Velferð - 01.10.2013, Blaðsíða 3

Velferð - 01.10.2013, Blaðsíða 3
Guðmundur Bjarnason „Þeir vanda síg víð þann fyrsta" Um mitt ár 1982 kom upp hugmynd hjá hópi fólks sem glímdi við hjartasjúkdóma að mynda félagsskap sem hefði það hlutverk að gæta hagsmuna hjartasjúklinga og beita sér fyrir forvarnarstarfi og fræðslu um hjartasjúkdóma. Voru það ekki síst einstaklingar sem farið höfðu utan, einkum til Englands, í hjartaskurðaðgerðir sem leiddu þennan hóp og höfðu mikinn áhuga á að beita sér fyrir því að hægt yrði að framkvæma slíkar aðgerðir hér á landi. Hugmyndin hélt áfram að þróast og í mai 1983 var haldinn fjölmennur fundur þar sem kosin var undirbúningsnefnd til að vinna að stofnun slíkra samtaka. Það var svo þann 8. október 1983 að haldinn var stofnfundur Landssamtaka hjartasjúklinga (LHS) og mættu á þann fund 230 stofnfélagar. Landssamtök hjartasjúklinga eða Hjartaheill, eins og samtökin heita í dag, eru því 30 ára um þessar mundir og félagsmenn nú 3.300. Margt hefur gerst á þessum 30 árum sem liðið hafa frá stofnfundinum og má fullyrða að samtökin hafi sannað gildi sitt og hlutverk og átt þátt í margvíslegum verkefnum til hagsbóta fyrir hjartasjúklinga og til eflingar heilbrigðisþjónustunni 1 landinu. Eitt af hlutverkum samtakanna er að stuðla að betri heilsu og bættum lífsgæðum i íslensku samfélagi með áherslu á framfarir í forvörnum, fræðslu og meðferð hjartasjúkdóma. Og með þetta að leiðarljósi lögðu samtökin mikla áherslu á það í upphafi að þjálfa lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk og útvega og bæta tækjabúnað við Landspítalann svo hægt væri að framkvæma opnar hjartaskurðaðgerðir hér heima í stað þess að þurfa að senda alla þá sem á slíkum aðgerðum þyrftu að halda til útlanda með ærnum tilkostnaði, fyrirhöfn og áhyggjum fyrir sjúklinga, aðstandendur og þjóðfélagið allt. Þessi nýstofnuðu samtök beittu sér því fyrir fjársöfnun til tækjakaupa og áttu stóran þátt í því að fyrsta opna hjartaaðgerðin var gerð hér á landi þann 14. júní 1986 eða aðeins tæpum þremur árum eftir stofnun þeirra. Sá sem fór í þessa fyrstu aðgerð hét Valgeir Vilhjálmsson og gekk síðan undir gælunafninu „Valgeir fyrsti" hjá vinum og kunningjum og félögum í samtökunum. Sagt er að Valgeir hafi verið spurður að því fyrir aðgerðina hvort hann væri ekki kvíðinn, verandi sá fyrsti sem undirgengist slíka aðgerð hér. Valgeir svaraði þá að bragði: „Nei, alls ekki. Ég veit að þeir vanda sig sérstaklega við þann fyrsta!“ Og það fór líka svo, - þessa fyrstu aðgerð gerði Þórarinn Arnórsson, hjartaskurðlæknir, og tókst hún vel í alla staði. Valgeir lifði góðu lífi í meira en aldarfjórðung eftir þetta og lést 98 ára þann 20. september 2012. Hann var alla tíð traustur félagsmaður og góður liðsmaður LHS/Hjartaheilla, - blessuð sé minning hans. í stuttu ávarpi er ekki hægt að rekja eða nefna öll þau fjölmörgu verkefni sem samtökin hafa beitt sér fyrir eða tekið þátt í til að bæta og styrkja heilbrigðisþjónustuna í landinu og þau fjölmörgu fræðslu- og forvarnarverkefni sem þau hafa beitt sér fyrir, enda er efni blaðs þessa fyrst og fremst tileinkað þeirri sögu. Alla tíð, í þrjátiu ára sögu samtakanna, hafa þau átt stóran þátt í að bæta tækjabúnað á heilbrigðisstofnunum víða um land en ekki síst á Landspítalanum. Strax á fyrsta starfsári, 1984, gáfu samtökin LSH hjartasónartæki sem kostaði kr. 2 milljónir. Var það stórfé á þeim tíma. Síðar það ár áttu samtökin þátt í að keypt var nýtt hjartaþræðingartæki. Margoft síðan hafa þau lagt lið við kaup á nýjum hjartaþræðingartækjum fyrir LSH, bæði árið 2000 og aftur árið 2008, á 25 ára afmæli samtakanna, er þau beittu sér fyrir landssöfnun til að styrkja slík tækjakaup. Og enn á þessu þrítugasta afmælisári ætla Hjartaheill að standa fyrir víðtæku söfnunarátaki til kaupa á nýju hjartaþræðingartæki. Slíkur hátæknibúnaður úreldist fljótt og nú þegar er nýjasta tækið orðið 5 ára gamalt og þau eldri eru komin langt fram yfir áætlaðan endingartíma þannig að það er sannarlega orðin brýn þörf fyrir nýtt tæki. Á þrjátíu árum hafa samtökin lagt samtals um 200 milljónir króna, á verðlagi hvers tima, til tækjakaupa fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu. Framreiknuð til verðlags í dag mun sú tala nú nema helmingi hærri upphæð eða um 400 milljónum króna og það munar sannarlega um minna. Á þessu afmælisári eru félagsmenn Hjartaheilla orðnir 3.300 talsins eins og áður segir. Eru þeim öllum þökkuð vel unnin störf í þágu samtakanna, þess málstaðar og þeirra verkefna sem þau hafa beitt sér fyrir á undangengnum 30 árum. Megi samtökin eflast og dafna og halda áfram sínum mikilvægu verkefnum í þágu lands og þjóðar um langa framtíð. Ég sendi félagsmönnum svo og landsmönnum öllum mínar hjartanlegustu hamingjuóskir í tilefni þessa 30 ára afmælis Hjartaheilla. Guðmundur Bjarnason, formaður stjórnar Hjartaheilla. V ujise - snjallar lausnir BYKO BUÐU BETUR. BORGAÐU MINNA. VELFERÐ 3

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.