers og The Other Guys. Annars er ekkert yfir þessum við- snúningi að kvarta. Greining hans á rotnu fjármálakerfinu, The Big Short frá 2015, var vel heppnuð og nú býður hann með Vice upp á óþægi- lega skemmtilega tveggja klukku- stunda vatnspyntingu. Vice er sérkennileg mynd, djörf samsuða heimildarmyndar og pól- itískrar satýru sem því miður er svo skelfilega raunsönn að það sækir að manni köfnunartilfinning að mynd- inni lokinni. Eitt af því sem gerir Vice svo magn- aða er að hún minnir okkur rudda- lega á að eftir aðeins tvö ár með örvitann, sem kann ekki að hnýta á sig bindi, í Hvíta húsinu erum við búin að gleyma að það eru ekki nema rétt tíu ár síðan þar véluðu um miklu verri og hættulegri menn en Donald Trump. Fláráður varaforseti Myndin hverfist um Dick Cheney, alræmdan varaforseta George W. Bush, og rekur hvernig drykkfelldur lúser rífur sig upp og klifrar til æðstu metorða í Washington og endar sem valdamesti varaforseti Banda- ríkjanna fyrr og síðar. Fámáll og fláráður kemur Cheney sér í þá stöðu að hann og hans menn ráða öllu sem þeir vilja ráða með strengjabrúðuna George W. Bush í forgrunni. Voða klárir karlar sem létu ekkert gott af sér leiða en græddu á tá og fingri á meðan. Christian Bale hefur unnið ófáa leiksigra á ferlinum en hefur aldrei risið jafn hátt og í túlkun sinni á Cheney. Þetta er miklu meira en bara enn eitt grímubúningahlut- verkið þar sem leikara er breytt í raunveru- lega persónu með slatta af aukakílóum og haug af farða. Bale beinlínis umbreytist í Cheney og skilar þessum hættulega manni óþægilega vel. Amy Adams er litlu síðri í hlut- verki eiginkonunnar, Lynne Chen ey, sem er mikill áhrifavaldur þar sem það er hún sem rífur vonlausa barflug- una upp á rass- gatinu, smitar metnaðargirni sinni yfir á rón- ann og keyrir hann áfram til illra verka. Þá er Sam R o c k w e l l alveg dásam- legur Bush þ ó t t hann virki að vísu aðeins meira sjarmerandi en fyrirmyndin en jafn heimskur. Sá frábæri gaman- leikari Steve Carell flýgur hátt sem sótrafturinn Donald Rumsfeld sem er absúrdkómískur í þráhyggju sinni um að ráðast inn í Írak. Allt er þetta sem sagt svolítið fyndið þótt þetta sé síður en svo hlægilegt enda sagan sem hér er sögð virki- lega skelfileg. Ekki síst þar sem ekki sér enn fyrir endann á þeim hryllingi sem þessir kónar kölluðu yfir heims- byggðina. Súrrealísk samsuða Vice er um margt óvenjuleg bíó- mynd og ekki hægt að segja að hún sé aðgengileg. Fyrstu 50 mínúturnar eða svo minna frekar á heimildar- mynd en leikna kvikmynd. Er meira eins og áróðursverk úr smiðju Michaels Moore eða áramótaannáll RÚV með áherslu á fanta- brögð Bush-klíkunnar. Ég hef heyrt eitt- hvað um að fólk hafi gefist upp á myndinni á þessum kafla en slíkt er mikið glapræði. Í fyrsta lagi er þessi hluti myndarinnar mjög áhugaverður og flæðir vel og síðan tekur enn betra við þegar McKay dúndrar í fimmta gír og gefur leikur- unum lausan tauminn í túlkun á öllu þessu virkilega vonda fólki sem gætir þess þó að óhreinka aldrei á sér hendurnar. Og sem heild smellur Vice saman sem áleitið og óvægið verk sem á erindi við okkur öll. Alltaf. Þetta er ekki falleg mynd en það er heimur- inn ekki heldur og ekki skánaði hann við það að Cheney sá ekkert nema tækifæri í hryðjuverkaárás- unum 11. september 2001. Tækifæri sem hann því miður nýtti til hins ýtrasta „and the rest is history“, eins og sagt er, nú eða bara kvikmyndin Vice. Vituð þér enn, eða hvað? Þórarinn Þórarinsson NIÐURSTAÐA: Um margt undarleg og erfið mynd sem segir mikilvæga sögu sem okkur væri hollast að rifja upp og gleyma aldrei. Og já, Christian Bale er frábær Dick Cheney. Skelfilega frábær. Hrollvekjandi satíra um vonda hvíta karla Steve Carell og Sam Rockwell eru frekar fyndnir í hlut- verkum átakanlega ófyndinna manna, Rumsfeld og Bush. Christian Bale og Amy Adams eru óþægilega góð í hlutverkum Cheney-hjónanna þar sem Dick er óttalegur drulluhali á meðan frúin er mögnuð Lafði Macbeth. 7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍÓ 0 7 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 4 2 -8 F F 0 2 2 4 2 -8 E B 4 2 2 4 2 -8 D 7 8 2 2 4 2 -8 C 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.